Ferill 594. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1023 — 594. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um útlendinga og lögreglulögum (verndarsamkomulag Evrópusambandsins).
Frá dómsmálaráðherra.
I. KAFLI
Breyting á lögum um útlendinga, nr. 80/2016.
1. gr.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Ákvæði III., V. og VII. hluta reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351 frá 14. maí 2024 um stjórnun verndarmála og fólksflutninga, um breytingu á reglugerðum (ESB) 2021/1147 og (ESB) 2021/1060 og um niðurfellingu á reglugerð (ESB) nr. 604/2013 og ákvæði 12. og 13. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 frá 14. maí 2024 um að taka á neyðarástandi og óviðráðanlegum atvikum á sviði fólksflutninga og verndarmála og um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/1147, ásamt 1.–6. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 að því marki sem þær tengjast 12. og 13. gr., skulu hafa lagagildi hér á landi, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 6/2026.
5. gr.
Skylda umsækjanda til samvinnu.
Skortur á samvinnu umsækjanda getur, að teknu tilliti til atvika máls og í samræmi við meginreglur stjórnsýsluréttar, haft áhrif á meðferð máls, þar á meðal fresti og hraða málsmeðferðar.
Ráðherra getur sett nánari ákvæði um framkvæmd þessa ákvæðis í reglugerð.
6. gr.
7. gr.
Lögfesting reglugerðar (ESB) um evrópska fingrafaragrunninn.
8. gr.
Ljósmyndir og fingraför.
a. getur ekki fært sönnur á hver hann er eða ef ástæða er til að ætla að útlendingurinn gefi rangar upplýsingar um hver hann er,
b. sækir um alþjóðlega vernd eða hefur verið synjað um alþjóðlega vernd,
c. kemur til landsins í boði stjórnvalda skv. 43. gr.,
d. er tekinn í ólögmætri för yfir ytri landamæri,
e. hefur verið vísað frá landi eða úr landi,
f. dvelst ólöglega á landinu.
Andlitsmyndir og fingraför sem tekin eru skv. 1. mgr., ásamt öðrum persónuupplýsingum sem auðkenna útlending, er heimilt að skrá í evrópska fingrafaragrunninn samkvæmt nánari reglum sem kveðið er á um í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1358 frá 14. maí 2024 um stofnun evrópska fingrafaragrunnsins „Eurodac“, sbr. 110. gr. a.
Heimild 2. mgr. gildir um útlendinga sem hafa náð sex ára aldri.
9. gr.
a. Við 1. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Málsmeðferð og framkvæmd við að ákvarða hvaða ríki ber ábyrgð á meðferð umsóknar um alþjóðlega vernd samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1351, þar á meðal um viðmiðanir og það fyrirkomulag sem liggur til grundvallar slíkri ákvörðun.
b. 41. tölul. 2. mgr. orðast svo: Evrópskan fingrafaragrunn, svo sem um skráningu, persónuvernd við skráningu og meðferð upplýsinga í grunninum, um ábyrgð og aðgang að fingrafaragrunninum og sannprófunarstjórnvald.
c. Við 2. mgr. bætist nýr töluliður, svohljóðandi: Framkvæmd 36. gr. a, þar á meðal um skyldu umsækjenda til samvinnu og áhrif skorts á samvinnu á málsmeðferð.
II. KAFLI
Breyting á lögreglulögum, nr. 90/1996.
10. gr.
a. Í stað orðanna „skiptast á“ í 1. málsl. 2. mgr. kemur: skiptast með sjálfvirkum hætti á andlitsmyndum.
b. Á eftir 2. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi:
3. Lögregla skal, í löggæslutilgangi, hafa aðgang að upplýsingakerfum Evrópusambandsins, svo sem komu- og brottfararkerfinu, ferðaupplýsinga- og ferðaheimildakerfinu, upplýsingakerfi um vegabréfsáritanir og sameiginlega auðkennasafninu, í samræmi við lög um landamæri og reglur sem settar eru á grundvelli þeirra.
11. gr.
Þrátt fyrir 1. mgr. öðlast 4. gr. gildi 12. júní 2026 að því er varðar lögfestingu ákvæða 12. og 13. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 frá 14. maí 2024 um að taka á neyðarástandi og óviðráðanlegum atvikum á sviði fólksflutninga og verndarmála og um breytingu á reglugerð (ESB) 2021/1147, ásamt 1.–6. gr. reglugerðar (ESB) 2024/1359 að því marki sem þær tengjast 12. og 13. gr. Ákvæði 7.–10. gr. öðlast einnig gildi 12. júní 2026.
Greinargerð.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.