Ferill 419. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 965 — 419. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Bergþóri Ólasyni um frítekjumörk og tekjuviðmið.
Þá hafa vaxtabætur verið felldar brott frá og með 1. janúar 2027.
1. Hvaða frítekjumörk eða tekjuviðmið eru í gildi samkvæmt lögum sem hafa ekki verið uppfærð undanfarin þrjú ár eða lengur?
2. Í hvaða lögum koma þau fyrir, hver er fjárhæð þeirra og hvenær voru þau síðast uppfærð?
Þær viðmunarfjárhæðir sem um ræðir eru í eftirfarandi ákvæðum laga um tekjuskatt, nr. 90/2003:
a. 7. tölul. 1. mgr. 10. gr. Eitt af skilyrðum laganna um að tekjur skv. 1. tölul. A-liðar 7. gr., vegna kaupa einstaklinga á hlutabréfum samkvæmt kauprétti skuli skattleggja sem fjármagnstekjur er að hámark kaupa hvers starfsmanns samkvæmt kauprétti sé samanlagt 1.500.000 kr. á ári miðað við kaupverð samkvæmt samningi. Fjárhæðin hefur verið óbreytt frá álagningu opinberra gjalda 2021 vegna tekna ársins 2020.
b. 12. tölul. 28. gr. Úttekt viðbótariðgjalds af iðgjaldsstofni einstaklinga telst ekki til tekna ef öll skilyrði laga um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð eru uppfyllt. Heimild einstaklinga takmarkast við allt að 4% framlag þeirra af iðgjaldsstofni, að hámarki 333 þús. kr., og allt að 2% framlag launagreiðanda, að hámarki 167 þús. kr., af iðgjaldsstofni, samanlagt að hámarki 500 þús. kr. fyrir tólf mánuði á almanaksári á samfelldu tíu ára tímabili, sbr. lög um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð. Ef útgreiðsla séreignarsparnaðar fer fram úr því hámarki telst það sem er umfram til skattskyldra tekna á greiðsluári. Fjárhæðin hefur verið óbreytt frá 1. júlí 2017.
c. 7. tölul. A-liðar 30. gr. Einstaklingum er heimilt að draga frá tekjum sínum framlög til lögaðila sem starfa til almannaheilla að lágmarki samtals 10 þús. kr. og allt að hámarki samtals 350 þús. kr. á almanaksári að uppfylltum skilyrðum laganna. Fjárhæðin hefur verið óbreytt frá 1. janúar 2022.
d. B-liður 30. gr. Hlutabréfaafsláttur einstaklinga. Fjárhæðir hafa verið óbreyttar frá álagningu opinberra gjalda 2017 vegna fjárfestinga á árinu 2016 að undanskilinni hámarksfjárhæð heildarfjárfestinga í 2. tölul. 2. mgr. ákvæðisins sem tók síðast breytingum með bráðabirgðaákvæði 2020 vegna almanaksáranna 2020–2024.
– Fjárfesting einstaklings í hverju félagi verður að nema að lágmarki 300.000 kr.
– Hámarksfrádráttarheimild vegna fjárfestingar er 10.000.000 kr. hjá einstaklingi.
– Hámarksfrádráttur er 5.000.000 kr. hjá einstaklingi (tvöfalt hjá hjónum). Á almanaksárunum 2020 til og með 2024 (álagningarárunum 2021 til 2025) er frádráttarheimildin þó að hámarki 15.000.000 kr. hjá einstaklingi og hámarksfrádráttur 11.250.000 kr. (tvöfalt hjá hjónum).
e. 58. gr. a. Nemi tekjur af heimagistingu hærri fjárhæð en 2 millj. kr. falla þær undir atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi. Fjárhæðin hefur verið óbreytt frá álagningu opinberra gjalda 2018.
f. 66. gr. og 7.–8. tölul. 70. gr. 300.000 kr. árlegt frítekjumark vaxtatekna og tekna af hlutabréfum í félögum sem skráð eru á skipulegum verðbréfamarkaði í formi arðs og söluhagnaðar hjá einstaklingum, þannig að ekki leggist skattur á tekjur innan þeirra fjárhæðarmarka. Fjárhæðin hefur verið óbreytt frá álagningu opinberra gjalda 2021 vegna tekna ársins 2020.
g. B-liður 68. gr. Bráðabirgðaákvæði XLI um vaxtabætur hefur verið í gildi á árunum 2011–2026 með óbreyttum fjárhæðum. Vaxtabætur hafa verið felldar brott frá og með 1. janúar 2027.
Vaxtabætur geta að hámarki orðið:
– Fyrir einhleyping 420.000 kr.
– Fyrir einstætt foreldri 525.000 kr.
– Fyrir hjón og sambúðarfólk 630.000 kr.
Hámark vaxtagjalda nemur:
– Hjá einhleypingi 840.000 kr.
– Hjá einstæðu foreldri 1.050.000 kr.
– Hjá hjónum og sambúðarfólki 1.260.000 kr.
Vaxtabætur skerðast ef eignir að frádregnum skuldum fara yfir mörk sem eru:
– Hjá einhleypingi/einstæðu foreldri 7.500.000 kr.
– Hjá hjónum/sambúðarfólki 12.000.000 kr.
Réttur til vaxtabóta fellur niður um leið og nettóeign verður:
– Hjá einhleypingi/einstæðu foreldri 12.000.000 kr.
– Hjá hjónum/sambúðarfólki 19.200.000 kr.
3. Hefur verið unnin greining innan ráðuneytisins á tekjuáhrifum þess að slík viðmið hafi staðið óbreytt?
Þau ákvæði sem talin hafa verið upp eiga það sameiginlegt að teljast til skattastyrkja, að undanskildum B-lið 68. gr., um vaxtabætur. Með skattastyrkjum er átt við eftirgjöf á skattkröfu sem leiðir til fráviks frá grunngerð skattkerfisins og veldur tekjutapi fyrir hið opinbera. Þannig er með skattastyrkjum átt við undanþágur frá skattskyldu, frádrætti, frádráttarheimildir og lægri skattprósentu. Ráðuneytið heldur utan um umfang og tekjuáhrif skattastyrkja og birtir samhliða fjárlagafrumvarpi. Stefnt er að því að birta skattastyrkina í fullri sundurliðun á næstu misserum.
4. Er í ráði að endurskoða eða uppfæra umrædd viðmið á næstu misserum?
Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar er ekki lögð sérstök áhersla á að endurskoða þessar fjárhæðir. Í fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að vaxtabætur verði greiddar í síðasta skipti í álagningu 2027 vegna vaxtagjalda ársins 2026. Að því er varðar ráðstöfun séreignarsparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána er að því stefnt að sú heimild verði gerð varanleg. Jafnframt að fjárhæðir verði hækkaðar afturvirkt frá liðnum áramótum og taki breytingum í réttu hlutfalli við mismun á vísitölu neysluverðs við upphaf og lok næstliðins tólf mánaða tímabils.
5. Hver hefðu tekjuáhrif á ríkissjóð orðið þar til nú ef tekjuviðmið hefðu verið uppfærð með tilliti til vísitölu neysluverðs frá því að þau voru fest með tilliti til núgildandi upphæðar?
Þau ákvæði sem talin eru upp í svari við 1. tölul. fyrirspurnarinnar hafa að geyma sjálfstæð fjárhæðarviðmið sem taka mið af markmiðum og áherslum stjórnvalda hverju sinni. Ekki er einsýnt að viðmiðunarfjárhæðirnar ættu að fylgja vísitölu neysluverðs til að framfylgja markmiðum sínum. Það eitt og sér að uppreikna viðmiðunarfjárhæðir út frá vísitölu neysluverðs getur skilað niðurstöðu sem er ekki í samræmi við markmið lagasetningarinnar eða áherslur stjórnvalda. Ráðuneytið telur því að það hafi mjög takmarkaða þýðingu að meta tekjuáhrif út frá vali á einni vísitölu umfram aðra á meðan markmið laganna og áherslur haldast óbreyttar.