Ferill 455. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 967  —  455. mál.




Svar


heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Huldu Bjarnadóttur um valkvæðar aðgerðir.


     1.      Hver er áætlaður biðtími eftir mjaðmaskiptaaðgerðum á Íslandi?
    Gögn um biðtíma og þróun hans eru fengin úr mælaborði embættis landlæknis, sem birt eru á vef embættisins. 1 Ekki er um einn sameiginlegan biðlista að ræða fyrir landið allt heldur er hver þjónustuveitandi með sinn biðlista. Í mælaborðinu er hægt að sjá miðgildi biðtíma sem byggist á biðtíma þeirra sem nú þegar hafa farið í aðgerð. Út frá nýjustu tölum má áætla biðtíma þeirra sem fara nú á biðlista, sjá töflu:

Miðgildi biðtíma liðskiptaaðgerða í mjöðm (vikur).

2024 2025
Landspítali 26 13
Sjúkrahúsið á Akureyri 19
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 22 15
Klíníkin 16
Handlækningastöðin 14

     2.      Hver er áætlaður biðtími eftir hnjáliðaskiptaaðgerðum á Íslandi?
    Gögn um biðtíma og þróun hans eru fengin úr mælaborði embættis landlæknis, sem birt eru á vef embættisins. 2 Ekki er um einn sameiginlegan biðlista að ræða fyrir landið allt heldur er hver þjónustuveitandi með sinn biðlista. Í mælaborðinu er hægt að sjá miðgildi biðtíma sem byggist á biðtíma þeirra sem nú þegar hafa farið í aðgerð. Út frá nýjustu tölum má áætla biðtíma þeirra sem fara nú á biðlista, sjá töflu:

Miðgildi biðtíma liðskiptaaðgerða í hné (vikur).

2024 2025
Landspítali 45 31
Sjúkrahúsið á Akureyri 23
Heilbrigðisstofnun Vesturlands 18 24
Klíníkin 4 5
Handlækningastöðin 14

    Undanfarin þrjú ár hafa Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) boðið út framkvæmd ákveðins fjölda liðskiptaaðgerða til að auka afkastagetu og stytta biðtíma og hefur það borið góðan árangur eins og tölurnar að framan sýna.
    Stafræn heilsa vinnur nú með Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) í að einfalda ferla með það að markmiði að stytta bið enn frekar. Þar til í janúar 2026 var m.a. gerð krafa um að þeir sem leita beint til samningsaðila SÍ þurfi einnig að hafa farið í skoðun og mat á sjúkrahúsi og verið skráðir á biðlista þar. Þeirri kröfu hefur nú verið aflétt og minnkar það tvíverknað og styttir biðtíma.
    Þess má einnig geta að nú geta allir sem eru á biðlista eftir liðskiptaaðgerð nálgast upplýsingar um skráningu sína á biðlista á mínum síðum á island.is en opnað var fyrir það í lok febrúar.

     3.      Hversu mörgum valkvæðum aðgerðum hefur verið frestað á Landspítala árið 2025 og það sem af er árinu 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
    Með fyrirvara um rétta skráningu var eftirtöldum fjölda valaðgerða frestað á Landspítala af tiltekinni ástæðu samkvæmt upplýsingum frá Landspítala (m.v. 25.02.2026), sjá töflu:

Ástæða frestunar (fjöldi aðgerða).
2025 2026
Skortur á legudeildarrýmum* 70 30
Skortur á gjörgæslurýmum* 31 1
Skortur á vöknunarrýmum* 1 0
Veikindi starfsfólks 15 6
Bilun í tækjabúnaði/tæknivandamál 9 0
Vantar ígræði 4 1
*Aðgerðir sem ekki er hægt að framkvæma annars staðar en á Landspítala vegna sérhæfingar í meðferð og umönnun í og eftir aðgerð.

    Til viðbótar hefur þurft að fresta valkvæðum aðgerðum samdægurs vegna bráðaaðgerða í forgangi og færa til aðgerðir með lengri fyrirvara vegna innri forgangsröðunar skurðsérgreina á valkvæðum aðgerðum en sú skráning er ekki áreiðanleg.
    Frestun skurðaðgerða er aldrei af hinu góða en í flestum tilfellum er frestuð aðgerð framkvæmd innan fárra daga eða vikna. Skurðstofur Landspítala standa ekki auðar þrátt fyrir að valaðgerð sé frestað heldur eru í langflestum tilfellum nýttar fyrir bráðaaðgerðir eftir forgangsflokkun. Að jafnaði bíða um 15 sjúklingar (frá 1–40) eftir að komast í bráðaaðgerð og er hluti þeirra fastandi að morgni til að hægt sé að kalla þá inn með skömmum fyrirvara.




1     island.is/bidlistar-heilbrigdisthjonusta
2     island.is/bidlistar-heilbrigdisthjonusta