Ferill 540. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1084 — 540. mál.
Svar
innviðaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um vetrarþjónustu á Norðurlandi eystra.
1. Hver hefur árlegur kostnaður verið síðastliðin fimm ár vegna vetrarþjónustu á Víkurskarði?
Í eftirfarandi töflu má sjá yfirlit yfir kostnað við vetrarþjónustu á Víkurskarði á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru án virðisaukaskatts og á verðlagi hvers árs:
| Ár | Snjómokstur | Hálkuvörn og færðargreining (áætlað 20%) | Alls kr. |
| 2025 | 3.977.098 | 795.420 | 4.772.518 |
| 2024 | 11.181.957 | 2.236.391 | 13.418.348 |
| 2023 | 15.129.102 | 3.025.820 | 18.154.922 |
| 2022 | 18.584.225 | 3.716.845 | 22.301.070 |
| 2021 | 22.597.002 | 4.519.400 | 27.116.402 |
| 2020 | 17.479.126 | 3.495.825 | 20.974.951 |
Upphæðir innihalda vinnu við mokstur og áætlaðan kostnað við hálkuvörn og færðargreiningu (eftirlit) á Víkurskarði (84).
Meðfylgjandi tafla sýnir þróun vetrardagsumferðar á Víkurskarði undanfarin ár. Vetrardagsumferð á árinu 2025 liggur ekki fyrir þegar svar við fyrirspurn er tekið saman. Hún er meðaltalsumferð á dag yfir vetrarmánuðina desember, janúar, febrúar og mars.
| Ár | VDU |
| 2024 | 135 |
| 2023 | 100 |
| 2022 | 91 |
| 2021 | 86 |
| 2020 | 54 |
2. Liggur fyrir tillaga frá Vegagerðinni um bætta vetrarþjónustu á Dettifossvegi? Ef svo er, samkvæmt hvaða reglu um vetrarþjónustu er lagt til að henni verði sinnt og hver er áætlaður kostnaður við hana?
Vetrarþjónustu á Dettifossvegi samkvæmt núgildandi vinnureglum má sjá í eftirfarandi töflu:
| Vegkafli | Lengd (km) | Vinnuregla og þjónustuflokkur |
| Dettifossvegur (862): Hringvegur – Dettifossvegur vestri | 21,1 km | G-regla, þjónustufl. 4 |
| Dettifossvegur vestri (886): á bílaplan | 3,0 km | G-regla, þjónustufl. 4 |
| Dettifossvegur (862): Dettifossvegur vestri – Norðausturvegur | 29,7 km | Engin þjónusta |
| SAMTALS | 53,8 km |
Í eftirfarandi töflu má sjá yfirlit yfir kostnað við vetrarþjónustu á Dettifossvegi á árunum 2020–2025, fjárhæðir eru án virðisaukaskatts og á verðlagi hvers árs:
| Ár | Snjómokstur | Færðargreining og hálkuvörn (áætlað 20%) | Alls kr. |
| 2025 | 754.388 | 150.878 | 905.266 |
| 2024 | 1.564.701 | 312.940 | 1.877.641 |
| 2023 | 2.103.138 | 420.628 | 2.523.766 |
| 2022 | 2.734.037 | 546.807 | 3.280.844 |
| 2021 | 2.151.350 | 430.270 | 2.581.620 |
| 2020 | 192.395 | 38.479 | 230.874 |
Upphæðir innihalda vinnu við mokstur og áætlaðan kostnað við færðargreiningu (eftirlit) og hálkuvarnir á Dettifossvegi (862).
Vetrardagsumferð á Dettifossvegi (862), syðri leiðinni sem er í G-reglu, hefur vaxið úr 5 bílum í 40 bíla síðastliðin fimm ár.
Vegagerðin yfirfer árlega hvort breytingar á aðstæðum og umferð kalli á endurskoðun mokstursreglna á vegum landsins í samræmi við reglur um vetrarþjónustu. Er þar fyrst og fremst horft til umferðar sem um vegina fer og þróunar hennar. Gerðar eru tillögur til yfirstjórnar Vegagerðarinnar sem síðan fara áfram til ráðherra samgöngumála til afgreiðslu og meðferðar. Vinnureglur fyrir vetrarþjónustu hafa verið afgreiddar með reglugerð.
Mótaðar hafa verið sviðsmyndir um aukna vetrarþjónustu á Dettifossvegi (862), ef fjárveitingar til verkefnisins leyfa. Ganga þær sviðsmyndir út á að Dettifossvegur allur fari í mokstur samkvæmt E-reglu og þjónustuflokki 3. Það þýðir reglubundna þriggja daga vetrarþjónustu í viku.
Kostnaður við slíka breytingu er áætlaður um 27 millj. kr. á ári. Þessi greining miðast við að snjómoksturstækin sem þjónusta svæðið geti bætt akstursleiðinni við. Áætlaður kostnaður inniheldur ekki færðargreiningu (eftirlit) og hálkuvarnarefni. Áætlunin er einnig með fyrirvara um mögulegan aukakostnað vegna lengri akstursleiðar vetrarþjónustubifreiðar frá upphafsstað.
3. Hyggst ráðherra beita sér fyrir bættri vetrarþjónustu á Dettifossvegi?
Umfang og þjónustustig vetrarþjónustu takmarkast á hverjum tíma við þær fjárveitingar sem Alþingi veitir til málaflokksins. Markmið stjórnvalda er að þjónusta á vegum komi til móts við þarfir samfélagsins á hverjum tíma með bæði gagnsæjum og hagkvæmum hætti. Einmitt þess vegna er þjónustan skipulögð á grunni reglna sem gilda um land allt og taka mið af umferðarþunga.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að víkja frá eða breyta almennum reglum sem gilda um útfærslu vetrarþjónustu hér á landi.