Ferill 482. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1020 — 482. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um nýtt sendiráð Íslands í Madríd.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er heildarkostnaður við opnun sendiráðs Íslands í Madríd? Svar óskast sundurliðað eftir öllum tilfallandi kostnaði frá því að ákvörðun var tekin um opnun, þ.m.t. við embættisbústað, sendiráð, flutninga, ráðgjöf og annað það sem tengist opnun sendiráðsins.
Í fjárlögum fyrir árið 2025 var gert ráð fyrir auknum fjárheimildum vegna fyrirhugaðrar opnunar sendiráðs á Spáni. Gert var ráð fyrir að heildarkostnaður yrði um 177 millj. kr. fyrir árið, en að hluti þessara útgjalda, 45 millj. kr., væru tímabundin og til þess að mæta stofnkostnaði.
Heildarkostnaður við opnun og rekstur sendiráðs Íslands í Madríd nam 126,5 millj. kr. á árinu 2025. Þetta er nokkru lægra en áætlunin gerði ráð fyrir, enda hófst starfsemi í Madríd ekki fyrr en um mitt ár og var sendiráðið opnað formlega í desember. Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður og útgjöld vegna stofnkostnaðar muni rúmast innan þess sem ætlað hefur verið til verkefnisins á síðasta og yfirstandandi ári.
Í töflunni hér fyrir neðan er yfirlit yfir hvernig kostnaður skiptist vegna opnunar sendiráðs Íslands á Spáni.
| Kostnaður | Fjárhæð |
| Embættisbústaður | 32.177.159 |
| Sendiráð, rekstur | 28.946.715 |
| Laun | 31.856.457 |
| Ferðakostnaður | 822.114 |
| Ráðgjöf | 7.876.110 |
| Framkvæmdir í sendiráði | 20.080.841 |
| Viðburðir í kringum opnun | 3.029.714 |
| Annað sem tengist opnun | 1.700.465 |
| Samtals | 126.489.575 |