Ferill 506. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1107  —  506. mál.

2. umræða.


Nefndarálit


um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, nr. 112/2015 (hlutverk, ráðgjafarnefnd, forstjóri o.fl.).

Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.


    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá atvinnuvegaráðuneyti, Hafrannsóknastofnun, Deloitte, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Landssambandi smábátaeigenda, Bláa hagkerfinu ehf., Landssambandi veiðifélaga og Laxfiskum ehf., Jóhanni Sigurjónssyni og Jóni Kristjánssyni.
    Nefndinni bárust níu umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um Hafrannsóknastofnun, rannsókna- og ráðgjafarstofnun hafs og vatna, nr. 112/2015. Markmið frumvarpsins er að styrkja lagaramma utan um stofnunina og gera henni betur kleift að sinna þeim verkefnum sem henni eru falin. Ákvæði frumvarpsins byggjast m.a. á þeim ábendingum sem fram komu í skýrslu Deloitte um greiningu á stöðu stofnunarinnar. Mat meiri hlutans er að almennt hafi umsagnaraðilar verið jákvæðir í garð þeirra breytinga sem lagðar eru til með frumvarpinu. Telur meiri hlutinn að þær séu tímabærar og að þær komi til móts við hluta þeirra athugasemda sem gerðar hafa verið við starfsemi hennar síðustu misseri.

Umfjöllun nefndarinnar.
Samkeppnisrekstur.
    Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu fer hluti þeirrar þjónustu sem stofnunin veitir fram á samkeppnismarkaði, einkum á sviði ferskvatnsverkefna og er beinlínis gert ráð fyrir slíkum verkefnum í gildandi lögum um stofnunina.
    Tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið sem fram komu fyrir nefndinni og í skýrslu Deloitte um að endurmeta þurfi hlutverk ferskvatnssviðs með það að markmiði að kjarnaverkefni séu í forgangi og þjónustuverkefni færð til einkaaðila eins og kostur er. Í skýrslunni kemur auk þess fram að möguleiki sé á því að mörgum ferskvatnsþjónustuverkefnum sé sinnt af öðrum en stofnuninni sjálfri.
    Leggur meiri hlutinn áherslu á að unnið verði áfram með þær ábendingar sem fram koma í áðurnefndri skýrslu. Jafnframt er það undirstrikað sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að æskilegt væri að leita leiða til að draga frekar úr samkeppnisstarfsemi stofnunarinnar og að henni verði skapað frekara svigrúm til að sinna lögbundnum verkefnum.

Forstjóri stofnunarinnar (2. gr.).
    Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á 3. gr. laganna, þ.e. að fallið verði frá gildandi kröfu um að forstjóri Hafrannsóknastofnunar hafi háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar. Í stað þess er lagt til að mælt verði fyrir um að forstjóri skuli hafa háskólamenntun sem nýtist í starfi.
    Skiptar skoðanir voru á meðal umsagnaraðila varðandi þetta atriði frumvarpsins. Í umsögn SFS kemur m.a. fram að mikilvægt sé að líta til víðtækrar hæfni umsækjenda. Þar geti sannanlega annars konar hæfni en háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar nýst vel í starfi forstjóra. Í öðrum umsögnum komu m.a. fram athugasemdir um að þessi breyting fæli í sér afturför og sjónarmið uppi um að breyttar kröfur væru ekki í takt við starfið.
    Líkt og fram kemur í greinargerð með frumvarpinu hefur þróun hér á landi verið í þá átt að löggjafinn hefur dregið smám saman úr kröfum til fagmenntunar og sérhæfingar forstjóra á fagsviðum stofnana sinna og aukin áhersla lögð á rekstrarlega ábyrgð, árangursstjórnun og leiðtogafærni. Sú breyting sem lögð er til með frumvarpinu er í samræmi við þessa þróun en meiri hlutinn undirstrikar að breytingin kemur ekki í veg fyrir að forstjóri stofnunarinnar hafi háskólamenntun á verkefnasviði stofnunarinnar.

Veiðiráðgjöf og árangursmælingar.
    Fyrir nefndinni var nokkuð fjallað um veiðiráðgjöf Hafrannsóknastofnunar. Komu fram athugasemdir og ábendingar um að engir skilgreindir árangursmælikvarðar væru til fyrir veiðiráðgjöf stofnunarinnar, sem hefði sætt gagnrýni á undanförnum árum vegna ráðgjafar um veiði á ýmsum fisktegundum. Þau sjónarmið birtust í þeim umsögnum sem bárust nefndinni og í áðurnefndri skýrslu Deloitte.
    Bendir meiri hlutinn á í því samhengi að með frumvarpinu er lagt til að lögfest verði skylda til að móta langtímastefnu sem taki einkum til rannsókna og endurspegli áherslur stofnunarinnar til lengri tíma. Þá tekur meiri hlutinn undir þau sjónarmið að ráðgjöf stofnunarinnar skuli ávallt byggjast á bestu og áreiðanlegustu gögnum sem völ er á og á traustum vísindalegum grunni. Mikilvægt er að nýtingarsjónarmið verði sett í öndvegi og að afli sé veigamikill þáttur í að meta árangur af ráðgjafarstarfi stofnunarinnar. Telur meiri hlutinn mikilvægt að árangursmælikvarðar vegna veiðiráðgjafar séu aðgengilegir, skýrir og mælanlegir.

Ráðgjafarnefndin.
    Nefndin fjallaði um breytt hlutverk ráðgjafarnefndar sem kveðið er á um í frumvarpinu.
    Í 4. gr. laganna er fjallað um ráðgjafarnefnd sem forstjóri stofnunarinnar hefur sér til ráðuneytis og ráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Með frumvarpinu er lagt til að gerðar verði breytingar á ráðgjafarnefnd stofnunarinnar, m.a. að ekki verði tæmandi talið í lögunum hverjir tilnefna fulltrúa í nefndina. Samkvæmt greinargerð með frumvarpinu er ekki verið að hrófla við eða útiloka þá aðila sem hingað til hafa tilnefnt í ráðgjafarnefndina og áfram gert ráð fyrir því að helstu hagsmunaaðilar eigi sæti í nefndinni.
    Við umfjöllun í nefndinni kom fram að ráðgjafarnefndin hefði á síðustu árum ekki verið mjög virk og hefði haft nokkuð óljóst og ómarkvisst hlutverk, einna helst upplýsingamiðlun milli stofnunarinnar og helstu hagaðila. Voru umsagnaraðilar almennt jákvæðir í garð þeirrar breytingar sem lögð er til með frumvarpinu og telur meiri hlutinn hana til bóta. Mikilvægt er að ráðgjafarnefndin verði efld og taki þátt í langtímastefnumótun stofnunarinnar og að sjónarmið aðila á ólíkum sviðum fái að heyrast.

Aðgengi að upplýsingum og efling vísindastarfs.
    Nefndin fjallaði einnig nokkuð um aðgengi að gögnum og eflingu vísindastarfs á sviði hafrannsókna. Komu fram ábendingar í umsögnum sem bárust nefndinni um að aðgangi rannsóknaraðila og fyrirtækja hefði verið nokkuð ábótavant í áranna rás. Telur meiri hlutinn mikilvægt að auðvelda aðgang einstaklinga og fyrirtækja að gögnum sem stofnunin hefur yfir að ráða. Tækifæri geta falist í því að fá fleiri sjónarmið og tækni- og reiknigetu að vísindastarfi á sviði stofnunarinnar, þar á meðal rafeindamerkingar, frekari notkun gervigreindar og gögn úr fiskileitartækjum fiskiskipaflotans.
    Markvissari miðlun upplýsinga geti haft í för með sér eflingu vísindastarfs í greininni og gegni mikilvægu hlutverki í þróun og nýsköpun, þ.m.t. með aukinni þátttöku háskólanna í vísindastarfi og rannsóknum og við að efla áhuga ungs fólks á vísindastarfi í greininni. Telur meiri hlutinn mikilvægt að samstarf stofnunarinnar við háskólasamfélagið verði eflt, t.d. við Háskólann á Akureyri þar sem kennd er sjávarútvegsfræði, og leggur áherslu á þýðingu slíks samstarfs fyrir greinina í heild.

    Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

    Eydís Ásbjörnsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

Alþingi, 21. apríl 2026.

Lilja Rafney Magnúsdóttir,
form.
Ingvar Þóroddsson,
frsm.
Eydís Ásbjörnsdóttir.
Karólína Helga Símonardóttir. Kristján Þórður Snæbjarnarson. Sigurjón Þórðarson.