Ferill 584. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1110 — 584. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Ingibjörgu Davíðsdóttur um aðkeypta þjónustu og skoðanakannanir.
1. Hefur ráðuneytið keypt utanaðkomandi ráðgjöf eða þjónustu, innlenda eða erlenda, vegna eða á sviði öryggis- og varnarmála á tímabilinu frá janúar 2020 til febrúar 2026? Ef svo er, er óskað eftir upplýsingum um hvað slík ráðgjöf eða þjónusta fól í sér og á hvaða sviðum öryggis- og varnarmála. Þá er einnig óskað eftir upplýsingum um kostnað, sundurliðað eftir árum og ráðgjafar- eða þjónustuveitendum.
Í töflu í fylgiskjali er að finna yfirlit yfir gjöld úr fjárhagsbókhaldskerfi ríkisins sem eru flokkuð sem aðkeypt þjónusta frá 2020 til febrúar 2026 á viðföngum varnarmálaskrifstofu. Undanskilin eru þjónustukaup með undirflokkunina; bankakostnaður, ferðakostnaður, flutningskostnaður, húsnæðismál útsendra starfsmanna, risna og rekstrarvörur. Einnig eru ekki sundurgreindar verktakagreiðslur til einstaklinga að heildarupphæð 21 millj. kr., til tólf einstaklinga. Af þessari upphæð eru 16,2 millj. kr. vegna verktakasamnings um stuðning við opnun loftrýmis í Kósovó.
Sú þjónusta sem tilgreind er má skilgreina sem almenna stoðþjónustu vegna ýmissa verkefna bæði frá aðilum innan stjórnsýslunnar og einkaaðilum, en sjaldnast er um að ræða aðkeypta efnislega sérfræðiþjónustu á sviði öryggis- og varnarmála. Sem dæmi má taka aðkeypta þjónustu vegna viðburða, umbrot og hönnun útgefins efnis, ljósmyndun (m.a. passamyndir fyrir starfsfólk), greiðslu fyrir þjálfun til handa Úkraínu, varðgæslu lögreglu í héraði, tryggingar starfsmanna á ferðalögum erlendis og stoðþjónustu sálfræðinga.
Stærsti einstaki útgjaldaliðurinn eru reglubundnar greiðslur til Landhelgisgæslu Íslands vegna reksturs á varnamálasviði Landhelgisgæslunnar sem sinnir framkvæmd varnartengdra verkefna í umboði utanríkisráðuneytisins og eru skilgreind í þjónustusamningi. Samtals eru greiðslur samkvæmt þessum samningi að fjárhæð um 15,1 milljarður kr. yfir tímabilið.
Þar næst koma greiðslur til embættis ríkislögreglustjóra (RLS) að fjárhæð 687 millj. kr. yfir tímabilið. Greiðslurnar koma að mestu til vegna þeirra varnartengdu verkefna sem RLS sinnir fyrir hönd utanríkisráðuneytisins sem og sólarhringsöryggisgæslu sem stofnunin sinnti í húsakynnum utanríkisráðuneytisins á Rauðarárstíg 25. Í nýjum húsakynnum við Austurhöfn sinnir Securitas öryggisgæslu. Varnartengd verkefni sem RLS sinnir í umboði utanríkisráðuneytisins eru skilgreind í þjónustusamningi.
Samtals er um að ræða útlagðan kostnað að fjárhæð um 16,04 milljarða kr. yfir tímabilið, en samanlagðar greiðslur til Landhelgisgæslu Íslands og embættis ríkislögreglustjóra nema 15,8 milljörðum kr.
2. Hefur ráðuneytið keypt skoðanakannanir eða spurningavagna vegna Evrópusambandsmála á tímabilinu frá janúar 2022 til febrúar 2026? Ef svo er, hversu oft og á hvaða tímabilum? Hvernig hafa spurningarnar verið orðaðar? Hafa allar niðurstöður verið birtar opinberlega? Hver hefur kostnaður ráðuneytisins vegna stakra kannana eða spurningavagna verið? Svar óskast sundurliðað eftir árum.
Utanríkisráðuneytið birtir árlega skoðanakönnun um afstöðu almennings til alþjóðamála, alþjóðasamstarfs og ýmissa þátta í störfum utanríkisþjónustunnar. Rannsóknafyrirtækið Maskína hefur undanfarin ár séð um framkvæmd skoðanakönnunarinnar fyrir ráðuneytið. Kostnaður vegna þessara kannana er misjafn eftir árum vegna fjölda spurninga hverju sinni. Hér fyrir neðan má sjá hvaða spurningar hafa verið lagðar fyrir í könnuninni um Evrópumál á því tímabili sem fyrirspurnin nær til:
– Hversu vel eða illa þekkir þú til samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, EES-samningsins? (2022, 2023, 2024 og 2025)
– Hversu jákvæð(ur/tt) eða neikvæð(ur/tt) ert þú gagnvart aðild Íslands að samningnum um Evrópska efnahagssvæðið, EES-samningsins? (2022, 2023, 2024 og 2025)
– Ertu jákvæð(ur/tt) eða neikvæð(ur/tt) gagnvart Evrópusambandinu? (2022, 2023, 2024 og 2025)
– Hversu vel eða illa þekkir þú til Evrópusambandsins? (2022, 2023, 2024 og 2025)
– Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) því að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhaldandi viðræður Íslands að Evrópusambandinu? (2025)
– Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) því að aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu verði teknar upp að nýju? (2025)
– Ertu hlynnt(ur) eða andvíg(ur/t) inngöngu Íslands í Evrópusambandið? (2025)
– Telur þú að aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi auka eða draga úr efnahagslegum stöðugleika á Íslandi? (2025)
– Telur þú að aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi auka eða draga úr öryggi á Íslandi? (2025)
Heildarkostnaður vegna framangreindra skoðanakannana Maskínu um alþjóðamál, alþjóðasamstarf og ýmsa þætti í störfum utanríkisþjónustunnar er eftirfarandi, sundurliðaður eftir árum:
| 2022 | 2.594.200 kr. |
| 2023 | 2.977.350 kr. |
| 2024 | 2.200.000 kr. |
| 2025 | 3.690.625 kr. |
Utanríkisráðuneytið hefur ekki látið gera sérstakar skoðanakannanir um afstöðu til Evrópusambandsins og Evrópumála á því tímabili sem fyrirspurnin nær til að öðru leyti en að framan var rakið.
Fylgiskjal.
Yfirlit yfir gjöld úr fjárhagsbókhaldskerfi ríkisins sem eru flokkuð sem aðkeypt þjónusta á viðföngum varnarmálaskrifstofu.
| 2020 | 2021 | 2022 | 2023 | 2024 | 2025 | 2026 | Samtals | |
| ADVEL lögmenn ehf. | 538.650 | 2.013.650 | 2.552.300 | |||||
| Alfreð ehf. | 60.500 | 60.500 | ||||||
| Anton Brink Ljósmyndun slf. | 80.600 | 80.600 | 161.200 | |||||
| Atli Hilmarsson ehf. | 1.165.104 | 791.888 | 1.956.992 | |||||
| Auðnast ehf. | 440.000 | 586.000 | 396.000 | 48.000 | 240.000 | 96.000 | 1.806.000 | |
| ÁSAR – þýðingar og túlkun slf. | 888.300 | 888.300 | ||||||
| BlindSpot ehf. | 2.976.000 | 2.976.000 | ||||||
| Exton ehf. | 286.320 | 286.320 | ||||||
| Fasteignasalan INNI ehf. | 200.000 | 200.000 | ||||||
| Faxaflóahafnir sf. | 3.278.163 | 3.278.163 | ||||||
| Fislausnir ehf. | 17.102 | 46.913 | 64.015 | |||||
| Fínlína ehf. | 2.401.710 | 2.401.710 | ||||||
| Fjólubláa húfan ehf. | 124.000 | 124.000 | ||||||
| Gára ehf. | 673.460 | 673.460 | ||||||
| Geislavarnir ríkisins | 5.446.976 | 8.092.458 | 15.656.925 | 29.196.359 | ||||
| KPMG ehf. | 12.000.000 | 12.000.000 | ||||||
| Landhelgisgæsla Íslands | 2.054.300.000 | 2.140.400.000 | 2.215.942.269 | 2.637.759.024 | 2.671.928.837 | 2.802.013.185 | 579.615.013 | 15.101.958.328 |
| Landslög slf. | 65.632 | 65.632 | ||||||
| Litlaprent ehf. | 86.279 | 96.782 | 183.061 | |||||
| Ljósmyndir Rutar og Silju ehf. | 8.200 | 8.500 | 16.998 | 9.500 | 33.155 | 76.353 | ||
| Lögreglustjórinn á Vesturlandi | 3.456.781 | 3.456.781 | ||||||
| Maskína-rannsóknir ehf. | 453.176 | 453.176 | ||||||
| MS Armann skipamiðlun ehf. | 33.580 | 33.580 | ||||||
| Náttúrufræðistofnun | 848.756 | 848.756 | ||||||
| Prentmet Oddi ehf. | 8.985 | 78.877 | 214.706 | 183.434 | 361.734 | 847.736 | ||
| Ríkislögreglustjóri | 46.000.000 | 109.201.609 | 105.695.113 | 199.148.960 | 110.041.239 | 105.961.789 | 11.221.610 | 687.270.320 |
| Samgöngustofa | 1.064.682 | 793.435 | 1.118.747 | 18.906.248 | 18.103.244 | 21.643.174 | 70.948 | 61.700.478 |
| Scriptorium ehf. | 399.900 | 241.200 | 641.100 | |||||
| Securitas hf. | 3.815.313 | 4.946.242 | 0 | 8.761.555 | ||||
| Sena ehf. | 742.787 | 742.787 | ||||||
| Sítrus Studio ehf. | 127.875 | 127.875 | ||||||
| Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs. | 441.750 | 26.041.204 | 17.678.574 | 38.839.800 | 83.001.328 | |||
| Superstofan ehf. | 5.900 | 5.900 | ||||||
| Torg ehf. | 250.909 | 250.909 | ||||||
| Upptekið ehf. | 23.616 | 23.616 | ||||||
| Varðberg | 4.000.000 | 4.000.000 | ||||||
| International SOS | 1.066.502 | 2.791.542 | 1.452.352 | 5.310.396 | ||||
| Verktakagreiðslur til einstaklinga | 17.160.150 | 230.000 | 534.200 | 1.081.200 | 872.638 | 905.000 | 300.000 | 21.083.188 |
| Ýmis kostnaður v/ starfsmanna UTN | 464.722 | 568.170 | 150.062 | 3.004.062 | 497.924 | 177.798 | 83.755 | 4.946.493 |
| Samtals | 2.135.133.704 | 2.257.186.581 | 2.329.470.605 | 2.894.176.064 | 2.835.897.032 | 3.000.281.444 | 592.269.237 | 16.044.414.667 |