Ferill 583. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 988  —  583. mál.




Fyrirspurn


til félags- og húsnæðismálaráðherra um innflytjendur og atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar.

Frá Fidu Abu Libdeh.


     1.      Telur ráðherra tilefni til að samþætta áherslu á aukið framboð á íslenskunámi og frekari stuðning fyrir innflytjendur við boðaða atvinnustefnu stjórnvalda með það að markmiði að efla þátttöku innflytjenda á vinnumarkaði og auka verðmætasköpun í landinu?
     2.      Hvaða aðgerðir eru fyrirhugaðar til að brúa það bil sem er milli Íslands og OECD-ríkja í kunnáttu innflytjenda í máli heimamanna og hvenær má búast við að þær aðgerðir komi til framkvæmda?
     3.      Hvernig hyggst ráðherra tryggja að innflytjendur verði sérstaklega hafðir í huga við mótun og framkvæmd atvinnustefnunnar þannig að hún þjóni tilgangi sínum fyrir alla íbúa landsins?


Skriflegt svar óskast.