Ferill 457. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1007 — 457. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.
1. Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum?
Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga fyrir árið 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka, sjá töflu hér á eftir.
Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög fyrir árið 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértækri hagræðingu fyrir ríkisaðila í heild. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög fyrir árið 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætis- og fjármála- og efnahagsráðuneytis 1 frá desember 2025.
Í þessu samhengi er rétt að taka fram að margt af því sem lögð er áhersla á í tillögum hópsins, svo sem sameiningar stofnana, samrekstur og fækkun nefnda, var að miklu leyti þegar komið til framkvæmda í utanríkisþjónustunni.
| Hagræðingaraðgerð | Staða
|
Áætluð hagræðing 2025 (millj. kr.) |
| Endurskoðun og fækkun áskrifta að tímaritum og annarri upplýsingaöflun | Í vinnslu | 3,5 |
| Greiðslu ferðakostnaðar fyrir önnur ráðuneyti verði hætt | Lokið | 3,0 |
| Þjónusta við útsenda fulltrúa annarra ráðuneyta og stofnana | Í vinnslu | 32,8 |
| Breytt fyrirkomulag viðburðastjórnunar og fundaraðstaða fyrir utanaðkomandi | Ekki hafið | 3,0 |
| Hætt að prenta frumvörp, skýrslur o.þ.h. (hluti af tillögum starfshóps forsætisráðherra) | Í vinnslu | 1,0 |
| Draga úr tímamældri yfirvinnu | Lokið | 8,0 |
| Draga úr útgáfu nafnspjalda | Lokið | 0,7 |
| Utanríkisráðuneytið taki alfarið að sér útgáfu Schengen-vegabréfaáritana | Frumvarp liggur fyrir Alþingi | - |
2. Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum?
Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmdar fjárlaga. Hvert ráðuneyti ber ábyrgð á að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins 2 , á undirsíðunni Hagsýni í ríkisrekstri, er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að öll ráðuneyti birti tvisvar yfir árið yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september 2025 og vísast til fyrrnefndrar vefsíðu.
Meðfylgjandi er yfirlit yfir sértækar hagræðingaraðgerðir sem beint var til ráðuneytisins og hvernig þær eru útfærðar, en auk þessa var gerð almenn hagræðingarkrafa til málefnasviða ráðuneytisins sem nam 134,5 millj. kr. sem einnig var lögð til grundvallar við gerð rekstraráætlunar ársins.
| Málaflokkur | Hagræðingaraðgerð | Áætluð hagræðing 2026 (millj. kr.) |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: 3% aðhald á aðalskrifstofur | 67,0 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Jafnlaunavottun endurskoðuð | 2,8 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Opinber innkaup (aðalskrifstofa) | 6,6 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Opinber innkaup (sendiráð) | 18,6 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Prentun þingskjala verði hætt | 3,2 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Rekstrarhagræðing á aðalskrifstofu og í sendiráðum: Aðalskrifstofa | 54,5 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Rekstrarhagræðing á aðalskrifstofu og í sendiráðum: Sendiráð | 53,0 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Rekstrarhagræðing á aðalskrifstofu og í sendiráðum: Ýmis verkefni, annað | 1,5 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Rekstrarhagræðing á aðalskrifstofu og í sendiráðum: Ýmis verkefni, norðurslóðir | 3,0 |
| 04.10 Utanríkisþjónusta og stjórnsýsla utanríkismála | Sértæk hagræðing: Varasjóðir málaflokka – lækkun | 122,1 |
| 04.20 Utanríkisviðskipti | Sértæk hagræðing: Íslandsstofa | 81,0 |
| 04.30 Samstarf um öryggis- og varnarmál | Sértæk hagræðing: Rekstrarhagræðing á aðalskrifstofu og í sendiráðum: Varnarmál | 60,0 |
| 35.10 Þróunarsamvinna | Sértæk hagræðing: Opinber innkaup | 2,4 |
1 www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/Umb%c3%a6tur%20og%20hagr%c3%a6%c3%b0ing%20%c3%ad%20r%c3%adkisrekstri.pdf
2 www.stjornarradid.is/verkefni/rekstur-og-eignir-rikisins/hagsyni-i-rikisrekstri-/