Ferill 578. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 980 — 578. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um hlutlæga mælikvarða, hæfismat og stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri.
Frá Ingibjörgu Isaksen.
1. Hvaða hlutlægu mælikvarðar voru lagðir til grundvallar við mat á þeirri ákvörðun að endurráða ekki forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri sem ráðherra vísaði til í svari sínu í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi 16. mars sl.?
2. Eru þessir mælikvarðar skilgreindir í lögum, reglugerðum, erindisbréfum eða öðrum stjórnsýslugögnum og ef svo er, hvaða?
3. Hver voru viðmið eða markgildi fyrir hvern mælikvarða og hvert var vægi þeirra í heildarmati ráðuneytisins?
4. Var gerður samanburður við aðrar heilbrigðisstofnanir og ef svo er, hvaða og á hvaða grundvelli?
5. Hvernig tengdust þessir mælikvarðar með beinum og rökstuddum hætti þeirri ákvörðun að:
a. auglýsa stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri, og
b. framlengja ekki skipunartíma starfandi forstjóra?
6. Hvaða skrifleg gögn, minnisblöð eða matsskýrslur liggja til grundvallar framangreindu mati?
7. Fór fram formlegt hæfismat samkvæmt stjórnsýslulögum, nr. 37/1993, áður en ákvörðun var tekin um að auglýsa stöðu forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri? Ef svo er, með hvaða hætti var metið hvort og þá hvernig reglum stjórnsýslulaga um sérstakt hæfi var fullnægt með hliðsjón af tengslum ráðherra við starfsemi sjúkrahússins?
Skriflegt svar óskast.