Ferill 518. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1057  —  518. mál.




Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Erni Rúnarssyni um réttindagæslu fyrir fatlað fólk.


     1.      Hvernig var lagt mat á kostnað af réttindagæslu fyrir fatlað fólk þegar hún var flutt frá ráðuneytinu til Mannréttindastofnunar Íslands? Var í því mati tekið mið af þeirri mönnun og þeirri þjónustu sem talin var nauðsynleg til að réttindagæslan gæti sinnt bæði einstaklingsstuðningi og frumkvæðiseftirliti?
    Félags- og húsnæðismálaráðuneytið lagði eðli máls samkvæmt ekki mat á kostnað við frumvarp forsætisráðherra um Mannréttindastofnun Íslands. Í frumvarpinu var heildarkostnaður við rekstur stofnunarinnar áætlaður 223,9 millj. kr. á ársgrundvelli, þar af var gert ráð fyrir að um 180 millj. kr. yrðu millifærðar fjárheimildir. Réttindagæsla fatlaðs fólks hafði sérstaka fjárheimild á fjárlagalið 07-700-110 á forræði þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Við flutning verkefna réttindagæslunnar til Mannréttindastofnunar Íslands voru 18 millj. kr. fluttar til sýslumanna vegna persónulegra talsmanna. Eftirstöðvar upphaflegrar fjárheimildar, að teknu tilliti til launa- og verðlagsbóta sem og almennrar aðhaldskröfu, skyldu síðan millifærast til stofnunarinnar í fjárlögum áranna 2025 og 2026, samtals 163,8 millj. kr.

     2.      Hve margir réttindagæslumenn störfuðu undir lok réttindagæslunnar hjá ráðuneytinu? Hve margir réttindagæslumenn starfa hjá Mannréttindastofnun Íslands núna?
    Ráðuneytið hefur ekki upplýsingar um fjölda réttindagæslumanna hjá Mannréttindastofnun Íslands en sjö réttindagæslumenn voru starfandi hjá þáverandi félags- og vinnumarkaðsráðuneyti þegar frumvarp um Mannréttindastofnun Íslands var samþykkt á Alþingi hinn 22. apríl 2024.

     3.      Liggur fyrir þarfagreining um hver fjöldi réttindagæslumanna þurfi að vera til að tryggja jafnt aðgengi fatlaðs fólks um land allt, þar á meðal fólks með þroskahömlun sem ekki getur sjálft leitað réttar síns?
    Ráðuneytið hafði ekki látið framkvæma slíka þarfagreiningu áður en réttindagæslan fluttist til Mannréttindastofnunar Íslands.

     4.      Hver voru rökin fyrir því að færa réttindagæslu fatlaðs fólks til Mannréttindastofnunar Íslands? Hvernig hefur gengið að tryggja að stjórnsýslulegt eftirlit, kæruleiðir og ábyrgð á framkvæmd laganna sé í samræmi við stjórnsýslulög?
    Í greinargerð með frumvarpi sem varð að lögum um Mannréttindastofnun Íslands, nr. 88/2024, er m.a. fjallað um það fyrirkomulag þegar réttindagæslumenn fatlaðs fólks störfuðu innan félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Bent hafði verið á að fyrirkomulagið tryggði ekki nægilega vel sjálfstæði réttindagæslumanna, enda mætti hlutverk þeirra ekki takmarkast af því að þeir störfuðu fyrir ráðuneyti eða stofnun þess. Frá upphafi hafi því verið gert ráð fyrir að réttindagæslumenn flyttust til mannréttindastofnunar þegar slík stofnun yrði sett á laggirnar. Má í því sambandi nefna ákvæði til bráðabirgða III í lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011. Í því ákvæði er fjallað um skipan starfshóps til þess að endurskoða fyrirkomulag réttindagæslu fyrir fatlað fólk, en starfshópurinn átti m.a. að skoða þann möguleika að færa réttindagæslu fyrir fatlað fólk til þjóðbundinnar mannréttindastofnunar. Í samræmi við það voru réttindagæslumenn fatlaðs fólks formlega færðir undir Mannréttindastofnun Íslands með lögum nr. 88/2024. Þá er einnig talið að þekking og reynsla réttindagæslumanna verði mikilvægur þáttur í eftirliti stofnunarinnar með framfylgd samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.
    Samkvæmt 2. mgr. 1. gr. laga um Mannréttindastofnun Íslands, nr. 88/2024, er stofnunin sjálfstæð í störfum sínum og óháð fyrirmælum frá öðrum, þ.m.t. Alþingi. Af því leiðir að félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur ekki stjórnsýslulegt eftirlit með störfum hennar og verkefnum og leggur því ekki mat á það hvort framkvæmd laganna sé í samræmi við stjórnsýslulög.