Ferill 496. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
Þingskjal 1096 — 496. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 og 333/2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi), nr. 172/2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun), nr. 176/2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka), nr. 249/2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) og nr. 294/2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
1. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 332/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/789 frá 17. apríl 2019 um reglur um nýtingu höfundarréttar og skyldra réttinda sem gilda um tilteknar netútsendingar útvarpsfyrirtækja og endurvarp hljóðvarps- og sjónvarpsefnis og um breytingu á tilskipun ráðsins 93/83/EBE.
2. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 333/2023 frá 8. desember 2023 um breytingu á XVII. viðauka (Hugverkaréttindi) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/790 frá 17. apríl 2019 um höfundarétt og skyld réttindi á stafræna innri markaðnum og um breytingu á tilskipunum 96/9/EB og 2001/29/EB.
3. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á II. viðauka (Tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og vottun) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar að innleiða Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) smám saman, skylduna til að tilkynna um það ef truflanir verða á afhendingu eða ef afhendingu er hætt og um umbreytingarákvæði vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi.
4. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 176/2025 frá 11. júlí 2025 um breytingu á IV. viðauka (Orka) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn eftirfarandi gerðir:
a. Tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 frá 11. desember 2018 um að auka notkun orku frá endurnýjanlegum orkugjöfum.
b. Framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2022/759 frá 14. desember 2021 um breytingu á VII. viðauka við tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/2001 að því er varðar aðferðafræði fyrir útreikning á magni endurnýjanlegrar orku sem er notuð til kælingar og fjarkælingar.
5. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 249/2025 frá 24. október 2025 um breytingu á XX. viðauka (Umhverfismál) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1849 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/852 um kvikasilfur að því er varðar tannsilfur og aðrar vörur með viðbættu kvikasilfri sem falla undir framleiðslu-, innflutnings- og útflutningsbann.
6. Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 294/2025 frá 5. desember 2025 um breytingu á IX. viðauka (Fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2025/1496 frá 12. júní 2025 um breytingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 575/2013 að því er varðar framkvæmdardagsetningu krafna um eiginfjárgrunn vegna markaðsáhættu.
Samþykkt á Alþingi 20. apríl 2026.