Ferill 558. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1074 — 558. mál.
Svar
umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um lunda.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver hefur verið heildarstofnstærð lunda við Ísland síðastliðin fimm ár og hverjar eru veiðitölur fuglsins á sama tímabili, sundurliðað eftir árum?
Áætlað er að varpstofn lunda á Íslandi sé um 4 milljónir fugla en raunverulegur fjöldi er óljós og líklega einhvers staðar á bilinu 2,6 til 5,6 milljónir fugla. Áætlað er að varpstofninn sé um 64% af heildarstofninum. Lægri áætlun um fjölda varpfugla byggist á meðalfjölda setinna hola í hluta varpbyggða en hærri áætlun er fengin með flókinni greiningu á langtímagögnum um veiði og stofnbreytingar, sem þó er talin geta staðist (sjá matsskýrslur).
Þessar áætlanir byggjast á gögnum sem safnað hefur verið í mörg ár og ekki er hægt að uppfæra árlega en þær eru taldar endurspegla ástand stofnsins eins vel og unnt er. Óvissan endurspeglar þá erfiðleika sem felast í því að telja sjófugla sem verpa í holum, sérstaklega í stórum og oft torfærum varpbyggðum. Því er skynsamlegt að horfa til alls þessa mögulega bils stofnstærðar fremur en að styðjast við eina tiltekna tölu.
Veiðitölur lunda undanfarin fimm ár eru sem að aftan greinir.
| Ár * | SU | VE | VF | NV | NE | AU | Samtals |
| 2024 | 3.259 | 1.987 | 1.830 | 3.839 | 16.882 | 264 | 28.061 |
| 2023 | 1.126 | 2.279 | 908 | 4.557 | 14.950 | 313 | 24.133 |
| 2022 | 1.728 | 2.306 | 2.064 | 6.864 | 10.727 | 1.174 | 24.863 |
| 2021 | 3.408 | 3.079 | 1.868 | 12.592 | 12.010 | 458 | 33.415 |
| 2020 | 1.812 | 3.095 | 1.290 | 14.121 | 9.882 | 604 | 30.804 |
| * Þegar 56% af veiðitölum fyrir árið 2025 höfðu skilað sér voru skráðir 15.566 lundar sem gefur vísbendingu um að veiðin hafi verið svipuð og árið 2024. | |||||||