Ferill 414. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 963 — 414. mál.
Svar
atvinnuvegaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um slátrun samkvæmt trúarsiðum.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvaða reglur gilda á Íslandi um merkingu matvæla af dýrum sem slátrað er samkvæmt trúarsiðum, t.d. halal-slátrun?
Kveðið er á um upplýsingagjöf til neytenda um matvæli í reglugerð nr. 1294/2014 sem innleiðir reglugerð (ESB) nr. 1169/2011. Í 9. og 10. gr. reglugerðarinnar er kveðið á um hvaða upplýsingar skuli veita neytendum en slátrunaraðferð er ekki meðal þeirra atriða sem skylt er að tilgreina.
Í 7. gr. sömu reglugerðar er fjallað um sanngirni í upplýsingagjöf og þar er tekið fram að matvælaupplýsingar megi ekki vera villandi, meðal annars um eðli, eiginleika, samsetningu, magn, uppruna eða framleiðsluaðferð. Að veita ekki upplýsingar um slátrunaraðferð telst ekki villandi að mati Matvælastofnunar. Framleiðendur geta þó kosið að upplýsa um slíkt en þeim er það ekki skylt.