Ferill 298. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1004 — 298. mál.
2. umræða.
Nefndarálit
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr. 85/2011 (rafrænt eftirlit o.fl.).
Frá meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá dómsmálaráðuneyti, Barnaheillum, Bjarkarhlíð, héraðssaksóknara, ríkissaksóknara og Stígamótum.
Nefndinni bárust átta umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu er lagt til að bæta við lög um nálgunarbann og brottvísun af heimili, nr. 85/2011, ákvæðum sem heimila lögreglu að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði að ákveðnum skilyrðum uppfylltum, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili. Þá er lagt til að fallið verði frá þeirri kröfu að ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili sé tekin af lögreglustjóra eða fulltrúa hans á heimilisvarnarþingi brotaþola. Þá eru lagðar til breytingar á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, til samræmis við viðurlög við brotum gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með rafrænu eftirliti samkvæmt frumvarpinu er átt við þau tilvik þegar manni, sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili, er gert að hafa á sér staðsetningarbúnað svo unnt sé að sannreyna að hann hlíti þeirri ákvörðun. Heimilt verður að beita slíku rafrænu eftirliti ef grunur er um að sakborningur, sem sætir ákvörðun um nálgunarbann og/ eða brottvísun af heimili, muni brjóta gegn slíkri ákvörðun og rafrænt eftirlit því nauðsynlegt til að tryggja að ákvörðunin verði virt. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að ákvæði um nálgunarbann og brottvísun af heimili hafi hingað til ekki þótt veita þolendum ofbeldis nægilega vernd ein og sér og vísbendingar eru um að erfitt hafi reynst að sanna brot gegn slíkum ákvörðunum með tilheyrandi afleiðingum fyrir brotaþola en án afleiðinga fyrir sakborning. Að því virtu telur meiri hlutinn að rafrænt eftirlit sé nauðsynlegt úrræði til að bregðast við þeim áskorunum sem fylgt hafa nálgunarbanni og brottvísun af heimili í framkvæmd og er til þess fallið að bæta sönnunarfærslu í tengslum við brot gegn ákvörðunum um nálgunarbann og brottvísun af heimili með það að markmiði að auka vernd brotaþola.
Umsagnaraðilar tóku almennt undir markmið frumvarpsins og töldu mikilvægt að auka vernd brotaþola sem og að koma á skilvirkari framkvæmd laganna. Einkum komu fram ábendingar í umsögnum sem snúa að innleiðingu og eftirfylgni verði frumvarpið að lögum. Landssamtökin Þroskahjálp bentu á nauðsyn þess að gæta að því að tekið verði mið af samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Persónuvernd benti á að beiting rafræns eftirlits verði ávallt að vera í samræmi við meginreglur persónuverndarlöggjafar. Þá bentu Kvenréttindafélag Íslands og Stígamót á að við framkvæmd laganna verði að tryggja að brotaþolar verði upplýstir um mál sín og um rétt til að krefjast nálgunarbanns. Þá sé nauðsynlegt að veita fræðslu til fagaðila og þeirra sem líkleg eru til að vera í samskiptum við brotaþola, svo sem starfsfólk bráðamóttöku og lögreglu.
Fyrir nefndinni komu jafnframt fram ábendingar varðandi þær kröfur sem gerðar eru til beitingar nálgunarbanns og brottvísunar af heimili samkvæmt gildandi lögum. Í umsögn Bjarkarhlíðar var bent á að ákveðin hætta sé á því að þær kröfur sem gerðar eru til nálgunarbanns og brottvísunar af heimili kunni að aukast enn frekar þar sem rafrænt eftirlit yrði líklegast talið verulega íþyngjandi ráðstöfun gagnvart sakborningi. Með tilliti til núverandi framkvæmdar laganna væru líkur á að hár þröskuldur fylgdi úrræðinu og hætta á að úrræðið nái þar með ekki markmiði sínu um að vernda brotaþola, nema í allra alvarlegustu tilvikunum. Í því ljósi þurfi að gæta að því að rafrænt eftirlit leiði ekki til minni réttarverndar brotaþola. Í umsögn Stígamóta komu fram sambærileg sjónarmið þar sem bent var á að hingað til hafi verið torsótt að fá nálgunarbann og að það hafi jafnvel ekki veitt það skjól sem til var ætlast. Þá tóku Barnaheill undir umsagnir Bjarkarhlíðar og Stígamóta og bentu jafnframt sérstaklega á rétt barna til að njóta verndar gegn öllu ofbeldi.
Meiri hlutinn hefur skilning á framangreindum sjónarmiðum og undirstrikar að heimild til að beita rafrænu eftirliti eigi ekki að verða til þess að gerðar verði auknar kröfur fyrir beitingu verndarúrræða á grundvelli laganna. Meiri hlutinn undirstrikar að með frumvarpinu sé verið að bregðast við vandkvæðum sem fylgt hafa framkvæmd laganna, svo sem í tengslum við að sanna brot sakborninga gegn nálgunarbanni og/eða brottvísun af heimili. Meiri hlutinn telur að breytingin muni styrkja sönnunarfærslu vegna brota og geti þar með gert úrræðin virkari og leitt til aukinna varnaðaráhrifa. Með rafrænu eftirliti samkvæmt frumvarpinu sé því ekki ætlunin að auka þær kröfur sem gerðar eru til nálgunarbanns og brottvísunar af heimili heldur að bæta enn frekar vernd brotaþola. Það sjónarmið skal liggja til grundvallar að ábyrgð á heimilisofbeldi og umsáturseinelti eigi að liggja hjá sakborningi en ekki brotaþola. Meiri hlutinn telur jafnframt ástæðu til að taka tillit til framangreindra ábendinga við endurskoðun fyrirmæla ríkissaksóknara nr. 1/2024, um nálgunarbann og brottvísun af heimili, með það að markmiði að tryggja skilvirka framkvæmd í samræmi við markmið frumvarpsins.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
Snorri Másson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 26. mars 2026.
| Víðir Reynisson, form. |
Grímur Grímsson, frsm. |
Guðmundur Ari Sigurjónsson. |
| Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir. | Sandra Sigurðardóttir. | Sigurður Örn Hilmarsson. |