Ferill 481. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1011  —  481. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvernig skilgreinir ráðuneytið hagsmunagæslu fyrir Ísland?
     2.      Hvernig fer fram mat á því hvernig hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar skuli háttað hverju sinni?
     3.      Hvernig eru forgangsmál hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar ákveðin og á hvaða forsendum?
     4.      Hvernig fer þessi vinna fram og með aðkomu hverra?
     5.      Hver hafa forgangsmál í hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar verið frá 21. desember 2024 þegar ný ríkisstjórn tók við?


    Líkt og fram kemur í lögum um utanríkisþjónustu Íslands gætir utanríkisráðuneytið í hvívetna hagsmuna Íslands gagnvart öðrum ríkjum. Utanríkisþjónustan gætir einkum hagsmuna Íslands að því er snertir stjórnmál og öryggismál, utanríkisviðskipti og menningarmál. Þá annast utanríkisþjónustan í umboði forseta samningagerðir við önnur ríki, nema þar frá sé gerð undantekning í lögum eða forsetaúrskurði. Þá veitir utanríkisþjónustan einnig ríkisborgurum vernd og aðstoð gagnvart erlendum stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum.
    Hagsmunagæsla utanríkisþjónustunnar grundvallast jafnan á stefnuyfirlýsingu sitjandi ríkisstjórnar, stefnumarkandi ákvörðunum Alþingis sem og langtíma áherslum sem mótast hafa í tímans rás. Hún tekur enn fremur mið af aðstæðum á hverjum tíma. Hagsmunagæsla innan EES-samstarfsins er unnin á grundvelli sérstaks forgangslista 1 sem, ásamt fríverslunar-, viðskipta- og fiskveiðisamningagerð, er unnin í samstarfi við önnur ráðuneyti innan Stjórnarráðsins, fyrirtæki, launþega og samtök þeirra.
    Áherslum í hagsmunagæslu utanríkisþjónustunnar frá því að ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins tók við 21. desember 2024 er m.a. lýst í þskj. 465, 371. mál á 156. löggjafarþingi 2025 2 , skýrslu utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál, en þar segir um utanríkisþjónustuna að hún sé framvörður þjóðarinnar í stöðugri og margbreytilegri hagsmunagæslu um varðveislu alþjóðakerfisins og þeirra grunngilda sem það byggir á. Utanríkisþjónustan vinni að vörnum og öryggi landsins og styðji við fátækustu ríkin með þróunarsamvinnu og mannúðaraðstoð. Hún styðji við markaðsaðgang fyrir íslensk fyrirtæki um allan heim og standi varðstöðu um það ferða- og athafnafrelsi sem við njótum á alþjóðavettvangi. Hún aðstoði Íslendinga og íslensk fyrirtæki erlendis og greiði leið erlendra ferðamanna til Íslands með afgreiðslu vegabréfsáritana í þúsunda tali.
    Líkt og fram kemur í fyrrnefndri skýrslu utanríkisráðherra situr Ísland ekki hjá á þeim umrótatímum sem við nú lifum á heldur stendur staðfastlega með friði, frelsi, mannréttindum, opnum viðskiptum og skýrum leikreglum.


1      www.althingi.is/altext/pdf/157/fylgiskjol/s1011-f_I.pdf
2     www.althingi.is/altext/pdf/156/s/0465.pdf