Ferill 546. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1079  —  546. mál.




Svar


utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur um stafrænt fullveldi Íslands.


     1.      Hvaða gagnavinnsla og gagnageymsla á vegum ráðuneytisins er í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
    Í dag gegnir UMBRA – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins hlutverki þjónustuaðila ráðuneytisins þegar kemur að rekstri Microsoft skýjalausna (M365/Azure). Sameiginlegar skýjalausnir ráðuneytanna byggjast að verulegu leyti á þjónustu Microsoft, sem er bandarískt fyrirtæki. Af hálfu ráðuneytisins er þó lögð rík áhersla á að gögn séu, eftir því sem þjónusturnar bjóða upp á, hýst og unnin innan Evrópu og að mikilvæg gögn séu jafnframt afrituð hér á landi eftir því sem við á. Jafnframt er leitast við að halda gagnavinnslu og gagnageymslu innan samræmdrar og stýrðrar umgjarðar til að tryggja betra öryggi, yfirsýn og meðalhóf í meðferð og dreifingu gagna.
    Við mat á slíkum lausnum er ekki eingöngu horft til þess í hvaða landi viðkomandi fyrirtæki er skráð, heldur fyrst og fremst til þess hvar gögn eru geymd, hvar vinnsla fer fram, hvaða aðgangsstýringar og verndarráðstafanir gilda og hvaða samnings- og persónuverndarumgjörð er til staðar.
    Í einhverjum tilvikum kunna að vera nýttar aðrar þjónustur en þær sem falla undir sameiginlegt rekstrarumhverfi. Af hálfu ráðuneytisins er þó lögð áhersla á að beina þjónustu og gagnavinnslu, eftir því sem unnt er, inn í sameiginlegt og stýrt umhverfi til að draga úr óþarfa dreifingu gagna og bæta samræmi í rekstri og öryggi.
    Í nýrri aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir 2026–2027, sem er hluti af atvinnustefnu Íslands, er m.a. fjallað um uppbyggingu gervigreindarinnviða. Aðgerðin felur m.a. í sér fjárfestingu í reikniinnviðum og vélbúnaði í samstarfi hins opinbera og einkaaðila, með áherslu á gagnaöryggi, menningarlega sérstöðu og gervigreindarfullveldi sem er ætlað að tryggja örugg yfirráð yfir tæknilausnum og mikilvægum gögnum. Aðgerðinni er ætlað að styrkja gervigreindarinnviði og gervigreindarfullveldi innan lands og er til þess fallin að færa Ísland nær því að verða óháð erlendum þjónustuveitendum þegar kemur að gervigreindarinnviðum.

     2.      Hvaða gögn á vegum ráðuneytisins eru geymd í skýjum erlendra fyrirtækja? Óskað er eftir upplýsingum um hvort um er að ræða evrópsk fyrirtæki eða bandarísk.
    Þau gögn sem geymd eru í skýjalausnum erlendra fyrirtækja á vegum ráðuneytisins eru fyrst og fremst gögn sem tengjast almennri skrifstofu- og samvinnuvinnslu, svo sem tölvupóstur, skjöl, samskiptagögn, dagatöl, skrár og önnur rekstrargögn sem verða til í daglegri starfsemi.
    Af hálfu ráðuneytisins er lögð áhersla á að þessi gögn séu, eftir því sem þjónusturnar bjóða upp á og við á, hýst og unnin innan Evrópu. Við notkun gervigreindarlausna í þessu umhverfi er jafnframt byggt á fyrirtækjalausnum með skýrri samningsumgjörð og verndarráðstöfunum, þar sem gögn viðskiptavina eru ekki nýtt til þjálfunar almennra grunnlíkana.
    Jafnframt er rétt að hafa í huga að það eitt í hvaða landi fyrirtæki er skráð segir ekki alla söguna, þar sem þjónusta, rekstur og stuðningur getur í reynd falið í sér aðkomu aðila eða starfsfólks frá fleiri ríkjum. Því er lögð áhersla á heildstætt mat á persónuvernd, öryggi, aðgangi að gögnum og staðsetningu vinnslu og geymslu, fremur en að líta eingöngu til þjóðernis eða skráningar fyrirtækis. Ráðuneytið vill í þessu samhengi benda á aðgerðir sem fyrirtækið Microsoft hefur farið í til að tryggja að gögn evrópskra ríkja séu geymd og unnin í Evrópu. Um er ræða tæknilegt fyrirkomulag milli Microsoft og Evrópusambandsins sem er ætlað að tryggja að evrópsk gögn, unnin í kerfum Microsoft, séu eingöngu geymd og unnin innan Evrópu (á ensku nefnt „Microsoft EU Data Boundary“).

     3.      Hefur ráðuneytið skilgreint stafrænt fullveldi í netmiðlun þess?
    Ekki hefur verið sett fram ein sameiginleg, formleg skilgreining á stafrænu fullveldi í netmiðlun ráðuneytisins. Hins vegar er í framkvæmd tekið mið af sömu meginsjónarmiðum, svo sem yfirráðum yfir gögnum, öryggi, aðgangsstýringum, staðsetningu vinnslu og geymslu gagna, samræmi í lausnum og því að draga úr óþarfa ósjálfstæði gagnvart einstökum þjónustuaðilum.

     4.      Er rótarfang, vefur, póstþjónn eða nafnaþjónn ráðuneytisins skráður á Íslandi?
    Lén ráðuneytisins eru skráð á Íslandi undir landshöfuðléninu „.is“ hjá skráningarstofunni Internet á Íslandi hf. (ISNIC). Ráðuneytið er skráður lénhafi, en ISNIC sem skráningarstofa heldur utan um skráningu lénanna. Í lögum um íslensk landshöfuðlén, nr. 54/2021, er jafnframt kveðið á um að lögheimili skráningarstofu sé á Íslandi og að rétthafaskrá og vinnsla hennar séu staðsett hér á landi. Þá á ríkissjóður forkaupsrétt að hlutum í ISNIC samkvæmt bráðabirgðaákvæði laganna.
    Framangreind skráning ræður þó ekki ein og sér úrslitum um hvar undirliggjandi vefþjónusta, póstþjónusta eða nafnaþjónusta er rekin. Það helgast af því að lénaskráning og rekstur viðkomandi þjónustu fara ekki endilega saman og slíkar lausnir geta byggt á mismunandi þjónustuumhverfi.

     5.      Hefur verið tryggt innan ráðuneytisins að tölvupóstur sé virkur ef samband rofnar við útlönd?
    Ekki er unnt að fullyrða að tölvupóstur haldist virkur án truflana ef samband við útlönd rofnar, þar sem þjónustan byggist að verulegu leyti á skýjalausnum sem reknar eru utan Íslands. Hins vegar eru afrit gagna í sameiginlegum skýjageirum UMBRU einnig til á Íslandi. Slík afrit styðja við endurreisn þjónustu. Ljóst er þó að það myndi taka tíma að koma henni aftur að fullu í rekstur ef alvarleg röskun yrði.
    Ráðuneytið er í samstarfi við Farice og unnið er að tengingu varaleiðar um gervihnetti sem nýtist ef algjört rof verður á gagnaleiðum um sæstrengi.
    Þetta er því fyrst og fremst spurning um viðbúnað, afritun og endurreisnargetu, ásamt forgangsröðun umferðar um varaleiðir, fremur en að unnt sé að tryggja órofna virkni við slíkar aðstæður.