Ferill 628. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1089 — 628. mál.
Beiðni um skýrslu
frá fjármála- og efnahagsráðherra um styttingu vinnuvikunnar.
Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni, Bryndísi Haraldsdóttur, Diljá Mist Einarsdóttur, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, Jens Garðari Helgasyni, Jóni Gunnarssyni, Jóni Pétri Zimsen, Njáli Trausta Friðbertssyni, Ólafi Adolfssyni, Rósu Guðbjartsdóttur, Sigurði Erni Hilmarssyni, Tómasi Þór Þórðarsyni, Vilhjálmi Árnasyni og Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur.
Með vísan til 54. gr. stjórnarskrárinnar og 54. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að fjármála- og efnahagsráðherra flytji Alþingi skýrslu um styttingu vinnuvikunnar. Í skýrslunni verði gerð grein fyrir:
a. árlegum kostnaði ríkissjóðs vegna styttingar vinnuvikunnar, sundurliðað eftir ráðuneytum, málaflokkum og undirstofnunum,
b. fjölgun stöðugilda vegna styttingarinnar og þeim kostnaði sem hlotist hefur af þeirri fjölgun, sundurliðað eftir ráðuneytum, málaflokkum og undirstofnunum fyrir hvert ár.
Greinargerð.