Ferill 632. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Microsoft Word.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1108 — 632. mál.
Stjórnarfrumvarp.
Frumvarp til laga
um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna (viðmið uppfærslu launa).
Frá fjármála- og efnahagsráðherra.
I. KAFLI
Breyting á lögum um laun forseta Íslands, nr. 10/1990.
1. gr.
2. gr.
Laun forseta Íslands skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki meiri en samtals 3,5%1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
II. KAFLI
Breyting á lögum um þingfararkaup alþingismanna og þingfararkostnað, nr. 88/1995.
3. gr.
4. gr.
Þingfararkaup skal hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. 15. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun þingfararkaups ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
III. KAFLI
Breyting á lögum um Stjórnarráð Íslands, nr. 115/2011.
5. gr.
6. gr.
7. gr.
Laun forsætisráðherra, annarra ráðherra og ráðuneytisstjóra skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 3. gr. og 3. mgr. 16. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sömu ákvæðum 1. apríl og 1. október 2028.
IV. KAFLI
Breyting á lögum um dómstóla, nr. 50/2016.
8. gr.
Laun skv. 1.–3. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið sem er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
9. gr.
Laun forseta Hæstaréttar, varaforseta Hæstaréttar, annarra hæstaréttardómara, forseta Landsréttar, varaforseta Landsréttar, annarra landsréttardómara, dómstjórans í Reykjavík, varadómstjórans í Reykjavík, dómstjóra utan Reykjavíkur og annarra héraðsdómara skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 4. mgr. 44. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
V. KAFLI
Breyting á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008.
10. gr.
Launin skv. 3. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið sem er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
11. gr.
Laun skv. 3. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið sem er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
12. gr.
Laun skv. 6. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið sem er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
13. gr.
Laun ríkissaksóknara, vararíkissaksóknara, annarra saksóknara hjá ríkissaksóknara, héraðssaksóknara, varahéraðssaksóknara, saksóknara sem stýrir sviði eða skrifstofu, annarra saksóknara hjá héraðssaksóknara og lögreglustjóra skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 1. og 4. mgr. 20. gr., 4. mgr. 22. gr. og 7. mgr. 24. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sömu ákvæðum 1. apríl og 1. október 2028.
VI. KAFLI
Breyting á lögum um Seðlabanka Íslands, nr. 92/2019.
14. gr.
Laun skv. 1. mgr. og 2. mgr. skulu taka breytingum 1. apríl og 1. október ár hvert samkvæmt ákvæði þessu. Hagstofa Íslands skal reikna hlutfallslega breytingu á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna. Við útreikninginn er í hvort sinn mæld breyting á meðaltali reglulegra launa allra fullvinnandi ríkisstarfsmanna þannig að reiknað er meðaltal launa tveggja samliggjandi ársfjórðunga. Vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert er borið saman meðaltal tveggja fyrri ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo seinni ársfjórðunga sama árs, en við uppfærslu 1. október ár hvert er borið saman meðaltal tveggja seinni ársfjórðunga síðastliðins almanaksárs við tvo fyrri ársfjórðunga þess árs þegar laun eru uppfærð. Viðmiðunartímabilið sem er til 1. janúar vegna uppfærslu 1. apríl ár hvert og til 1. júlí vegna uppfærslu 1. október ár hvert. Hagstofa Íslands birtir útreikninga sína og hlutfallslega breytingu á grundvelli þeirra eigi síðar en 30 almanaksdögum fyrir væntanlega uppfærslu launa. Við launaafgreiðslu uppfærir Fjársýsla ríkisins krónutölufjárhæð launa til samræmis við útreikninga Hagstofu.
15. gr.
Laun seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. 5. gr. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
VII. KAFLI
Breyting á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938.
16. gr.
17. gr.
Laun ríkissáttasemjara skulu hækka um 3,5% 1. júlí 2026 og um 3,5% 1. júlí 2027.
Þrátt fyrir ákvæði 7. mgr. 20. gr. verður uppsöfnuð árleg hlutfallsleg hækkun launa ekki hærri en samtals 3,5% 1. apríl 2028 annars vegar og 1. október 2028 hins vegar í stað hækkana samkvæmt sama ákvæði 1. apríl og 1. október 2028.
18. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
Fyrir lok árs 2031 skal ráðherra skipa starfshóp, m.a. með fulltrúum tilnefndum af aðilum vinnumarkaðarins, sem leggja skal mat á reynslu af aðferðafræði og fyrirkomulagi uppfærslu launa samkvæmt ákvæðum laga þessara. Starfshópurinn skal skila skýrslu til ráðherra um framkvæmdina og mögulegar umbætur.
Greinargerð.
Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.