Ferill 606. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1048 — 606. mál.
Álit stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
um skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítala - Mönnun og flæði sjúklinga.
Með bréfi, dags. 1. júlí 2025, sendi forseti Alþingis skýrslu Ríkisendurskoðunar um Landspítala, mönnun og flæði sjúklinga, til umfjöllunar stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar í samræmi við 2. gr. reglna um þinglega meðferð skýrslna Ríkisendurskoðunar, sbr. 8. tölul. 1. mgr. 13. gr. laga um þingsköp Alþingis. Í skýrslunni er að finna niðurstöður stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar um mönnun heilbrigðisstétta og flæði sjúklinga í starfsemi Landspítala. Úttektin er unnin að frumkvæði Ríkisendurskoðunar.
Nefndin fjallaði um skýrsluna á fundum sínum og fékk til sín gesti frá Ríkisendurskoðun, félags- og húsnæðismálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti og Landspítalanum.
Meginniðurstöður skýrslunnar.
Um árabil hafa verið uppi áskoranir tengdar mönnun heilbrigðisstétta og flæði sjúklinga á Landspítala. Aðgerðir sem heilbrigðisráðuneyti og spítalinn hafa ráðist í hafa sumar skilað árangri en heildaráhrif þeirra hafa þó verið takmörkuð og frekari aðgerða er þörf. Heildarfjöldi stöðugilda fjölmennustu heilbrigðisstétta hefur vaxið og merki eru um aukin afköst spítalans. Engu að síður hefur ekki reynst mögulegt að fullmanna þau stöðugildi sem fjárhagsáætlanir gera ráð fyrir. Úrbætur á flæði sjúklinga hafa sömuleiðis ekki skilað þeim árangri sem að var stefnt. Að mati Ríkisendurskoðunar verður að horfa í auknum mæli til stjórnunar. Efla þarf miðlæga ferla og stjórnunarkerfi spítalans, ekki síst með áherslu á áætlanagerð um mönnun, útfærslu á vinnuskipulagi og samræmda stjórn og eftirlit með mannauðsmálum.
Að mati Ríkisendurskoðunar setur skipulag heilbrigðisþjónustunnar Landspítala ýmsar skorður. Ríkisendurskoðun lítur svo á að úrræðaleysi og kerfisleg lausatök hafi einkennt viðbrögð yfirstjórnar heilbrigðismála við áskorunum tengdum mönnun og afkastagetu Landspítala og heilbrigðisþjónustunnar í heild. Heilbrigðisráðuneyti þurfi að styrkja yfirstjórn sína, bæði í stefnumótun og virkri yfirsýn um heilbrigðiskerfið. Brýnt sé að ráðast í heildræna skipulagningu á mönnun heilbrigðisþjónustunnar með markvissri samhæfingu.
Ríkisendurskoðun leggur áherslu á að heilbrigðisráðuneyti og Landspítali leiti leiða til að styrkja mönnun spítalans til framtíðar. Auknu álagi þurfi að mæta með því að nýta sem best starfskrafta heilbrigðisstétta, m.a. með innleiðingu heilbrigðistækni, endurskoðun á verkaskiptingu og með því að draga úr eftirspurn eftir þjónustu spítalans eins og kostur er, bæði með markvissum lýðheilsuaðgerðum og eflingu úrræða utan hans.
Einn af stærstu áhrifaþáttum á flæði sjúklinga innan Landspítala er sá fjöldi sem dvelur þar og er með færni- og heilsumat en bíður þess að fá vist á hjúkrunarheimili. Stefna stjórnvalda um að veita þessum einstaklingum þjónustu á viðeigandi þjónustustigi hefur ekki náð fram að ganga, fyrst og fremst vegna skorts á hjúkrunarrýmum og töluverð óvissa er um hvort fyrirhuguð fjölgun rýma nái að svara væntri þörf. Ríkisendurskoðun bendir á að ársskýrslur ráðherra árin 2019–2023 hafi ekki með glöggum og greinargóðum hætti greint frá þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin.
Að mati Ríkisendurskoðunar er mikilvægt að aðgerðaáætlanir sem heilbrigðisráðherra leggur fram árlega til að hrinda í framkvæmd heilbrigðisstefnu hafi skýrari tengingu við gerð fjármálaáætlana og fjárlaga hvers tíma og þá stefnumiðuðu áætlanagerð ríkisaðila sem fer fram innan ramma laga um opinber fjármál. Annars hafi þær ekki næga burði sem stefnumótunarskjöl og eftirfylgni með árangri þeirra takmörkuð.
Á grundvelli úttektarinnar beinir Ríkisendurskoðun fimm ábendingum sameiginlega til heilbrigðisráðuneytis og Landspítala, fimm ábendingum til Landspítala, tveimur ábendingum til heilbrigðisráðuneytis og einni ábendingu til félags- og húsnæðismálaráðuneytis.
Umfjöllun nefndarinnar.
Mönnun heilbrigðisþjónustunnar.
Í skýrslunni er rakið alvarlegt ástand mönnunar heilbrigðisstétta. Sú staða er ekki nýtilkomin en margir aðilar, þar á meðal ráðherrar í gegnum tíðina, ýmsar stofnanir og Landspítalinn sjálfur, hafa áður varað við alvarlegri mönnunarstöðu. Í áskorun fagráðs Landspítalans frá 11. ágúst 2021 til stjórnvalda kom fram að mönnun spítalans hefði verið áskorun árum saman. Þá gerði embætti landlæknis athugasemdir við mönnun í öllum úttektum sínum sem beindust að Landspítalanum á árunum 2018–2024. Þó að staðan sé misjöfn milli starfsstétta sé um greinilega undirmönnun að ræða. Til að bregðast við þessu hefur Landspítalinn þurft að grípa til ýmissa úrræða, t.d. með aukinni yfirvinnu starfsfólks og með því að manna stöður með ófaglærðu starfsfólki. Samkvæmt upplýsingum Landspítalans hefur mönnunarvandinn komið niður á framleiðni og afköstum spítalans, m.a. á fjölda aðgerða og loka hefur þurft skurðstofum vegna tímabundinnar manneklu.
Mönnun heilbrigðisþjónustu er ekki aðeins áskorun fyrir Ísland heldur standa flest ríki einnig frammi fyrir slíkum áskorunum. Mikil samkeppni er um heilbrigðisstarfsfólk og atvinnumöguleikar þess utan Landspítala hafa aukist hér á landi sem og erlendis. Nokkur fjöldi starfsfólks hefur hætt störfum eða minnkað starfshlutfall sitt til að starfa utan spítalans á undanförnum árum með tilheyrandi áskorunum. Sjúklingum hefur fjölgað og flest bendir til þess að álag á heilbrigðisþjónustu muni aukast á næstu árum, m.a. vegna hækkandi lífaldurs þjóðarinnar og aukinnar tíðni lífsstílstengdra sjúkdóma. Nefndin telur það löngu vera orðið aðkallandi að leitað verði allra leiða til að fjölga starfsfólki í heilbrigðisþjónustu, auka starfshlutfall þess og snúa við atgervisflótta.
Í skýrslunni kemur fram að þáverandi heilbrigðisráðherra hafi skipað þrjá starfshópa árið 2019 um menntun heilbrigðisstétta, þ.e. lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða. Auk þess var skipaður sérstakur starfshópur um betri mönnun hjúkrunarfræðinga en skortur á hjúkrunarfræðingum var að mati ráðuneytisins einn meginvandi Landspítalans varðandi getu til að takast á við aukið álag. Þessir starfshópar skiluðu skýrslum og tillögum til ráðherra og samkvæmt ráðuneytinu hefur stór hluti þeirra tillagna komist til framkvæmda eða er í vinnslu. Fyrir nefndinni kom fram að sjá megi ákveðinn árangur af þeim tillögum sem komnar eru til framkvæmda. Aðrar munu taka lengri tíma og eru enn í vinnslu bæði í ráðuneytinu og hjá landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu. Það vakti athygli Ríkisendurskoðunar að ekki lá fyrir tæmandi yfirlit um stöðu allra tillagna þó svo að haldið væri utan um úrvinnslu þeirra.
Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir að grunnmönnunaráætlanir spítalans taki mið af faglegum forsendum hafi mönnunarlíkön lítið þróast undanfarin ár. Er svo komið að mönnunarþátturinn ræðst af forsendum fjárhagsáætlunar hvers árs frekar en að fjárhags- og rekstraráætlanir séu lagðar fram á grundvelli mönnunarviðmiða fyrir þá þjónustu sem spítalinn ætti að veita. Útfærðar kröfur eða leiðbeiningar um greiningar á mannaflaþörf og mönnunaráætlanir eru ekki til staðar en spítalinn og heilbrigðisráðuneyti hafa hafið slíka vinnu fyrir tilteknar greinar.
Í skýrslunni og fyrir nefndinni tók Landspítali undir mikilvægi þess að áfram verði unnið að þróun mönnunarlíkana sem byggja á faglegum og raunhæfum forsendum þannig að unnt sé að manna starfsemina með fullnægjandi hætti. Jafnframt telur spítalinn brýnt að þróuð verði mönnunarviðmið. Landspítalinn tók þó ekki undir það sjónarmið að fjárhagslegar forsendur hafi verið ráðandi þáttur við gerð og þróun mönnunarlíkana þótt vissulega hafi fjárhagsleg sjónarmið haft umtalsverð áhrif. Heilt yfir byggi mönnun klínískra eininga á faglegum forsendum sem miða að því að tryggja gæði og öryggi þjónustunnar. Innan Landspítala hafi verið ráðist í umfangsmikil verkefni sem miða að endurskoðun mönnunar allra eininga, nýtingu gagna við mat á þörf fyrir stöðugildi og þróun nýrra mönnunarlíkana. Vinna við skilgreiningu mönnunarviðmiða stendur nú yfir hjá Landspítala og ráðuneytinu og hefur spítalinn notið ráðgjafar KPMG í Bretlandi. Þá hyggst Landspítalinn nýta sér aðild að Samtökum norrænna háskólasjúkrahúsa við að skapa sameiginleg viðmið, m.a. um mönnun.
Að mati nefndarinnar er mikilvægt að Landspítali haldi áfram innleiðingu mönnunarlíkana og styrki þar með faglegar forsendur mönnunarviðmiða starfseminnar. Mikilvægt er að verkefnið sé tekið föstum tökum og beinir nefndin því til ráðuneytisins að styðja áfram við Landspítalann í þeirri vegferð. Nefndin telur jafnframt mikilvægt að leitað verði nýrra lausna til að tryggja fullnægjandi mönnun á komandi árum. Endurhugsa þarf þjónustuna, hvar og hvernig hún er veitt svo unnt sé að nýta mannauðinn á sem skilvirkastan hátt en slíkt kallar á markvisst skipulag.
Verkaskipting heilbrigðisstétta.
Í tengslum við mönnun heilbrigðisþjónustu fjallaði nefndin um verkaskiptingu heilbrigðisstétta. Fyrir nefndinni kom fram að þótt margt hefði áunnist í að ná fram skilvirkri verkaskiptingu heilbrigðisstétta þá væri enn margt óunnið. Þá gætti enn ákveðinnar togstreitu milli mismunandi fagstétta. Fyrir nefndinni kom fram að ráðuneytið og Landspítali hefðu unnið að umbótum á þessu sviði. Þeirri vinnu verði framhaldið en skipuleggja þurfi verkaskiptingu á heildrænan hátt með áherslu á samvinnu ólíkra heilbrigðisstétta ásamt því að byggja upp aukna þekkingu heilbrigðisstarfsfólks á hæfni og þekkingu annarra stétta.
Nefndin tekur fram að heilbrigðisþjónusta stendur nú frammi fyrir miklum áskorunum. Því er nauðsynlegt að ráðast í verkaskiptingu heilbrigðisstétta og hámarka nýtingu mannauðs með áherslu á samfélagshagsmuni. Gæði heilbrigðisþjónustu, árangur og hagkvæmni eru meðal þátta sem horfa þarf til. Þá telur nefndin ekki síður mikilvægt að þjónustan sé skipulögð með notendur í huga á skýran og skynsamlegan hátt. Að mati nefndarinnar felast mikil úrbótatækifæri í skilvirkri verkaskiptingu milli starfsfólks heilbrigðisþjónustunnar. Mikilvægt sé að starfsfólk vinni þau störf sem það er menntað til og sinni ekki störfum sem aðrir geta sinnt. Verkaskiptingu þarf að greina með tilliti til menntunar og hæfni. Færa þarf verkefni þannig að þau sem ekki krefjast ákveðinnar fagþekkingar eða sérfræðimenntunar flytjist til annarra faghópa svo mannafl nýtist sem best. Beinir nefndin því til ráðuneytisins að taka þetta verkefni föstum tökum og vinna með Landspítala að aukinni verkaskiptingu til að tryggja að menntun og hæfni heilbrigðisstétta nýtist sem best.
Heilbrigðistækni.
Nefndin ræddi um heilbrigðistækni og þau tækifæri sem kunna að felast í tækninýjungum á sviði heilbrigðisþjónustu. Í skýrslunni kemur fram að þróun og innleiðing nýrra tæknilausna við meðferð sjúklinga, í upplýsingatækni og við þróun klínískra kerfa hafi orðið sífellt stærri og mikilvægari þáttur í starfsemi Landspítala.
Að mati Ríkisendurskoðunar mun hagnýting á heilbrigðistækni gegna ríku hlutverki í heilbrigðisþjónustu til framtíðar. Því sé mikilvægt að stefnumótun sé skýr að þessu leyti og sér þess víða stað í stefnu, áherslum og starfsáætlunum spítalans. Þrátt fyrir það hafi verkefni fjárfestingarnefndar spítalans verið undirfjármögnuð undanfarin ár en ekki sé hægt að horfa til markvissrar þróunar í heilbrigðistækni nema að grunntækjabúnaður spítalans sé í ásættanlegu horfi. Slík staða geti leitt til flöskuhálsa með tilheyrandi áhrifum á skilvirkni og heildarkostnað. Þá vekur það athygli Ríkisendurskoðunar að fjármagn sem ráðstafað hefur verið í stafræna framþróun og aðra nýsköpun hefur verið fast undanfarin ár óháð framþróun í tækni og möguleikum á aukinni hagkvæmni með nýjum lausnum.
Í skýrslunni og fyrir nefndinni kom fram að Landspítalinn hefði lagt aukna áherslu á heilbrigðistækni í rekstri spítalans, m.a. með samstarfi við nýsköpunarfyrirtæki og innleiðingu á fjarheilbrigðisþjónustu og Landspítalaappinu. Þá var með nýlegum breytingum á stjórnskipulagi Landspítala stofnað sérstakt þróunarsvið. Hlutverk þess er að stuðla að stöðugum umbótum og nýsköpun með þróun nýrra lausna og bæta þjónustu almennt. Jafnframt var komið á fót nýrri stöðu yfirlæknis stefnu og þróunar lækninga sem ætlað er að styrkja faglegar ákvarðanir um upplýsingatækni og aðrar tæknilausnir. Spítalinn viðurkennir þó að það þurfi að taka mun stærri skref í innleiðingu stafrænna lausna svo mögulegt verði að nýta slík úrræði til að mæta aukinni eftirspurn eftir þjónustu og skorti á fagfólki innan heilbrigðisþjónustu sem fyrirsjáanlegur er á næstu árum. Innleiðing heilbrigðistæknilausna er kostnaðarsöm og telur Landspítalinn að árangur muni ekki nást fyrr en að mörgum árum liðnum nema til komi umtalsverð fjárfesting. Sem dæmi þá hafa stjórnvöld nágrannaþjóðanna nær undantekningarlaust ráðist í fjárfestingar á þessu sviði. Fyrir nefndinni fór ráðuneytið nánar yfir tilkomu nýrrar þróunar- og þjónustumiðstöðvar fyrir allt heilbrigðiskerfið, Stafrænnar heilsu. Stofnun hennar er liður í markvissri eflingu innviða og skýrari stýringu á stafrænum lausnum í heilbrigðiskerfinu.
Að mati nefndarinnar felast mikil tækifæri í notkun upplýsingatækni og stafrænna lausna í heilbrigðisþjónustu. Ljóst er að Landspítalinn hefur stigið mikilvæg skref í átt að aukinni notkun á heilbrigðistækni. Hins vegar er nauðsynlegt að grípa til enn frekari aðgerða og stefnumótunar en bent hefur verið á að sú stafræna þjónusta sem nú stendur einstaklingum til boða geti verið flókin og virkað óaðgengileg. Nefndin telur því mikilvægt að spítalinn taki áætlanagerð og stefnumótun enn fastari tökum og beinir því til ráðuneytisins að styðja við Landspítalann í þeim efnum. Brýnt er að ráðuneytið styðji við þessa þróun og byggi á þeim grunni sem lagður hefur verið innan Landspítala. Nefndin hefur jafnframt væntingar til þess að tilkoma Stafrænnar heilsu muni styrkja þróun stafrænna lausna sem nýtist öllu heilbrigðiskerfinu.
Uppbygging sérnáms.
Í skýrslunni er fjallað um mönnun Landspítalans til framtíðar. Að mati Ríkisendurskoðunar gegnir aukinn stuðningur við uppbyggingu sérnáms lykilhlutverki í þeim efnum. Sérstaklega þurfi að styðja við þær greinar sem mest mun mæða á samhliða breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar. Ríkisendurskoðun beinir því til spítalans og ráðuneytisins að vinna ötullega að eflingu sérnáms. Telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að uppbyggingu sérnámsgreina við Landspítala verði haldið áfram á markvissan og stefnumiðaðan hátt. Spítalinn og ráðuneytið þurfi að vinna náið saman að þessu marki og nýta í því skyni þau stjórntæki sem fólgin eru í lögum um opinber fjármál og fylgjast með árangri þeirra fjárveitinga sem helgaðar eru sérnámi í starfsemi spítalans.
Efling sérnáms var á meðal áhersluatriða heilbrigðisstefnu til 2030 í ljósi þess að heilbrigðisþjónustan verður af vinnuframlagi þess hóps sem heldur utan til náms. Þá er það staðreynd að einungis hluti hópsins snýr aftur. Á móti kemur að ekki er raunhæft að allar sérgreinar geti staðið undir þeim faglegu kröfum sem gerðar eru til náms í ljósi þess hversu fámenn þjóðin er. Árið 2024 voru sérnámslæknar að meðaltali um 29% starfandi lækna á Landspítala. Að mati spítalans hefur aukið vægi sérnáms og sérnámslækna jákvæð áhrif á faglegt starfsumhverfi spítalans í heild og auðveldar honum að laða að heilbrigðisstarfsfólk til lengri og skemmri tíma.
Árið 2020 kom út skýrsla starfshóps um sérfræðinám lækna og framtíðarmönnun. Skýrslan hafði að geyma sjö tillögur sem einkum miðuðu að því að styrkja sérnám í læknisfræði. Landspítalinn hefur haft forystu um að styrkja sérnám og reglugerð nr. 856/2023, um menntun, réttindi og skyldur lækna og skilyrði til að hljóta lækningaleyfi og sérfræðileyfi, var sett árið 2023 þar sem fagleg umgjörð sérnámsins var efld með hliðsjón af þróun á sérnámi í læknisfræði hér á landi. Veigamiklir þættir tillagnanna hafa þó ekki náð fram að ganga, aðallega varðandi tilhögun fjármögnunar og stjórnsýslu sérgreinanáms. Þannig hefur hvorki verið skilgreint lögbært yfirvald framhaldsmenntunar heilbrigðisvísinda né miðstöð framhaldsmenntunar heilbrigðisstétta.
Í skýrslunni kemur fram að í svörum sínum til Ríkisendurskoðunar hafi Landspítalinn lagt áherslu á að þróun sérnámsgreina við spítalann hafi verið fjármögnuð af rekstrarfé og unnin án umtalsverðs stuðnings eða leiðsagnar heilbrigðisyfirvalda. Í reglugerð nr. 856/2023 er mælt fyrir um skipun og hlutverk mats- og hæfisnefndar um sérnám lækna sem ákvarði stöðufjölda sérnámslækna eftir sérnámsgreinum í samræmi við þarfagreiningu og heilbrigðisstefnu á landsvísu. Landspítalinn telur nauðsynlegt að koma á miðlægri fjármögnun samhliða þessari stýringu.
Fyrir nefndinni kom fram hjá Landspítalanum að spítalinn telji uppbyggingu sérnáms forsendu þess að unnt verði að tryggja mönnun læknisþjónustu á Íslandi til framtíðar. Markverður árangur hafi náðst á þessu sviði en frekari þróun líði fyrir skort á fjármögnun verkefnisins. Landspítalinn veitir nú fullt sérnám í sjö stærstu sérgreinum lækninga, undirsérgreinanám í þremur greinum og hlutasérnám í átta minni sérgreinum en á hverjum tíma eru fleiri en 200 sérnámslæknar við nám og störf við spítalann. Landspítalinn mun halda áfram uppbyggingu sérnáms að því marki sem unnt er en í ljósi fámennis þjóðar mun ekki vera unnt að standa undir námi í mjög sérhæfðum greinum. Landspítalinn telur að samhliða vexti og framþróun málaflokksins er sérstök fjármögnun umsýslu og stjórnunar orðin aðkallandi en sá kostnaður er metinn um 500 millj. kr. á ári.
Í skýrslunni og fyrir nefndinni kom fram að ráðuneytið taki undir með mikilvægi eflingar sérnáms og muni áfram leggja áherslu á uppbyggingu þess. Með setningu reglugerðar nr. 856/2023 hafi öll umgjörð með sérnámi verið styrkt og ábyrgð hvers og eins skýrð. Ráðuneytið hyggur á frekari breytingar á umsjón með sérnámi og fjármögnun þess. Þá mun ráðuneytið einnig gera ráðstafanir til að tryggja betri yfirsýn og auka möguleika á stýringu á fjölda sérnámsstaða í sérgreinum eftir þörf heilbrigðiskerfisins. Markmið ráðuneytisins með uppbyggingu sérnáms lækna er að gera Ísland sjálfbærara í sérfræðimönnun lækna og að læknamönnun verði betri og hnitmiðaðri. Jafnframt telur ráðuneytið brýnt að huga að uppbyggingu sérnáms annarra heilbrigðisstétta.
Að mati nefndarinnar er mikilvægt að uppbyggingu sérnáms verði fram haldið á markvissan og stefnumiðaðan hátt. Sérnám hefur verið í mikilli sókn hér á landi og nefndin fagnar þeim skrefum sem stigin hafa verið en uppbygging þess hefur í vaxandi mæli tryggt betri mönnun læknisþjónustunnar. Í ljósi smæðar þjóðarinnar munu íslenskir læknar ávallt þurfa að sækja sérnám til annarra landa. Að mati nefndarinnar er nauðsynlegt að stöðugt sé fjárfest í uppbyggingu og framþróun sérnáms. Brýnt er að styrkja innviði sérnáms og taka þarf fyrirkomulag fjármögnunar þess til endurskoðunar en eins og fram hefur komið þá hefur fjármagnið komið af rekstrarfé Landspítalans. Beinir nefndin því til ráðuneytisins að vinna með Landspítalanum að áframhaldandi uppbyggingu sérnáms.
Yfirstjórn og áætlanagerð.
Ein af ábendingum Ríkisendurskoðunar til heilbrigðisráðuneytis er að ráðuneytið þurfi að taka yfirstjórn heilbrigðisþjónustunnar fastari tökum. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2020 hafi 11 skýrslur sem taka til mönnunar heilbrigðisþjónustunnar og flæði sjúklinga verið unnar á vegum ráðuneytisins. Þá séu ótaldar þær skýrslur, minnisblöð og tillögur sem Landsráð um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustunni hafi skilað til ráðherra, en þær eru um 20 talsins.
Í viðtölum Ríkisendurskoðunar við aðila sem vinna og hafa unnið í heilbrigðisþjónustunni hafi komið fram áhyggjur um að heilbrigðisráðuneytið væri ekki nægilega sterkt faglega og því ekki getað staðið nægilega vel undir því hlutverki að stýra heilbrigðisþjónustunni sem einni heild. Þrátt fyrir það væri á sama tíma sterk tilhneiging til miðstýringar þar sem úrlausn og ákvarðanir varðandi stór og smá álitamál í starfsemi heilbrigðisstofnana rötuðu á borð ráðherra í stað þess að vera leyst í framlínu. Formenn fagstétta í heilbrigðiskerfinu segja að þörf sé á pólitískri forystu til að bregðast við því ástandi sem uppi er í heilbrigðisþjónustunni og krefjast raunhæfra aðgerðaáætlana. Fyrir nefndinni kom fram að ráðuneytið taki undir með þessari ábendingu Ríkisendurskoðunar. Ráðuneytið hafi undanfarin ár tekið heildarstjórn málaflokksins fastari tökum og muni gera svo áfram.
Að mati nefndarinnar er það lykilatriði að hlutverk yfirstjórnar heilbrigðisþjónustunnar sé skýrt. Veikburða yfirstjórn verður ekki liðin. Nefndin telur jákvætt að ráðuneytið hafi unnið að því að styrkja yfirstjórnunarhlutverk sitt en ljóst er að enn er verk að vinna. Nefndin beinir því til ráðuneytisins að taka þetta verkefni enn fastari tökum.
Hinn 3. júní 2019 samþykkti Alþingi þingsályktun um heilbrigðisstefnu til ársins 2030, nr. 29/149. Í 8. kafla hennar segir að til þess að hrinda heilbrigðisstefnu í framkvæmd verði gerðar áætlanir um aðgerðir til fimm ára í senn og þær uppfærðar árlega á gildistíma heilbrigðisstefnunnar. Í skýrslunni kemur fram að heilbrigðisstefnan og aðgerðaáætlanir séu veikburða stefnumótunarskjöl. Þær séu ekki með skýra tengingu við fjármálaáætlun og fjárlög hvers tíma né stefnumiðaða áætlanagerð ríkisaðila samkvæmt lögum um opinber fjármál. Eftirfylgni og árangursmat á framgangi verkefna og markmiða hafi að mati Ríkisendurskoðunar jafnframt verið takmarkað.
Nefndin tekur undir með Ríkisendurskoðun að aðgerðaáætlun heilbrigðisstefnu þurfi að hafa skýrari tengingu við gerð fjármálaáætlana og fjárlaga hvers tíma og áætlanagerð ríkisaðila. Aðgerðaáætlun þarf jafnframt að vera ítarlegri með tímasettum og kostnaðargreindum verkefnum en hún hefur að mati Ríkisendurskoðunar verið almenn og oft óljós. Beinir nefndin því til ráðuneytisins að bæta úr þessum annmörkum í samræmi við ábendingar Ríkisendurskoðunar. Að lokum tekur nefndin undir með þeirri ábendingu að aðgerðaáætlanir heilbrigðisstefnunnar séu teknar til umfjöllunar á Alþingi.
Flæði sjúklinga.
Nefndin fjallaði um flæði sjúklinga en einn af stærstu áhrifaþáttum í þeim efnum er sá fjöldi sem dvelur á spítalanum með færni- og heilsumat og bíður þess að fá vist á hjúkrunarheimili. Þessi vandi hefur verið viðvarandi allt frá því að spítalinn varð til með sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Ríkisspítala í Landspítala árið 2000. Í byrjun júní 2025 voru 89 einstaklingar á spítalanum sem biðu eftir rými á hjúkrunarheimili. Í fjölmiðlum í febrúar 2026 kom fram að sú tala væri komin upp í 114. Fækkun inniliggjandi sjúklinga með færni- og heilsumat hefur oftast verið skammgóður vermir sem skýrist fyrst og fremst af tilkomu nýrra úrræða eða átaksverkefna.
Helstu áskoranir í þjónustu við aldraða tengjast breyttri aldurssamsetningu þjóðarinnar og fjölgun aldraðra. Hlutfall fólks 67 ára og eldra af mannfjölda var 12,4% árið 2020, reiknað er með að það verði 16,4% árið 2030 og 19,2% árið 2040. Þörf fyrir hjúkrunarrými mun því aukast talsvert á komandi árum. Árið 2018 kynnti þáverandi heilbrigðisráðherra áætlanir um stórátak í uppbyggingu hjúkrunarrýma á landsvísu. Markmiðið var að fjölgun hjúkrunarrýma yrði veruleg og myndi nema samtals 550 hjúkrunarrýmum. Jafnframt myndu fara fram miklar endurbætur á eldri aðbúnaði og aðstöðu. Þessar fyrirætlanir hafa ekki náð fram að ganga.
Í greinargerð með tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir 2026–2030 segir að gert sé ráð fyrir að stoðir heilbrigðis- og öldrunarþjónustu verði styrktar í takt við fjölgun og öldrun þjóðarinnar. Það skuli m.a. gert með fjölgun hjúkrunarrýma og aukinni heimahjúkrun. Þar kemur fram að samkvæmt framkvæmdaáætlun um byggingu hjúkrunarrýma 2024–2028 sé gert ráð fyrir fjölgun um 724 nýrra rýma og að 210 rými verði endurbætt. Í greinargerðinni segir svo að gangi framkvæmdaáætlunin eftir verði áætlaðri þörf fyrir byggingu hjúkrunarrýma mætt. Að mati Ríkisendurskoðunar er töluverð óvissa um að sú sé raunin. Í skýrslunni er að finna umfjöllun um gagnvirkt mælaborð KPMG. Mælaborðið nýtir gögn frá opinberum aðilum til að leggja mat á þörfina fyrir hjúkrunarrými að gefnum ólíkum sviðsmyndum. Ef litið er til ársins 2028 og gert ráð fyrir að hlutfallsleg þörf fyrir hjúkrunarrými verði óbreytt, biðtími verði orðinn 90 dagar og meðalbúsetutími tvö ár þurfi að fjölga rýmum um 1.613 fyrir árslok 2028. Fjölgun rýma samkvæmt framkvæmdaáætlun um 724 rými sé því fjarri því að svara þörfinni. Beinir Ríkisendurskoðun þeirri ábendingu til félags- og húsnæðismálaráðuneytis að endurskoða uppbyggingaráætlun hjúkrunarrýma og grípa til markvissra aðgerða til að bæta árangur við fjölgun rýma frá því sem verið hefur.
Í skýrslunni og fyrir nefndinni kom fram að ríkisstjórnin hafi sett á fót ráðherranefnd um öldrunarþjónustu. Jafnframt hafi verið settur á fót stýrihópur um uppbyggingu hjúkrunarheimila undir forystu félags- og húsnæðismálaráðuneytis. Fyrirliggjandi framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma hefur verið tekin til endurskoðunar og uppfærð áætlun var birt í mars 2026. Ríki og sveitarfélög gerðu jafnframt samkomulag um breytta ábyrgðarskiptingu á uppbyggingu hjúkrunarheimila. Þetta samkomulag hefur nú verið lögfest, sbr. lög nr. 40/2025. Ráðuneytið gerir sér vonir um að hið breytta fyrirkomulag auki hraða framkvæmda og dragi úr biðtíma aldraðra eftir hjúkrunarrými en nú þegar séu mörg verkefni hafin. Í nýrri framkvæmdaáætlun er nú gert ráð fyrir að 1.507 hjúkrunarrými verði tekin í notkun fyrir lok árs 2030 og af þeim verða ný hjúkrunarrými alls 1.355 talsins.
Að mati nefndarinnar er alvarlegt að sú mikla uppbygging sem boðuð var um uppbyggingu hjúkrunarrýma hafi ekki náð fram að ganga. Þó að árangur hafi náðst, m.a. með breyttu samkomulagi ríkis og sveitarfélaga og að fram sé komin endurskoðuð framkvæmdaáætlun, er ljóst að mikið verk er fram undan við að auka framboð hjúkrunarrýma, tryggja nægan fjölda starfsfólks í umönnun, stytta biðtíma og bæta aðstöðu til að mæta vaxandi þörfum eldri aldurshópa. Þá telur nefndin nauðsynlegt að unnið sé að fjölbreyttri heimaþjónustu, forvörnum og lýðheilsuverkefnum, stuðningsúrræðum og þróun og innleiðingu velferðartækni. Með því megi draga úr eða koma í veg fyrir flutning á hjúkrunarheimili.
Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Alþingi, 25. mars 2026.
| Vilhjálmur Árnason, form., frsm. |
Jón Gnarr. | Bryndís Haraldsdóttir. |
| Ása Berglind Hjálmarsdóttir. | Ásthildur Lóa Þórsdóttir. | Eiríkur Björn Björgvinsson. |
| Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir. | Sigmundur Ernir Rúnarsson. | Þorgrímur Sigmundsson. |