Ferill 607. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word


157. löggjafarþing 2025–2026.

Þingskjal 1055 — 607. mál.

Stjórnarfrumvarp.

Frumvarp til laga

um breytingu á lögum um virðisaukaskatt og samkeppnislögum (skatthlutfall eldsneytis).

Frá fjármála- og efnahagsráðherra.

I. KAFLI

Breyting á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988.

1. gr.

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 14. gr. skal virðisaukaskattur vera 11% við innflutning og skattskylda sölu á eldsneyti sem fellur undir tollskrárnúmer 2710.1221, 2710.1229, 2710.1930, 2710.2021, 2710.2029 og 2710.2065, á tímabilinu frá og með 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026.

Á umræddu tímabili ber söluaðilum eldsneytis að tryggja að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Samkeppniseftirlitið skal hafa sérstakt eftirlit með tímabundinni lækkun á útsöluverði eldsneytis samkvæmt þessari málsgrein.

II. KAFLI

Breyting á samkeppnislögum, nr. 44/2005. 

2. gr. 

Við lögin bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:

Við framkvæmd eftirlits með lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti á tímabilinu frá og með 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026, sbr. ákvæði til bráðabirgða XLIX í lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, skulu ákvæði laga þessara gilda um málsmeðferð og valdheimildir Samkeppniseftirlitsins. Samkeppniseftirlitið getur lagt stjórnvaldssektir á fyrirtæki sem gerast brotleg gegn skyldu til að tryggja að hin tímabundna lækkun virðisaukaskatts skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði eldsneytis skv. 2. mgr. ákvæðis til bráðabirgða XLIX í lögum um virðisaukaskatt, sbr. 37. gr. laga þessara.

Samkeppniseftirlitið skal gera ráðherra grein fyrir því, telji það misbrest á að tímabundin lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts skili sér í endanlegu útsöluverði eldsneytis. Ráðherra getur, að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins og að höfðu samráði við ráðherra skattamála, sett reglugerð um tímabundnar aðgerðir til að bregðast við slíkum misbresti. Tímabundnar aðgerðir geta falist í ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar eða annarri stýringu á verðlagningu eða viðskiptakjörum. Aðgerðir geta eigi staðið lengur en til og með 31. ágúst 2026.

3. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

1. Inngangur.

Í frumvarpi þessu, sem samið er í fjármála- og efnahagsráðuneytinu að höfðu samráði við atvinnuvegaráðuneytið, eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt, nr. 50/1988, og samkeppnislögum, nr. 44/2005, til að bregðast við áhrifum stríðsátaka í Miðausturlöndum á eldsneytisverð. Í frumvarpinu er lagt til að skatthlutfall virðisaukaskatts vegna sölu á eldsneyti sem fellur undir tollskrárnúmer 2710.1221, 2710.1229, 2710.1930, 2710.2021, 2710.2029 og 2710.2065, verði tímabundið lækkað í 11% til að milda áhrif þeirrar framboðsröskunar og verðsveiflna sem orðið hafa á alþjóðlegum orkumörkuðum í kjölfar átakanna. Frá því að átökin hófust hefur alþjóðlegt eldsneytisverð hækkað töluvert og verðsveiflur verið miklar. Þá er áfram veruleg óvissa um framvindu mála og hversu lengi áhrifa verðsveiflna á orkumarkaði muni gæta. Fyrirséð er að áhrif á almenning og fyrirtæki, þ.m.t. vöruflutninga, geti eftir sem áður orðið töluverð.

Þá er með frumvarpinu áréttað að við framkvæmd eftirlits með því að tímabundin lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts af eldsneyti skili sér að fullu í útsöluverði geti Samkeppniseftirlitið beitt þeim heimildum sem því eru veittar með lögum. Því til viðbótar geti ráðherra samkeppnismála, komi í ljós við slíkt eftirlit að misbrestur sé á því að hin tímabundna lækkun skili sér í útsöluverði eldsneytis, sett reglugerð um tímabundnar aðgerðir til að bregðast við því.

2. Tilefni og nauðsyn lagasetningar.

Tilefni lagasetningarinnar má rekja til vilja ríkisstjórnarinnar til að bregðast við áhrifum verðhækkana og þeirrar óvissu sem gætt hefur á eldsneytismörkuðum í kjölfar stríðsátaka í Miðausturlöndum. Þróun á grunnverði eldsneytis hefur bein áhrif á útgjöld heimila og rekstrarkostnað fyrirtækja, auk þess getur hún haft víðtækari áhrif á almennt verðlag í hagkerfinu. Fyrirhugaðri lagabreytingu er ætlað að milda þessi áhrif með tímabundinni lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts á eldsneyti. Þótt virðisaukaskattur sé almennt ekki endanlegur kostnaður fyrir virðisaukaskattsskyld fyrirtæki sem njóta innskattsréttar, mun lækkun skatthlutfallsins verja kaupmátt heimila, lækka beinan rekstrarkostnað hjá þeim aðilum sem eru undanþegnir skatt- og skráningarskyldu og sporna við verðbólgu.

3. Meginefni frumvarpsins.

Meginefni frumvarps þessa er að mæla fyrir um tímabundna lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts á eldsneyti sem fellur undir tollskrárnúmer 2710.1221, 2710.1229, 2710.1930, 2710.2021, 2710.2029 og 2710.2065, þ.e. á bensín og gasolíu, úr 24% skatthlutfalli í 11% skatthlutfall. Frumvarpinu er ætlað að milda áhrif hækkana og verðsveiflna á eldsneytismörkuðum á heimili, atvinnulíf og verðbólgu með afmarkaðri og tímabundinni lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti. Gert er ráð fyrir að lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts á eldsneyti gildi frá og með 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026 og falli sjálfkrafa úr gildi að því tímabili loknu. Jafnframt er gert ráð fyrir því að Samkeppniseftirlitið hafi eftirlit með því að hin tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts á eldsneyti skili sér til neytenda með lækkun á útsöluverði.

Í byrjun árs 2026 varð veruleg lækkun á eldsneytisverði með breytingum á skattlagningu ökutækja og eldsneytis. Frá byrjun mars 2026 hafa síðan umtalsverðar verðsveiflur orðið á eldsneyti hér á landi vegna stríðsátaka í Miðausturlöndum. Áfram er veruleg óvissa um þróun mála og hætta á áframhaldandi sveiflum á eldsneytisverði. Af þeim sökum er talið rétt að grípa til tímabundinnar og afmarkaðrar skattalegrar ráðstöfunar með lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts til að milda með skjótum og beinum hætti áhrif þessarar óvissu og verðhækkana.

Verðhækkanir og miklar sveiflur á verði eldsneytis hafa ekki einungis bein áhrif á útgjöld heimila og rekstrarkostnað fyrirtækja heldur geta þær einnig haft víðtækari áhrif á verðlag í hagkerfinu. Eldsneyti er mikilvægur kostnaðarþáttur í flutningum, dreifingu vöru og margvíslegri atvinnustarfsemi. Breytingar á verði þess geta því skilað sér áfram í breytingum á verði annarrar vöru og þjónustu, aukið verðbólguþrýsting og torveldað viðleitni stjórnvalda til að stuðla að stöðugu verðlagi og efnahagslegum stöðugleika. Þótt virðisaukaskattskerfið byggist almennt á því að undanþágur og frávik frá almennu skatthlutfalli séu sem fæst þykir rétt að víkja tímabundið frá þeirri meginreglu við þær aðstæður sem nú eru uppi. Með tímabundinni lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts á eldsneyti er leitast við að veita mótvægi andspænis kostnaðaráhrifum hækkandi eldsneytisverðs. Aðgerðin er hugsuð sem tímabundið viðbragð við skyndilegri utanaðkomandi kostnaðarhækkun og verðsveiflum á alþjóðlegum orkumörkuðum sem um þessar mundir eykur verðbólguþrýsting, veikir rekstrargrundvöll fyrirtækja og rýrir ráðstöfunartekjur heimila jafnt hér á landi sem í öðrum löndum. Til að umrædd tímabundin aðgerð hafi tilætluð áhrif er grunnforsenda að lækkun á eldsneytisverði samsvari að fullu lækkun hinna opinberu gjalda og skili sér þannig beint í lækkun eldsneytisverðs. Til að fylgja því eftir er brýnt að Samkeppniseftirlitið, í samstarfi við verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands, Félag íslenskra bifreiðaeigenda, Neytendastofu og viðeigandi ráðuneyti, hafi sérstakt eftirlit með hinni tímabundnu lækkun. Jafnframt er mikilvægt að tryggja að stjórnvöld hafi ákveðin úrræði til að bregðast við ef í ljós kemur misbrestur á því að lækkun virðisaukaskatts skili sér til neytenda í endanlegu útsöluverði eldsneytis.

Virðisaukaskattur er neysluskattur sem að endingu leggst á endanlegan neytanda vöru eða þjónustu. Skv. 15. og 16. gr. laga um virðisaukaskatt eiga skráðir aðilar í atvinnurekstri almennt rétt á að telja virðisaukaskatt af aðkeyptum rekstrarfjármunum, þ.m.t. eldsneyti, til innskatts ef hann varðar eingöngu sölu þeirra á skattskyldri vöru og þjónustu. Af þessu leiðir að lækkun skatthlutfallsins lækkar ekki beinan endanlegan rekstrarkostnað slíkra fyrirtækja. Þau munu þó njóta beins hagræðis af bættri lausafjárstöðu þar sem minna fé binst í skattgreiðslum fram að uppgjöri virðisaukaskatts. Beinn kostnaðarávinningur af lækkuninni mun því fyrst og fremst nýtast heimilum landsins og þeim aðilum sem eru undanþegnir skattskyldu og skráningarskyldu og hafa þar af leiðandi ekki innskattsrétt.

Við undirbúning frumvarpsins hefur jafnframt verið litið til viðbragða annarra ríkja vegna hækkandi olíu- og eldsneytisverðs. Á síðustu vikum hafa nokkur ríki gripið til tímabundinna ráðstafana í skattlagningu eða gjaldtöku á eldsneyti til að bregðast við þessum hækkunum. Í Noregi hefur verið samþykkt tímabundin lækkun eldsneytisskatta og í Svíþjóð hefur verið lagt fram frumvarp um tímabundna lækkun frá 1. maí. Fleiri ríki hafa þegar innleitt eða íhuga aðgerðir sem leitt gætu til tímabundinnar lækkunar á eldsneytisgjöldum eða sambærilegum opinberum álögum í því skyni að draga úr áhrifum hækkandi eldsneytisverðs á heimili og fyrirtæki.

Þótt lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts geti, meðan hún gildir, dregið tímabundið úr verðhvötum til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, vega, að mati stjórnvalda, þyngra við núverandi aðstæður þeir hagsmunir að bregðast við skyndilegri og utanaðkomandi kostnaðarhækkun sem hefur bein áhrif á heimili, atvinnurekstur og verðlagsþróun. Aðgerðin er því hugsuð sem tímabundið viðbragð við óvenjulegum aðstæðum á eldsneytismarkaði en felur ekki í sér breytingu á langtímastefnu stjórnvalda um virðisaukaskatt á eldsneyti eða orkuskipti. Gert er ráð fyrir því að aðgerðin leiði til lægra útsöluverðs hjá söluaðilum eldsneytis þann tíma sem hún varir og er sem áður segir kveðið í frumvarpinu á um eftirlit með þeim þætti og úrræði.

4. Samræmi við stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar.

Við undirbúning frumvarpsins var sérstaklega gætt að ákvæðum 40. og 77. gr. stjórnarskrárinnar, enda leiðir af þeim að skattamálum skuli skipað með lögum. Var þess gætt að orðalag breytinganna væri skýrt og í samræmi við þær kröfur sem leiða má af ákvæðunum.

Þá hefur verið litið til skuldbindinga Íslands samkvæmt EES-samningnum, þar á meðal reglna um ríkisaðstoð. Fyrirhuguð tímabundin lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts á eldsneyti er almenn og tekur til innflutnings og sölu allra skattskyldra aðila eftir almennum og hlutlægum viðmiðum og ætti að skila sér beint í lægra verði til neytenda. Frumvarpið er því ekki talið fela í sér sértækt hagræði í skilningi ríkisaðstoðarreglna EES-samningsins og kallar ekki á sérstaka málsmeðferð á þeim grundvelli.

5. Samráð.

Frumvarpið er samið í fjármála- og efnahagsráðuneytinu að höfðu samráði við atvinnuvega­ráðuneytið. Við undirbúning þess var einnig haft samráð við Skattinn og Samkeppniseftirlitið. Frumvarpið er ekki á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir yfirstandandi löggjafarþing. Í ljósi þeirra umtalsverðu og snörpu hækkana sem orðið hafa á eldsneytisverði að undanförnu og brýnnar nauðsynjar þess að bregðast hratt við þeirri þróun til að milda áhrif þeirrar framboðsröskunar og verðsveiflna sem orðið hafa á eldsneyti á alþjóðlegum orkumörkuðum hefur reynst óhjákvæmilegt að hraða undirbúningi málsins. Af þeim sökum hefur verið vikið frá samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnar­frumvarpa og stjórnartillagna, sbr. 9. gr. reglna um starfshætti ríkisstjórnar, sem samþykkt var á fundi ríkisstjórnar 24. febrúar 2023, að því er varðar frekara samráð um efni frumvarpsins.

6. Mat á áhrifum.

Veruleg röskun hefur orðið á framboði á olíu á undanförnum mánuðum vegna átaka í Miðausturlöndum. Áhrif þeirrar röskunar hafa náð til Íslands með hækkun eldsneytisverðs. Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr almennu 24% skatthlutfalli í 11% skatthlutfall er ætlað að draga úr þeim kostnaðaráhrifum sem þróun eldsneytisverðs á alþjóðamörkuðum hefur haft í för með sér. Skattalækkunin mun lækka beinan kostnað hjá heimilum sem nota bifreiðar og tæki sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti. Hið sama gildir um þau fyrirtæki og stofnanir sem ekki stunda virðisaukaskattsskylda starfsemi, svo sem sveitarfélög. Sé lækkuninni miðlað til fulls inn í verð til neytenda lækkar verð að öðru óbreyttu um 10,5%. Þær lagabreytingar sem lagðar eru til munu hafa neikvæð áhrif á tekjur ríkisins á árinu 2026. Tekjutap ríkisins af tímabundinni lækkun virðisaukaskatts í fjóra mánuði, maí til ágúst, má áætla um 3,5 milljarða kr. Ekki er gert ráð fyrir nýjum og auknum fjárheimildum vegna samþykktar frumvarpsins.

Gert er ráð fyrir að bein áhrif skattalækkunarinnar á vísitölu neysluverðs verði tæplega 0,3% til lækkunar sem mun ganga til baka að gildistíma loknum í byrjun september. Lækkun skatta hefur almennt þau áhrif að styðja við eftirspurn í hagkerfinu. Í þessu tilviki er þó verið að bregðast við þeim verðáhrifum sem leitt hafa af röskun á framboði olíu á alþjóðamörkuðum. Því er ekki gert ráð fyrir að skattalækkunin ásamt hækkun heimsmarkaðsverðs muni leiða til aukinnar þenslu í hagkerfinu.

Samþykkt frumvarpsins mun fela í sér ólík áhrif á samfélagshópa. Hin beinu lækkunaráhrif á útgjöld til eldsneytiskaupa einskorðast við heimili og aðra aðila sem ekki hafa innskattsrétt í virðisaukaskattskerfinu. Þeir sem mest nýta bifreiðar og önnur tæki sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verða fyrir mestum áhrifum. Meðaleyðsla bifreiða er mest í lægstu tekjutíundum fjölskyldna en jafnframt er fjöldi bifreiða mestur í lægstu tekjutíundunum.

Nokkur munur er á eignarhaldi ökutækja eftir kynjum. Karlmenn eru skráðir eigendur um tveggja þriðju hluta fólks- og sendibifreiða. Ferðavenjukannanir hafa þó sýnt að konur nota bifreiðar ekki síður en karlar. Bifreiðar í eigu kvenna eru að jafnaði sparneytnari en bifreiðar í eigu karla. Því má gera ráð fyrir að áhrif frumvarpsins verði meiri á karla en konur.

Áhrif frumvarpsins verða einnig ólík á mismunandi landshluta, vegna samsetningar ökutækjaflotans. Flestar bifreiðar eru skráðar á höfuðborgarsvæðinu en þar er hlutfall rafmagns- og tengiltvinnbifreiða jafnframt hærra en í öðrum landshlutum.

Losun gróðurhúsalofttegunda og önnur mengun ökutækja hefur í för með sér kostnað sem fellur að hluta á aðra en þá aðila sem eiga bein viðskipti sín á milli. Skattlagning eldsneytis er skilvirk leið til að draga úr neikvæðum ytri áhrifum sem slík viðskipti hafa í för með sér. Hækkun eldsneytisverðs eykur almennt hvata til minni notkunar jarðefnaeldsneytis en tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti dregur að sama skapi úr þeim hvötum meðan hún varir.

Um einstakar greinar frumvarpsins.

Um 1. gr.

Í ákvæðinu er lagt til að nýju ákvæði til bráðabirgða verði bætt við lög um virðisaukaskatt þar sem mælt verði fyrir um tímabundna lækkun á skatthlutfalli virðisaukaskatts eldsneytis. Lagt er til að skatthlutfall virðisaukaskatts við innflutning og skattskylda sölu á eldsneyti sem fellur undir tollskrárnúmer 2710.1221, 2710.1229, 2710.1930, 2710.2021, 2710.2029 og 2710.2065 verði lækkað tímabundið frá og með 1. maí 2026 til og með 31. ágúst 2026. Hér undir fellur innflutningur og skattskyld sala á bensíni og gasolíu, þ.m.t. svokallaðri bílagasolíu, þ.e. dísilolíu, sem einkum er ætluð fyrir vélknúin ökutæki. Að liðnum gildistíma ákvæðisins fellur innflutningur og sala eldsneytis sjálfkrafa aftur undir meginreglu 1. mgr. 14. gr. laganna, þ.e. almennt 24% skatthlutfall virðisaukaskatts.

Um tímamörk skattskyldrar afhendingar og uppgjör veltu samkvæmt ákvæðinu gilda almennar reglur 13. gr. laganna. Í samræmi við 2. mgr. 13. gr. ræður útgáfudagur sölureiknings eða afhendingardagur því hvort viðskipti falli innan þess tímabils sem hið lægra 11% skatthlutfall gildir um, enda sé reikningur gefinn út fyrir eða samtímis afhendingu. Þegar um innflutning er að ræða ræður tímamark tollafgreiðslu því hvort hið tímabundna lægra skatthlutfall eigi við um viðkomandi eldsneytissendingu, sbr. 34. gr. laganna. Með þessu er tryggt að skýrt sé hvaða viðskipti og hvaða birgðir eldsneytis falla undir bráðabirgðaákvæðið á þeim tímapunkti þegar það tekur gildi annars vegar og fellur úr gildi hins vegar.

Til að þessi tímabundna aðgerð hafi tilætluð áhrif er grunnforsenda að lækkun á eldsneytisverði samsvari að fullu lækkun hinna opinberu gjalda og skili sér þannig beint í lækkun eldsneytisverðs. Vegna þessa er áréttað í ákvæðinu að Samkeppniseftirlitið hafi sérstaka skyldu til eftirlits með aðgerðinni og nýti þær heimildir sem stofnunin hefur lögum samkvæmt.

Um 2. gr.

Með ákvæðinu er lagt til að við samkeppnislög bætist ákvæði til bráðabirgða þar sem áréttað er að við eftirlit með lækkun á útsöluverði eldsneytis fari um málsmeðferð og valdheimildir eftir samkeppnislögum. Á þetta m.a. við um þær heimildir sem Samkeppniseftirlitið hefur til upplýsingaöflunar skv. 19. gr. samkeppnislaga og álagningar dagsekta, sbr. 38. gr. laganna. Þá geti Samkeppniseftirlitið beitt stjórnvaldssektum vegna brota á þeirri skyldu að söluaðilar eldsneytis tryggi að lækkunin skili sér að fullu í endanlegu útsöluverði, sbr. 2. mgr. 1. gr. frumvarpsins.

Í annan stað er lagt til að ráðherra samkeppnismála geti brugðist við misbresti á því að lækkunin skili sér í endanlegu útsöluverði eldsneytis með því að kveða á um sérstakar aðgerðir með reglugerð. Það geti ráðherra samkeppnismála gert að fenginni umsögn Samkeppniseftirlitsins og að undangengnu samráði við ráðherra skattamála. Aðgerðir sem kveða má á um í reglugerð samkvæmt þessu geta falist í stýringu á verðlagi, svo sem með ákvörðun hámarksverðs eða hámarksálagningar. Ákvæðið á sér fyrirmynd í 38. gr. eldri samkeppnislaga, nr. 8/1993, þar sem kveðið var á um heimild ríkisstjórnar til að grípa til sambærilegra aðgerða ef neyðarástand skapaðist af óvæntum ástæðum, svo sem vegna náttúruhamfara, styrjaldarástands eða óvenjulegra verðsveiflna á innlendum eða erlendum mörkuðum. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að samkeppnislögum nr. 8/1993 sagði um ákvæðið:

„Almenn ákvæði um verðstöðvun, hámarksverð, hámarksálagningu og aðrar reglur um verðlagningu og viðskiptakjör eru í meginatriðum í mótsögn við markmið og tilgang samkeppnislaga. Þó geta mál þróast með þeim hætti að nauðsynlegt kunni að vera að geta gripið til slíkra aðgerða. Það á einkum við ef skyndilegar og óvæntar breytingar á ytri aðstæðum ógna jafnvæginu í efnahagsmálum þjóðarinnar og leiða til óeðlilegra breytinga á verðlagi. Til að grípa til aðgerða þegar slík hætta steðjar að getur Alþingi sett sérstök lög til að beita við fyrrgreindar aðstæður. Það hefur hins vegar verið horfið að því ráði að setja sérstaka grein í samkeppnislögin sem heimilar ríkisstjórninni að ákveða tímabundna verðstöðvun, hámarksverð og hámarksálagningu eða aðrar reglur um verðlagningu og viðskiptakjör ef neyðarástand skapast af óvæntum eða utanaðkomandi aðstæðum, svo sem vegna náttúruhamfara, styrjaldarástands eða vegna óvenjulegra verðsveiflna á innlendum og erlendum mörkuðum.

Setning sérstakra laga, ef áðurgreindar hættur steðja að, getur verið of seinvirk þar eð þurft getur að grípa til aðgerða með mjög skjótum hætti. Er því nauðsynlegt að þetta heimildarákvæði sé í lögum.

Á það er lögð áhersla að einungis verði unnt að grípa til ákvæða skv. 41. gr. til að koma í veg fyrir óeðlilegar breytingar á verðlagi vegna mikils ójafnvægis við skyndilegar breytingar í efnahagsmálum umheimsins eða skyndibreytingar á stöðu innlends þjóðarbúskapar.

Hér skal vísað til þess sem oft hefur áður komið fram í umræðu um verðlagsákvæði að ávinningur af þeim minnkar eftir því sem þau eru látin gilda lengur. Hins vegar eykst skaðsemin af verðlagsákvæðum á virka samkeppni eftir því sem þau eru látin gilda lengur. Þess vegna er ekki gert ráð fyrir að aðgerðir ríkisstjórnar skv. 41. gr. geti staðið lengur en í þrjá mánuði án þess að Alþingi samþykki þingsályktun þar að lútandi.“

Framangreind sjónarmið eiga að ýmsu leyti enn við. Áréttað er að um neyðarráðstöfun yrði að ræða sem vonir standa til að ekki þurfi að beita. Vegna eðlis þessarar tímabundnu aðgerðar, sem felst í lækkun skatthlutfalls virðisaukaskatts af eldsneyti, er aftur á móti talið nauðsynlegt að til staðar sé verkfæri sem heimili skjótt inngrip, ef á þarf að halda, til að tryggja að ráðstöfunin skili sér í endanlegu útsöluverði á eldsneyti og skili þeim árangri sem að er stefnt.

Um 3. gr.

Ákvæðið þarfnast ekki skýringar.