Ferill 466. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 962 — 466. mál.
Svar
félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.
1. Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga fyrir árið 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka.
Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Á árinu nýttust tillögurnar til að undirbúa og koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá desember 2025.
2. Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmd fjárlaga. Hvert ráðuneyti ber ábyrgð á að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins, á undirsíðunni Hagsýni í ríkisrekstri, er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að öll ráðuneyti birti tvisvar yfir árið yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september 2025 og vísast í fyrrnefnda vefsíðu.
Neðangreint er yfirlit yfir það hvernig félags- og húsnæðismálaráðuneytið útfærði hagræðingaraðgerðir í fjárlögum fyrir árið 2026. Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemi að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og er því ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði.
Málaflokkur 10.50 Útlendingamál.
Innan stjórnsýslunnar er unnið að aðgerðum til að stytta málsmeðferðartíma umsækjenda um alþjóðlega vernd. Styttri málsmeðferðartími leiðir til minni kostnaðar vegna þjónustu við umsækjendur. Áætlað er að árleg útgjöld vegna þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd dragist saman um 3.000 millj. kr. vegna þessa.
Málaflokkur 27.20 Endurhæfing.
Í nýju örorku- og endurhæfingarkerfi er áhersla lögð á að auka skilvirkni í tengslum við endurhæfingu, veita rétta þjónustu á réttum tíma og stuðla að virkni. Áætlað er að það skili um 500 millj. kr. árlegum samdrætti í útgjöldum.
Málaflokkur 30.10 Vinnumál og atvinnuleysi.
Áætlað er að aukin virkniskylda og aukið eftirlit með greiðslum atvinnuleysisbóta geti lækkað árleg útgjöld um 500 millj. kr. hjá Atvinnuleysistryggingasjóði. Fyrirhugað er að breyta lágmarksskilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta þannig að atvinnuleitandi þurfi að hafa starfað á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 12 mánuði á ávinnslutímabili til að eiga rétt á greiðslum. Áætlað er að breytingin dragi úr árlegum útgjöldum um 200 millj. kr. Þessi aðgerð kemur fram í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir (stytting bótatímabils o.fl.) sem lagt var fram á Alþingi í desember 2025 og er á þessum tímapunkti enn í þinglegri meðferð.
Málaflokkur 31.10 Húsnæðismál.
Í nóvember 2025 var lagt fram frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Alþingi samþykkti lögin 19. febrúar 2026 og öðluðust þau strax gildi. Áætlaður sparnaður vegna húsnæðiskostnaðar gæti numið 30 millj. kr. á ári.
Málaflokkur 32.40 Stjórnsýsla félagsmála.
Stjórn Tryggingastofnunar var lögð niður frá og með 1. janúar 2026 og gert er ráð fyrir að það skili um 12 millj. kr. sparnaði á ársgrundvelli. Frekari aðgerðir varðandi lækkun kostnaðar í tengslum við stjórnir stofnana eru í undirbúningi.