Ferill 588. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 996 — 588. mál.
Beiðni um skýrslu
frá fjármála- og efnahagsráðherra um jarðir í eigu ríkisins í ábúð.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Jóni Pétri Zimsen, Diljá Mist Einarsdóttur, Jóni Gunnarssyni, Ólafi Adolfssyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Njáli Trausta Friðbertssyni, Jens Garðari Helgasyni og Vilhjálmi Árnasyni.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um jarðir í eigu ríkisins í ábúð. Í skýrslunni verði farið yfir:
1. Hve margar bújarðir í eigu ríkissjóðs hafi virka ábúðarsamninga. Hversu margir þessara samninga séu á erfðafestu, hversu margir til lífstíðar og hversu margir tímabundnir. Jafnframt hversu margir samninganna séu gerðir með stoð í ábúðarlögum frá árinu 2004 og hversu margir hafi verið gerðir í tíð eldri laga sama efnis.
2. Hvert sé áætlað verðmæti þeirra jarða sem eru í ábúð.
3. Hvort ábúðarsamningar eða reglur um ábúð séu samræmdar.
4. Hvernig háttað sé framkvæmd, stjórnsýslu og utanumhaldi ábúðarsamninga, þ.m.t. eftirfylgni með virkum ábúðarsamningum.
5. Hvort í öllum tilvikum hvíli skylda á ábúanda að halda heimili á jörðinni og hvernig fylgst sé með því að svo sé.
6. Hver fari með samskipti við ábúendur af hálfu ríkisins, t.d. ef ábúendur óska leyfis til framkvæmda, veðsetningar eða annarra aðgerða.
7. Hversu margar ríkisjarðir í ábúð hafi verið seldar sl. 20 ár og um hvaða jarðir sé að ræða, hvert kaupverðið hafi verið í hverju tilviki og hverjar forsendur verðmats.
8. Hversu algeng tilvik séu þar sem ábúendur hafa óskað eftir leyfi ríkissjóðs sem jarðeiganda, sl. 20 ár, vegna meðferðar eða athafna á ábúðarjörðum, sundurgreint eftir tegund tilvika og hversu mörg dæmi séu um að synjað hafi verið um leyfi til framkvæmda sem ætlað er að styrkja búrekstur eða annan atvinnurekstur á jörðunum.
9. Hvernig staðið sé að eftirliti með athöfnum ábúenda á jörðinni.
10. Hvernig farið sé með óleyfisframkvæmdir á ríkisjörðum og hversu mörg slík tilvik hafi komið upp sl. 20 ár. Jafnframt hvernig unnið sé úr slíkum tilvikum.
11. Hversu miklum fjármunum ríkissjóður hafi varið til kaupa á þjónustu vegna ábúðarjarða sl. 20 ár, sundurgreint eftir árum.
12. Hver afkoma ríkissjóðs hafi verið af ríkisjörðum í ábúð síðustu 20 ár þegar frá er dreginn kostnaður vegna kaupa á framkvæmdum ábúenda við ábúðarlok, kostnaður vegna umsýslu jarðanna og annar kostnaður.
13. Hve miklum fjármunum ríkið hafi varið til uppgjörs til ábúenda við búskaparlok sl. 20 ár.
14. Hversu margar bújarðir hafi fallið úr ábúð sl. 20 ár.
15. Hvort leitast sé við að endurleigja bújörð til búreksturs þegar hún losnar úr ábúð og ef svo er, hve oft slíkir samningar hafi tekist sl. 20 ár.
16. Hvernig farið sé með aðild að félögum, t.d. veiðifélögum, upprekstrarfélögum og þess háttar þegar jörð er í ábúð og hversu oft eigandinn hafi beitt sér innan slíkra félaga sl. 20 ár og í hvaða tilvikum.
17. Hvort til sé skrá um ærgildi í sauðfjárrækt og framleiðsluheimildir mjólkur á ríkisjörðum í ábúð og hvert sé áætlað verðmæti slíkra heimilda í eigu ríkisins.
Greinargerð.
Mikilvægt er að Alþingi sé upplýst um með hvaða hætti ríkið heldur á sínum eignum. Stjórnsýsla og utanumhald ríkisjarða í ábúð þarf að vera skilvirk og má ekki hamla uppbyggingu bújarða. Jafnframt þarf að gæta jafnræðis og gæta að því að eftirlit sé með framkvæmd ábúðarsamninga. Þá er mikilvægt að leiða fram hvaða kostnaður fellur á ríkissjóð vegna umsýslu ábúðarjarða.