Ferill 476. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1059 — 476. mál.
Svar
fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um mannauðsmál.
1. Hversu mörg stöðugildi eru nú í mannauðsmálum í ráðuneytinu?
Í ráðuneytinu er eitt stöðugildi sem sinnir mannauðsmálum.
2. Hvernig hefur þróunin verið í fjölda stöðugilda er sinna mannauðsmálum í ráðuneytinu á árunum 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Að jafnaði hefur verið um eitt stöðugildi að ræða í mannauðsmálum á tímabilinu 2016– 2026.
3. Hefur ráðuneytið keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála árin 2016–2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Já, ráðuneytið hefur keypt sérfræðiráðgjöf vegna mannauðsmála. Sjá sundurliðun eftir árum og rekstraraðilum í töflu undir 5. lið.
4. Hefur ráðuneytið gert samninga við fyrirtæki/rekstraraðila um þjónustu eða ráðgjöf á sviði mannauðsmála á árunum 2016–2026? Ef svo er, hvernig fór samningaferlið fram? Hafa samningar verið boðnir út? Hvaða fyrirtæki/rekstraraðilar sinna slíku fyrir ráðuneytið?
Ráðuneytið er með gildandi þjónustusamning við Auðnast ehf. um heilsu- og vinnuvernd. Auðnast er samningsaðili að rammasamningi RK24.23 um rekstrarráðgjöf og flokkast sem innkaup samkvæmt honum. Greiðslur til annarra fyrirtækja sem nefnd eru í töflu undir 5. lið voru undir viðmiðunarfjárhæðum laga um opinber innkaup. Í slíkum tilfellum gætir ráðuneytið hagkvæmni og gerir samanburð meðal fyrirtækja líkt og áskilið er í 24. gr. þeirra laga.
5. Hver hefur kostnaður vegna fyrrgreindrar þjónustu eða ráðgjafar verið á árunum 2016– 2026? Svar óskast sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum/rekstraraðilum.
Í meðfylgjandi töflu er yfirlit yfir kostnað vegna þjónustu eða ráðgjafar á árunum 2016– 2026 í tengslum við ráðningar, ýmis mannauðsmál, jafnlaunamál auk heilsu- og vinnuverndar. Vakin er athygli á því að hluti kostnaðar sem féll til á árinu 2024 hjá Vinnvinn ehf. tengdist ráðgjafarþjónustu vegna ráðningar í starf forstjóra FSRE. Þá féll kostnaður hjá Auka ehf. á árinu 2024 til vegna aðstoðar við ráðningarferli varaseðlabankastjóra. Fjárhæðir eru gefnar upp í þúsundum króna.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.