Ferill 517. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1044 — 517. mál.
Svar
mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Höllu Hrund Logadóttur um meðferðarúrræði fyrir ungmenni sem glíma við geð- og fíknivanda.
1. Hvenær telur ráðherra að hægt verði að bjóða upp á markvissa, samþætta og heildstæða meðferð fyrir ungmenni sem glíma við geð- og fíknivanda og hvaða aðilar bera ábyrgð á innleiðingu og rekstri slíkra úrræða?
Samkvæmt barnaverndarlögum, nr. 80/2002, ber Barna- og fjölskyldustofa, í umboði mennta- og barnamálaráðuneytisins, ábyrgð á að tryggja að tiltæk séu heimili og stofnanir fyrir börn sem þurfa sérhæfða meðferð vegna vímuefnavanda, alvarlegs hegðunarvanda og afbrotahegðunar. Sú þjónusta sem veitt er af Barna- og fjölskyldustofu er stigskipt og fer eftir þörfum barns og fjölskyldunnar. Vistun á meðferðarheimili er íþyngjandi úrræði og því þarf að meta sérstaklega í hverju tilviki hvort hún sé viðeigandi og líkleg til árangurs. Heilbrigðisþjónusta, þar á meðal meðferð og önnur sérhæfð heilbrigðisúrræði vegna geð- og vímuefnavanda er á ábyrgð heilbrigðisyfirvalda samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007.
Þann 29. desember 2025 skipaði forsætisráðherra starfshóp um málefni barna með vímuefnavanda, í samráði við heilbrigðisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og mennta- og barnamálaráðherra. Meginhlutverk starfshópsins var að fjalla um hvernig efla megi samhæfingu milli málefnasviða stjórnvalda sem tengjast þjónustu við börn með vímuefnavanda og leggja fram tillögur um úrbætur. Áfram verður byggt á núverandi lagaramma um ábyrgðaskiptingu en lögð áhersla á að styrkja samstarf, skýra verkaskiptingu og efla samfellda þjónustu milli kerfa.
Starfshópurinn hefur nú skilað skýrslu til forsætisráðherra, sem er aðgengileg á stjornarradid.is, og lagt fram tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við þennan hóp barna. Í tillögum starfshópsins felast bæði lausnir sem geta komið til framkvæmda nú og lausnir til framtíðar. Tillögurnar eru í sjö liðum og eru eftirfarandi: lagabreytingar sem tryggja börnum í vistunarúrræðum á vegum ríkisins viðeigandi aðgengi að heilbrigðisþjónustu, stofnun stýrihóps um framtíðarskipulag meðferðarúrræða, aukið eftirlit með meðferðarúrræðum, stofnun samþætts matsteymis sem velur viðeigandi vistunarúrræði, vinna að uppbyggingu fíknigeðdeildar fyrir börn, mótun skipulags og uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum á vegum ríkisins, en sú vinna er nú þegar hafin, og tryggja að börn hafi aðgang að sérhæfðri meðferð þegar þörf krefur, þ.m.t. erlendis. Verði tillagan um sérhæfða meðferð erlendis að veruleika er um tímabundna lausn að ræða eða þar til sambærileg úrræði hafa verið byggð upp hér á landi. Gert er ráð fyrir að stýrihópur um framtíðarskipulag meðferðarúrræða fylgi eftir tillögum skýrslunnar og hefur hann nú þegar tekið til starfa.
Samhliða störfum hópsins hefur staðið yfir vinna við ný heildarlög um barnavernd í ráðuneytinu og voru niðurstöður starfshópsins tengdar þeirri vinnu. Mennta- og barnamálaráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi 26. mars sl. Ýmis ákvæði frumvarpsins miða að því að efla samvinnu og styrkja samfellu milli barnaverndar og heilbrigðisþjónustu ásamt því að skýra ábyrgð þessara þjónustukerfa þegar kemur að meðferð við vímuefnavanda. Verði frumvarpið að lögum er gert ráð fyrir að þau taki gildi 1. janúar 2027. Frumvarpið gerir jafnframt ráð fyrir að settar verði reglugerðir sem lúta að skipulagi og framkvæmd samþættrar þjónustu og meðferðarúrræða fyrir börn með samsettan geð- og vímuefnavanda.
Með hliðsjón af framangreindu, þ.e. innleiðingu tillagna starfshópsins, lagasetningu og frekari útfærslu í reglugerðum, er markmiðið að tryggja að börn með alvarlegan og samsettan vanda hafi aðgang að samfelldri, samþættri og viðeigandi þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra. Í skýrslu starfshópsins er miðað við að þær tillögur sem lagðar eru fram til úrbóta í þessum efnum komi til framkvæmda á árunum 2026 og 2027, og hefur stýrihópur um framtíðarskipulag meðferðarúrræða og eftirfylgni tekið til starfa. Til að mynda er nú þegar hafin vinna við mótun skipulags og uppbyggingu heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum á vegum ríkisins, auk þess sem tillögurnar miða að því að hægt verði að veita börnum aðgang að sérhæfðri meðferð erlendis á næstu misserum.
Þá er rétt að taka fram að unnið er að frekari uppbyggingu og þróun meðferðarúrræða á vegum Barna- og fjölskyldustofu fyrir börn sem glíma við vímuefnavanda og hegðunarvanda, þar með talið afbrotahegðun, m.a. með uppbyggingu nýs meðferðarheimilis á höfuðborgarsvæðinu. Í því samhengi er m.a. til skoðunar framtíðarfyrirkomulag neyðarvistunar og grunnmeðferðar með það að markmiði að bæta þjónustu við þennan hóp.
2. Telur ráðherra að leysa þurfi vandamál tengd rofi á þjónustu við 18 ára aldur sem getur grafið undan bataferli og aukið líkur á fráhvarfi úr meðferð og bakslagi?
Samkvæmt gildandi barnaverndarlögum falla úrræði barnaverndar almennt niður við 18 ára aldur, en þó er heimilt að framlengja tilteknar ráðstafanir, með samþykki barnsins, allt til 20 ára aldurs. Þá tekur þjónusta fullorðinna við á grundvelli annarrar viðeigandi löggjafar, einkum á sviði heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Þótt barnaverndarlög geri ráð fyrir eftirfylgd og heimild til að framlengja tiltekin úrræði fram yfir 18 ára aldur er ekki kveðið nægilega skýrt á um skipulagða og tímasetta yfirfærslu á þjónustu við þessi tímamót. Í fyrirliggjandi frumvarpi til nýrra laga um barnavernd er hins vegar kveðið skýrar á um yfirfærslu þjónustu við 18 ára aldur, og eftir atvikum við lok framlengdra úrræða, m.a. með því að undirbúningur skuli hefjast eigi síðar en þremur mánuðum áður en barn nær 18 ára aldri og að tryggð verði markviss miðlun upplýsinga og samfella í þjónustu yfir í kerfi fullorðinna.
3. Telur ráðherra raunhæft að ríkið fjármagni og bjóði upp á sambærileg úrræði erlendis á meðan beðið er eftir heildstæðum lausnum hérlendis? Ef svo er, hver væru viðmið, fjöldi, kostnaðarrammi og eftirfylgni þeim tengd?
Lagt er til í niðurstöðum starfshóps forsætisráðherra um málefni barna með vímuefnavanda að nýta tímabundið sérhæft meðferðarúrræði erlendis fyrir afmarkaðan hóp barna með bráðan alvarlegan vímuefnavanda á meðan unnið er að uppbyggingu sambærilegra úrræða hér á landi. Samkvæmt tillögum starfshópsins er gert ráð fyrir að slík úrræði geti komið til framkvæmda á árinu 2026.
Gert er ráð fyrir að aðgengi að meðferð erlendis byggi á skýrum viðmiðum og faglegu mati. Í því skyni er lagt til að komið verði á fót samþættu matsteymi með þátttöku Barna- og fjölskyldustofu, viðkomandi barnaverndarþjónustu og Landspítala sem meti þjónustuþörf barns og leggi til viðeigandi úrræði, þar á meðal hvort meðferð erlendis sé nauðsynleg. Samkvæmt tillögum starfshópsins er ábyrgðin hjá heilbrigðisráðuneytinu, í nánu samstarfi við mennta- og barnamálaráðuneyti, Barna- og fjölskyldustofu, Landspítala og Sjúkratryggingar Íslands. Þau úrlausnarefni sem á eftir að leysa úr eru m.a. að gera samninga við viðeigandi meðferðarstofnun erlendis, skilgreina viðmið og tryggja nauðsynlega fjármögnun.
Ekki liggur fyrir endanlegur fjöldi barna eða kostnaður á þessu stigi, enda ræðst umfang slíkrar þjónustu af þörfum hverju sinni og þeim viðmiðum sem á eftir að skilgreina. Hvað varðar eftirfylgni er gert ráð fyrir að hún verði tryggð með samfelldu samstarfi barnaverndar og heilbrigðisþjónustu, bæði meðan á meðferð stendur og að henni lokinni. Sérstök áhersla verður lögð á að undirbúa heimkomu barns og tryggja áframhaldandi þjónustu hér á landi, þannig að árangur meðferðar nýtist til lengri tíma.
4. Liggja fyrir skýr markmið, mælikvarðar og framkvæmdaáætlun í fjárlögum yfirstandandi árs um úrbætur á meðferðarúrræðum vegna geð- og fíknivanda ungmenna og hvaða ný eða styrkt úrræði verða fjármögnuð, fyrir hversu marga og með hvaða eftirfylgni?
Ekki er að finna umfjöllun um markmið eða mælikvarða um úrbætur á meðferðarheimilum vegna geð- og vímuefnavanda ungmenna sem rekin eru á vegum Barna- og fjölskyldustofu í fjárlögum yfirstandandi árs. Þá er almennt ekki fjallað um framkvæmdaáætlanir í fjárlögum. Meðferðarheimilið Lækjarbakki opnaði að nýju í Gunnarsholti í byrjun mars 2026 eftir að hafa verið lokað síðan síðla árs 2024 vegna myglu. Þar fer fram framhaldsmeðferð fyrir drengi og stálp og eru vistunarplássin sex. Þá vinnur ráðuneytið að frekari uppbyggingu og þróun meðferðarúrræða m.a. með uppbyggingu nýs meðferðarheimilis á höfuðborgarsvæðinu og mótun framtíðarfyrirkomulags neyðarvistunar. Í fjárlögum ársins 2026 er gert ráð fyrir 1,1 milljarði kr. til uppbyggingar á þessu sviði. Áfram verður gert ráð fyrir uppbyggingu meðferðarúrræða í næstu fjárlögum.
Í tillögum starfshóps forsætisráðherra um málefni barna með vímuefnavanda eru lagðar fram heildstæðar tillögur um úrbætur í þjónustu við þennan hóp barna, þar sem skilgreind eru markmið, ábyrgðaraðilar og tímaáætlanir. Þar er m.a. gert ráð fyrir lagabreytingum sem skýra ábyrgð og aðkomu heilbrigðisþjónustu að vistunarúrræðum barnaverndar, skipun stýrihóps sem hefur það hlutverk að móta og innleiða samþætta þjónustu, skilgreina gæðaviðmið og fjármögnun, auk þess sem lagt er til að komið verði á fót samþættu matsteymi og tryggt aðgengi að sérhæfðri meðferð, eftir atvikum erlendis. Tillögurnar fela þannig í sér skýra stefnumótun um markmið, ábyrgð og innleiðingu á árunum 2026–2027. Þær gera einnig ráð fyrir að mótaðir verði mælikvarðar og fyrirkomulag árangursmats, m.a. á vettvangi fyrirhugaðs stýrihóps.
Tillögur starfshópsins byggjast á því að frumvarp til nýrra laga um barnavernd verði samþykkt á yfirstandandi þingi og taki gildi 1. janúar 2027 en þau eru fjármögnuð. Í frumvarpinu er m.a. lagt til að komið verði á fót barnverndarráði sem sjálfstæðu stjórnvaldi á vegum ríkisins sem tekur við hlutverki umdæmisráða barnaverndar og hluta af verkefnum sérfræðingateymis. Rekstur og starfsemi barnaverndarráðs verður fjármagnað af ríkinu sem felur í sér tilfærslu kostnaðar frá sveitarfélögum til ríkissjóðs. Þessi breyting skapar þannig aukið svigrúm fyrir sveitarfélög til að efla barnaverndarþjónustu. Í skýrslu starfshópsins er gert ráð fyrir að stýrihópur, sem tekið hefur til starfa, hafi það hlutverk að fara yfir fjárhagslegar forsendur tillagnanna, styðji við forgangsröðun og innleiðingu þeirra og meti þörf á breytingum eða viðbótarfjármagni.