Ferill 80. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1093 — 80. mál.
3. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til sóttvarnalaga.
Frá 1. minni hluta velferðarnefndar.
Óumdeilt er að COVID-19-faraldurinn hafði víðtækar, og í vissum tilvikum óafturkræfar, neikvæðar afleiðingar hér á landi, hvort sem litið er til efnahagslegra eða félagslegra þátta. Í ljósi þess og þeirra víðtæku skerðinga sem urðu á réttindum borgaranna í COVID-19-heimsfaraldrinum telur 1. minni hluti brýnt að skipuð verði rannsóknarnefnd Alþingis sem fái það hlutverk að greina ákvarðanir stjórnvalda í heimsfaraldrinum, þ.m.t. sóttvarnaaðgerðir í stjórnskipulegu tilliti. Það sætir furðu að þrátt fyrir að rúm sex ár séu liðin frá því að heimsfaraldurinn hófst og um fjögur ár síðan öllum sóttvarnaaðgerðum var aflétt hafi ekki enn farið fram heildstæð greining á því hvernig ákvarðanir stjórnvalda í heimsfaraldrinum samræmdust grunnreglum réttarríkisins. Lagalegar hliðar sóttvarnaaðgerða voru ekki til skoðunar í skýrslu nefndar um áfallastjórnun stjórnvalda í COVID-19, sem skilað var til forsætisráðherra í októbermánuði 2022, en í skýrslunni er sérstaklega tekið fram að í henni sé „ekki tekin afstaða um undirbúning einstakra ákvarðana eða stjórnvaldsfyrirmæla um opinberar sóttvarnaráðstafanir“ né heldur hvort tilteknar ráðstafanir hafi „verið í samræmi við meðalhóf, jafnræði o.s.frv.“ Í skýrslunni segir enn fremur: „Til að framkvæma slíkt mat þyrfti í hverju tilviki að fara fram rannsókn á þeim upplýsingum og aðstæðum sem voru fyrir hendi á þeim tíma sem viðkomandi ákvarðanir voru teknar. Og til að setja fram ályktanir um lögmæti aðgerða í einstökum tilvikum þyrfti jafnframt að tryggja fullnægjandi rannsókn og gagnaöflun. Eins og áður hefur komið fram (sbr. kafla 3) hefur greining vegna þessarar skýrslu ekki verið lögð upp með þeim hætti. Þörf kann engu að síður að vera á slíkri athugun […]“.
Í ársskýrslu umboðsmanns Alþingis fyrir árið 2021 er tekið í sama streng, en þar segir: „Ekki er ofsagt að vegna COVID-19 hafi reynt á þanþol grunnreglna réttarríkisins. Afskipti umboðsmanns af málefnum tengdum COVID-19 á síðastliðnum tveimur árum og í upphafi þess sem nú er að líða eru til vitnis um að andspænis yfirvofandi og sumpart ókunnri hættu hafa stjórnvöld rúmar heimildir, á grundvelli laga og ólögfestra reglna, til að fullnægja skyldu sinni til að grípa til viðeigandi ráðstafana til verndar lífi og heilsu borgaranna, m.a. með inngripi í grundvallarréttindi. Eftir því sem tíminn líður og forsendur breytast minnkar þetta svigrúm hins vegar og auknar kröfur eru gerðar til þess að athafnir stjórnvalda grundvallist á lögum og taki nægilegt tillit til grundvallarréttinda þannig að meðalhófs sé gætt. Sú hætta virðist óneitanlega fyrir hendi að eftir langvarandi ástand, líkt og það sem skapaðist í heimsfaraldrinum, fari stjórnvöld í auknum mæli að líta á skerðingu grundvallarréttinda sem léttvæga eða jafnvel sjálfsagðan hlut með þeirri afleiðingu að réttaröryggi borgaranna skerðist til frambúðar. Andstætt ýmsum nágrannaríkjum okkar þá virðast enn sem komið er engar ráðagerðir uppi hér á landi um heildstæða úttekt, m.a. m.t.t. grunnreglna réttarríkisins, á þeim ráðstöfunum sem ráðist var í vegna heimsfaraldursins.“
Mikilvægt er að dreginn verði lærdómur af heimsfaraldrinum á öllum sviðum, ekki síst hvað varðar þær aðgerðir sem gripið var til og voru til þess fallnar að skerða frelsi og ferðir almennings og er því rétt að rannsóknarnefnd verði falið að meta sérstaklega hvernig sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda samræmdust mannréttindaákvæðum stjórnarskrárinnar. Enn fremur er rétt að rannsóknarnefndin athugi áhrif ákvarðana á atvinnulífið og efnahagsmál almennt en sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda ollu fólki, fyrirtækjum og ríkissjóði eðli máls samkvæmt gríðarlegu fjárhagslegu tjóni og mikilvægt er að draga lærdóm af þeim aðgerðum. Þá verða ekki vanmetin félagsleg áhrif sóttvarnaaðgerða, til að mynda áhrif á geðheilbrigði og hagsmuni barna og ungmenna. Langvarandi einangrun, lokun skóla og samkomubann geta haft víðtæk áhrif á andlega heilsu fólks. Fullt tilefni er til að meta þau áhrif sérstaklega og hvort þau áhrif vari að einhverju leyti enn.
Lagt er til að ráðherra verði falið að leggja fram tillögu um skipan rannsóknarnefndar sem verði lögð fram eigi síðar en á vorþingi 2027.
Að framangreindu virtu leggur 1. minni hluti til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
Við bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi:
Ráðherra skal, eigi síðar en á vorþingi 2027, leggja fyrir Alþingi tillögu til þingsályktunar um skipan rannsóknarnefndar, sbr. lög um rannsóknarnefndir, nr. 68/2011, um aðgerðir stjórnvalda tengdar heimsfaraldri COVID-19.
Í tillögunni skal leggja til að rannsökuð verði viðbrögð stjórnvalda í heimsfaraldrinum og áhrif þeirra á íslenskt samfélag, svo sem efnahagsmál og hagsmuni einstaklinga. Þá skal nefndin rannsaka sóttvarnaaðgerðir stjórnvalda í heimsfaraldrinum, sérstaklega með hliðsjón af mannréttindaákvæðum stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944.
Alþingi, 20. apríl 2026.
| Sigurður Örn Hilmarsson, frsm. | Rósa Guðbjartsdóttir. |