Ferill 496. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 990  —  496. mál.

Síðari umræða.


Nefndarálit


um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 og 333/2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi), nr. 172/2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 176/2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka), nr. 249/2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) og nr. 294/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.

Frá meiri hluta utanríkismálanefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti og utanríkisráðuneyti.
    Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
     1.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/789 frá 17. apríl 2019 um reglur um nýtingu höfundarréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis og um breytingu á tilskipun ráðsins 93/83/EBE.
     2.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 333/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/790 frá 17. apríl 2019 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum og um breytingu á tilskipunum 96/9/EB og 2001/29/EB.
     3.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar að innleiða Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) smám saman, skylduna til að tilkynna um það ef truflanir verða á afhendingu eða ef afhendingu er hætt og um umbreytingarákvæði vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi.
     4.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
                  a.      Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
                  b.      Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/759 frá 14. desember 2021 um breytingu á VII. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 að því er varðar aðferðafræði fyrir útreikning á magni endurnýjanlegrar orku sem er notuð til kælingar og fjarkælingar.
     5.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1849 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur að því er varðar tannsilfur og aðrar vörur með viðbættu kvikasilfri sem falla undir framleiðslu-, innflutnings- og útflutningsbann.
     6.      Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2025 frá 5. desember 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1496 frá 12. júní 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar framkvæmdardagsetningu krafna um eiginfjárgrunn vegna markaðsáhættu.
    Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans vera í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
    Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt óbreytt.

Alþingi, 25. mars 2026.

Pawel Bartoszek,
form., frsm.
Dagbjört Hákonardóttir. Diljá Mist Einarsdóttir.
Jóhann Friðrik Friðriksson. Sigmar Guðmundsson. Sigurður Helgi Pálmason.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.