Ferill 429. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1054  —  429. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um endurgreidda fjárhagsaðstoð til sveitarfélaga vegna erlendra ríkisborgara.


     1.      Hversu hárri fjárhæð nam endurgreidd fjárhagsaðstoð til sveitarfélaga vegna erlendra ríkisborgara árin 2020–2025?
    Ákvæði 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991, kveður á um skyldu ríkissjóðs til að endurgreiða sveitarfélagi fyrir veitta aðstoð vegna erlendra ríkisborgara, annars vegar í þeim tilvikum þegar aðstoð er veitt erlendum ríkisborgurum sem ekki eiga lögheimili í landinu, sbr. a-lið 2. mgr. ákvæðisins, og hins vegar þegar aðstoð er veitt erlendum ríkisborgurum skv. 12. og 13. gr. laganna sem hafa átt lögheimili í landinu skemur en tvö ár, sbr. b-lið 2. mgr. ákvæðisins. Félagsþjónusta viðkomandi sveitarfélags sækir um heimild til endurgreiðslu úr ríkissjóði vegna veittrar aðstoðar við erlenda ríkisborgara, sbr. framangreint, og sér Vinnumálastofnun um umrædda endurgreiðslu.
    Þar sem uppgjöri vegna ársins 2025 er ekki lokið má gera ráð fyrir að meðfylgjandi upplýsingar vegna þess árs geti tekið einhverjum breytingum við lok uppgjörs.
    Í meðfylgjandi töflu má sjá fjárhæð endurgreiðslna úr ríkissjóði til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga á árunum 2020–2025, greint annars vegar eftir a-lið ákvæðisins og hins vegar eftir b-lið ákvæðisins.

2020 2021 2022 2023 2024 2025*
a-liður 800.713.141 945.032.353 61.320.975 66.976.848 112.131.824 15.855.516
b-liður 719.699.378 365.698.878 1.732.209.069 4.580.835.392 3.186.112.378 1.561.281.871
Samtals 1.520.412.519 1.310.731.231 1.793.530.044 4.647.812.240 3.298.244.202 1.577.137.387
*Bráðabirgðatölur fyrir fyrstu þrjá fjórðunga ársins 2025.
Heimild: Félags- og húsnæðismálaráðuneyti fyrir árin 2020–2022 og Vinnumálastofnun fyrir árin 2023–2025.
                        
     2.      Hvernig skiptist fjárhagsaðstoðin eftir kyni og aldri?
    Vinnumálstofnun greinir endurgreiðslur til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga hvorki eftir kyni né aldri þeirra einstaklinga sem fengið hafa aðstoð frá viðkomandi sveitarfélagi. Því liggja ekki fyrir upplýsingar um hvernig endurgreiðslur úr ríkissjóði til sveitarfélaga á grundvelli fyrrnefnds ákvæðis skiptast eftir kyni og aldri þeirra einstaklinga sem fengu fjárhagsaðstoð frá hlutaðeigandi sveitarfélögum á umræddu tímabili.

     3.      Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
     4.      Hvernig skiptist ríkisfang fyrrgreindra hópa eftir löndum?
     5.      Hversu hátt hlutfall fyrrgreindra hópa fékk fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum sem ríkið endurgreiddi síðan árin 2020–2025?

    Vinnumálastofnun greinir endurgreiðslur til sveitarfélaga á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga ekki eftir dvalarleyfi þeirra einstaklinga sem fengið hafa aðstoð frá viðkomandi sveitarfélagi. Því liggja ekki fyrir upplýsingar um hve há fjárhæð endurgreiðslna úr ríkissjóði til sveitarfélaga á grundvelli fyrrnefnds ákvæðis var á umræddu tímabili vegna veittrar aðstoðar hlutaðeigandi sveitarfélaga við útlendinga með alþjóðlega vernd hér á landi. Veitt aðstoð sveitarfélaga við umsækjendur um alþjóðlega vernd fellur ekki undir þjónustu sveitarfélaga sem ríkið endurgreiðir á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, nr. 40/1991.
    Í ljósi þess sem fram hefur komið í svari þessu liggja hvorki fyrir upplýsingar um hvernig ríkisföng fyrrgreindra hópa skiptast eftir löndum né hve hátt hlutfall fyrrgreindra hópa fékk fjárhagsaðstoð frá sveitarfélögum á umræddu tímabili sem ríkið endurgreiddi sveitarfélögunum á grundvelli 15. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga.