Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 997  —  412. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur um atvinnuleyfi á grundvelli sérþekkingar.


     1.      Hversu margir erlendir ríkisborgarar fengu atvinnuleyfi á grundvelli sérfræðiþekkingar á tímabilinu 2021 til og með 2025, sundurliðað eftir árum, þjóðerni, kyni og aldri?
    Á tímabilinu 2021 til og með 2025 veitti Vinnumálastofnun 1.645 einstaklingum tímabundin atvinnuleyfi vegna starfa sem krefjast sérfræðiþekkingar samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002. Þar af voru karlar 1.032 og konur 610. Þrír einstaklingar voru samkvæmt umsóknargögnum með hlutlausa skráningu kyns.
    Í töflu 1 má sjá fjölda einstaklinga sem var veitt slíkt atvinnuleyfi á umræddu tímabili, greint eftir árum.

     Tafla 1.

Ár

2021 2022 2023 2024 2025
Fjöldi einstaklinga 283 349 434 282 297
                                   Heimild: Vinnumálastofnun.

    Í töflu 2 má sjá fjölda einstaklinga sem var veitt slíkt atvinnuleyfi á umræddu tímabili, greint eftir aldri.

Tafla 2.

Aldur Fjöldi einstaklinga
20–29 427
30–39 875
40–49 255
50–59 68
60–70 20
Heimild: Vinnumálastofnun.

    Í töflu 3 má sjá fjölda einstaklinga sem var veitt slíkt atvinnuleyfi á umræddu tímabili, greint eftir þjóðerni.


Tafla 3.

Þjóðerni

Fjöldi einstaklinga

Afganistan
3
Afganistan 1
Albanía 42
Argentína 5
Ástralía 30
Aserbaísjan 1
Bosnía og Hersegóvína 3
Bangladess 3
Brasilía 22
Bahamaeyjar 1
Belarús 1
Hvíta-Rússland 3
Kanada 46
Austur-Kongó 1
Chile 6
Kína 64
Kólumbía 1
Kólumbía 17
Kosta Ríka 1
Kúba 2
Alsír 1
Egyptaland 16
Bretland 108
Georgía 9
Gana 8
Gvatemala 2
Indónesía 2
Ísrael 6
Indland 257
Írak 1
Íran 48
Jórdanía 2
Japan 10
Kenía 2
Kirgistan 1
Suður-Kórea 2
Kasakstan 1
Líbanon 3
Srí Lanka 3
Marokkó 3
Svartfjallaland 3
Makedónía 1
Norður-Makedónía 3
Mjanmar 1
Mongólía 1
Máritíus 2
Malaví 1
Mexíkó 26
Malasía 19
Nígería 6
Nepal 7
Nýja-Sjáland 7
Óskráð 1
Panama 1
Perú 6
Filippseyjar 186
Pakistan 43
Palestína 1
Kósovó 1
Serbía 20
Rússland 27
Singapúr 6
Síerra Leóne 2
Sýrland 2
Tógó

1
Taíland 1
Tadsíkistan 2
Túnis 4
Tyrkland 33
Trínidad og Tóbagó 2
Úkraína 23
Úganda 1
Bandaríkin 231
Úrúgvæ 1
Venesúela 5
Víetnam 210
Kósovó 2
Jemen 1
Suður-Afríka 19
Simbabve 1
Heimild: Vinnumálastofnun.

     2.      Á grundvelli hvaða sérfræðiþekkingar voru veitt leyfi á áðurnefndu tímabili?
    Í töflu 4 má sjá fjölda einstaklinga sem var á umræddu tímabili veitt tímabundið atvinnuleyfi vegna starfa sem krefjast sérfræðiþekkingar samkvæmt lögum um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, greint eftir störfum.
    Skráning í upplýsingakerfi Vinnumálastofnunar á umræddu tímabili fór ýmist eftir starfaflokkuninni ÍSTARF95 eða ÍSTARF21, en miðað hefur verið við ÍSTARF21 frá árinu 2024. Í ljósi framangreinds hafa sambærileg störf í einhverjum tilvikum verið skráð með mismunandi hætti á umræddu tímabili.

Tafla 4.

Tegund starfa

Fjöldi

112 – Störf forstjóra og framkvæmdastjóra
5
114 – Æðstu stjórnendur hagsmunasamtaka 2
121 – Forstjórar og aðalframkvæmdastjórar stærri fyrirtækja og stofnana 2
121 – Forstjórar og aðalframkvæmdastjórar fyrirtækja og stofnana (10 eða fleiri starfsmenn) 3
121 – Störf stjórnenda í fjármálum, mannauðsmálum og stefnu- og áætlanagerð     2
122 – Störf stjórnenda í þróun, sölu og markaðsmálum 7
122 – Yfirmenn framleiðslu- og rekstrardeilda 23
123 – Yfirmenn annarra deilda 28
131 – Framkvæmdastjórar og forstöðumenn lítilla fyrirtækja og stofnana 7
132 – Störf stjórnenda í framleiðslu, byggingariðnaði, námuvinnslu, samgöngum og flutningum 2
133 – Störf stjórnenda í upplýsinga- og fjarskiptatækni 4
134 – Störf stjórnenda í fræðslustarfsemi, heilbrigðis-, félags- og fjármálaþjónustu 2
141 – Störf stjórnenda í hótel- og veitingarekstri 3
142 – Störf stjórnenda í heildsölu og smásölu 1
211 – Eðlis- og efnafræðingar 58
211 – Sérfræðistörf í eðlis- og efnafræði 3
211 – Sérfræðistörf í eðlis- og jarðvísindum 8
213 – Sérfræðingar á tölvusviði 44
213 – Sérfræðistörf á tölvusviði 14
213 – Sérfræðistörf í lífvísindum 61

214 – Arkitektar og verkfræðingar 74
214 – Sérfræðistörf í arkitektúr og verkfræði 12
214 – Sérfræðistörf í verkfræði (að undanskildum raftæknigreinum) 26
215 – Sérfræðistörf í verkfræði innan raftæknigreina 5
216 – Sérfræðistörf í arkitektúr, skipulagsfræði , landmælingum og hönnun 4
221 – Líffræðingar 120
221 – Sérfræðistörf í líffræði 22
221 – Sérfræðistörf við lækningar 15
222 – Sérfræðingar í heilbrigðisgreinum (nema í hjúkrun) 39
222 – Sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum (aðrir en sérfræðingar við hjúkrun) 15
222 – Sérfræðistörf við hjúkrun 16
223 – Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður 97
223 – Sérfræðingar í hjúkrun 24
225 – Sérfræðistörf við dýralækningar 2
226 – Önnur sérfræðistörf í heilbrigðisgreinum 6
231 – Háskólakennarar 113
231 – Kennsla á háskólastigi 34
231 – Sérfræðistörf við kennslu á háskólastigi 45
232 – Framhaldsskólakennarar 1
232 – Kennsla á framhaldsskólastigi 1
233 – Grunnskólakennarar 4
233 – Kennsla á grunn- og leikskólastigi 3
234 – Sérfræðistörf við kennslu á leik- og grunnskólastigi 6
234 – Sérkennarar 3
235 – Aðrir kennarar og uppeldisfræðingar 1
235 – Önnur sérfræðistörf við kennslu og uppeldisfræði 1
241 – Sérfræðistörf í fjármálum 2
241 – Sérfræðistörf í viðskiptagreinum 5
241 – Viðskiptafræðingar og aðrir sérfræðingar í viðskiptagreinum 18
242 – Lögfræðingar 1
242 – Sérfræðistörf í stjórnun 1
243 – Sérfræðistörf á sviði skjala-, bókasafns- og upplýsingafræði 1
243 – Sérfræðistörf í sölu, markaðsmálum og almannatengslum 4
244 – Sérfræðingar í félags- og hugvísindum 13
245 – Rithöfundar og skapandi eða túlkandi listamenn 32
245 – Störf rithöfunda og skapandi eða túlkandi listamanna 5
246 – Guðfræðingar 1
251 – Sérfræðistörf við þróun og greiningu á hugbúnaði 17
252 – Sérfræðistörf við gagnagrunna og netkerfi 7
262 – Sérfræðistörf í safna- og upplýsingafræði 1
265 – Sérfræðistörf í listum og skapandi greinum 5
311 – Tæknar í raunvísindum og verkfræði 4     
311 – Tækni- og rannsóknarstörf í eðlisfræði, efnafræði og verkfræði 9
311 – Tæknistörf í eðlisfræði 7
312 – Tæknar á tölvusviði 4
312 – Tæknistörf á tölvusviði 8
313 – Myndtæknimenn og rafeindatæknar 1
313 – Tæknistörf við umsjón og eftirlit með framleiðslu og ferlum 1
314 – Sérfræðistörf tengd skipa- og flugsamgöngum 1
314 – Stjórnendur og tæknimenn á skipum og flugvélum 1
314 – Tæknistörf í lífvísindum og landbúnaði 7
315 – Sérhæfð störf í skipa- og flugsamgöngum 1
315 – Öryggis- og gæðaeftirlitsmenn 5
321 – Líftæknar      7
321 – Tækni- og aðstoðarstörf á sviði lækninga og lyfjafræði 5
321 – Tækni- og rannsóknarstörf tengd líffræði, læknisfræði, landbúnaði o.fl. 40
322 – Störf sjúkraliða 11
323 – Sjúkraliðar 3
323 – Störf sjúkraliða 2
324 – Alþýðulæknar og huglæknar 2
325 – Störf annars sérhæfðs starfsfólks í heilbrigðisgreinum 1
331 – Aðstoðarkennsla á grunnskólastigi 1
331 – Sérhæfð störf í fjármálaþjónustu 1
331 – Uppeldisfulltrúar við grunnskóla 1
332 – Leikskólakennarar 1
332 – Sérhæfð innkaupa- og sölustörf 1
334 – Aðrir leiðbeinendur og þjálfarar 5
334 – Störf sérhæfðra fulltrúa og ritara 1
341 – Fjármála- og sölufulltrúar 7
341 – Sérhæfð ráðgjafa- og sölustörf og störf við fjármálaþjónustu 2
342 – Miðlarar og fulltrúar í viðskiptaþjónustu 1
343 – Fulltrúar og ritarar við stjórnun 3
343 – Sérhæfð störf innan lista, menningar og matreiðslu 14
346 – Ráðgjafar í félagsþjónustu 2
347 – Störf við útlitshönnun, kynningu í fjölmiðlum, skemmtanir og íþróttir 2
347 – Útlitshönnuðir, skemmtikraftar og íþróttamenn 3
348 – Störf tengd trúarbrögðum 2
351 – Tæknistörf við kerfisumsjón og notendaþjónustu 3
412 – Skrifstofustörf við útreikninga, talnavinnslu o.þ.h. 2
419 – Önnur almenn skrifstofustörf 2
422 – Skrifstofufólk við upplýsingamiðlun 1
431 – Störf við vinnslu talnagagna 1
432 – Störf við skráningu birgða, framleiðslu og flutninga 1
511 – Farþjónar      8
511 – Þjónustustörf við flutninga og ferðalög 2
512 – Störf við hússtjórn, matseld og framreiðslu á einkaheimilum , stofnunum og veitingahúsum 4
512 – Störf við matseld 2
512 – Þjónustufólk á heimilum og í veitingahúsum 9
513 – Starfsfólk við umönnun 2
514 – Annað starfsfólk við persónulega þjónustu 52
514 – Störf við hárgreiðslu, snyrtingu og tengd störf 2
516 – Önnur störf við þjónustu 1
522 – Sölustörf í verslunum 1
523 – Störf við afgreiðslu og miðasölu 1
524 – Önnur sölustörf 1
532 – Aðstoðar- og umönnunarstörf í heilbrigðis- og félagsþjónustu 1
541 – Gæslu-     , eftirlits- og björgunarstörf 1
611 – Akuryrkju- og garðyrkjubændur 4
622 – Störf við fiskveiðar og aðrar veiðar 1
711 – Störf við byggingar og mannvirkjagerð 2
712 – Byggingarsmiðir 3
713 – Byggingarmenn við frágang 14
713 – Störf byggingarmanna við frágang 1
714 – Málarar og byggingarþvottamenn 15
721 – Málmsmiðir, logsuðumenn , plötusmiðir og stálsmiðir 3
721 – Störf málmsmiða, logsuðumanna , blikksmiða og stálsmiða 1
723 – Störf vélvirkja 2
723 – Störf við uppsetningu og viðgerðir á vélum 5
723 – Vélvirkjar 13
724 – Rafvéla- og rafeindavirkjar 3
724 – Störf rafvéla- og rafeindavirkja 3
734 – Bókagerðarmenn 1
741 – Sérhæft starfsfólk í matvælaiðnaði 172
749 – Aðrir iðnaðarmenn og sérhæft iðnverkafólk ófl.a. 14
751 – Sérhæfð störf í matvælaiðnaði 11
752 – Störf við timburverkun og húsgagnasmíði 1
754 – Störf við annan iðnað 1
825 – Vélafólk við prentun, bókband og pappírsvöruframleiðslu 1
833 – Störf landbúnaðar- og vinnuvélastjóra 1
Ótilgreint 28
     Heimild: Vinnumálastofnun.