Ferill 569. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 966 — 569. mál.
Beiðni um skýrslu
frá félags- og húsnæðismálaráðherra um synjanir og frávísanir úr endurhæfingarúrræðum VIRK og eftirfylgni með fyrrverandi þjónustuþegum hjá Janusi endurhæfingu.
Frá Rósu Guðbjartsdóttur, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Ingibjörgu Isaksen, Njáli Trausta Friðbertssyni, Sigríði Á. Andersen, Diljá Mist Einarsdóttur, Bryndísi Haraldsdóttur, Jens Garðari Helgasyni, Jóni Pétri Zimsen og Sigurði Erni Hilmarssyni.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að félags- og húsnæðismálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um synjanir og frávísanir úr endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK og eftirfylgni með fyrrverandi þjónustuþegum hjá Janusi endurhæfingu.
Í skýrslunni verði farið yfir:
1. Hver er nánari sundurliðun á þeim 8.899 beiðnum um starfsendurhæfingarþjónustu sem var synjað af VIRK á árunum 2016–2025, sbr. svar ráðherra á þskj. 665 á yfirstandandi þingi? Svar óskast sundurliðað eftir fjölda einstaklinga sem var synjað á hverju ári í eftirfarandi flokkum og nánari ástæðum höfnunar í hverjum flokki fyrir sig:
a. Synjun þar sem starfsendurhæfing var ekki talin raunhæf.
b. Starfsendurhæfing metin fullreynd.
c. Læknisfræðilegri greiningu ekki lokið.
d. Einstaklingur ekki talinn hafa þörf fyrir þjónustu VIRK.
2. Frá hvaða aðilum stafaði beiðni um þjónustu VIRK fyrir þá einstaklinga sem hafnað var um þjónustu, flokkað eftir árum og fyrrgreindum flokkum?
3. Hversu margir þeirra sem synjað var um þjónustu hafa jafnframt fengið einhverfugreiningu eða grunur liggur fyrir um að séu á einhverfurófi, flokkað eftir árum og fyrrgreindum flokkum?
4. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið vísað úr endurhæfingarúrræðum á vegum VIRK eða öðrum endurhæfingarúrræðum sem VIRK hefur samið við undanfarin tíu ár, flokkað eftir úrræðum? Hvaða ástæður liggja að baki slíkum ákvörðunum og hvernig eru þær rökstuddar? Hér er ekki átt við þá einstaklinga sem hætta í úrræðum að eigin frumkvæði eða teljast hafa lokið endurhæfingu með árangri.
5. Hversu mörgum einstaklingum hefur verið gert að hætta í úrræði að frumkvæði VIRK eða þjónustuaðila sem VIRK hefur samið við þar sem úrrræðið er ekki talið henta viðkomandi?
6. Hversu margir einstaklingar bíða nú eftir úrræði sem hentar eftir að hafa verið vísað úr öðru úrræði, sbr. 5. tölul.?
7. Hversu mörgum hefur verið vísað úr úrræðum á vegum VIRK undanfarin tíu ár vegna mætingarreglna VIRK og hversu margir þeirra einstaklinga eru með einhverfugreiningu?
8. Hversu margir einstaklingar sem áður voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu eru nú í úrræðum á vegum VIRK?
9. Hvernig er eftirfylgni háttað með þeim einstaklingum sem voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu áður en úrræðinu var lokað?
a. Hversu margir fluttust yfir í úrræði hjá VIRK?
b. Hvaða úrræði voru það?
c. Hver er staðan á endurhæfingu þeirra einstaklinga í dag?
10. Hefur farið fram könnun utanaðkomandi aðila á líðan þeirra einstaklinga sem áður voru í þjónustu hjá Janusi endurhæfingu og árangri þeirra úrræða sem þeim var vísað í, með það að markmiði að ganga úr skugga um að ekki hafi orðið þjónusturof eða bakslag í endurhæfingu? Ef svo er ekki, óskast upplýst hvort ráðherra hyggist láta gera slíka könnun. Einnig er óskað eftir upplýsingum um hvort ákvörðun ráðherra um að loka úrræðinu hafi verið réttmæt og hver rökin fyrir lokun voru.
Greinargerð.
Óskað er eftir upplýsingum um hversu mörgum þjónustuþegum VIRK hafi í reynd verið synjað um starfsendurhæfingarþjónustu og ástæður þess. Í svari ráðherra við fyrirspurn um VIRK sem birt var á þskj. 665 á yfirstandandi þingi barst ekki svar við öllum töluliðum fyrirspurnarinnar og þá sérstaklega þar sem óskað var eftir ástæðum og hvernig ákvarðanir um synjanir hefðu verið rökstuddar. Í skýrslubeiðninni er þeim því beint aftur til ráðherra í 4. og 5. tölul. og óskað eftir ítarlegri svörum í umbeðinni skýrslu.
Í beiðninni er einnig óskað eftir upplýsingum um eftirfylgni með þjónustuþegum hjá Janusi endurhæfingu sem lokað var á árinu 2025 og hvort þjónustan hafi verið nýtt og hafi nýst eða hvort orðið hafi rof á þjónustu við þá. Þá verði einnig upplýst hvort lokun á Janusi endurhæfingu hafi verið réttmæt og ef svo er á hvaða grunni.