Ferill 426. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1112  —  426. mál.


                                  

Svar


félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um ellilífeyri til erlendra ríkisborgara.


     1.      Hversu hárri fjárhæð nam ellilífeyrir árin 2020–2025?
    Í töflu 1 má sjá heildarfjárhæð greidds ellilífeyris á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tafla 1.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
85.206 88.990 94.382 101.927 109.513 119.569
Heimild: Tryggingastofnun.

     2.      Hvernig skiptist ellilífeyririnn eftir kyni?
    Í töflu 2 má sjá hvernig greiddur ellilífeyrir skiptist eftir kyni þeirra sem fengu slíkar greiðslur á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.

Tafla 2.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Karlar 36.658 38.699 41.191 44.702 48.177 52.839
Konur 48.547 50.292 53.191 57.225 61.336 66.729
Heimild: Tryggingastofnun.

     3.      Hversu há fjárhæð rann til erlendra ríkisborgara?
    Í töflu 3 má sjá heildarfjárhæð greidds ellilífeyris til erlendra ríkisborgara á árunum 2020– 2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna.
                                  

Tafla 3.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
1.085 1.197 1.461 1.897 2.192 2.508
Heimild: Tryggingastofnun.

     4.      Hversu há fjárhæð rann þar af til útlendinga með alþjóðlega vernd og umsækjenda um alþjóðlega vernd?
    Í töflu 4 má sjá heildar fjárhæð ellilífeyris sem greiddur var til einstaklinga sem skráðir voru í kerfum Tryggingastofnunar sem einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd á árunum 2020–2025. Fjárhæðir eru í milljónum króna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslu ellilífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar.

Tafla 4.

Ár 2020 2021 2022 2023 2024 2025
93,8 127,9 186,8 313,4 361,7 416,7
Heimild: Tryggingastofnun.


     5.      Hvernig skiptist ríkisfang beggja fyrrgreindra hópa eftir löndum?
    Í töflu 5 má sjá hvernig greiddur ellilífeyrir til einstaklinga sem skráðir voru í kerfum Tryggingastofnunar sem einstaklingar sem fengið hafa alþjóðlega vernd á árunum 2020–2025 skiptist eftir ríkisfangi einstaklinganna. Miðað er við skráð ríkisfang í lok hvers árs. Fjárhæðir eru í milljónum króna. Umsækjendur um alþjóðlega vernd uppfylla ekki skilyrði fyrir greiðslu ellilífeyris samkvæmt lögum um almannatryggingar.
                                  

Tafla 5.

Ár
2020
2021 2022 2023 2024 2025
Venesúela 19,2 29,8 45,9 123,8 152,9 172,3
Ísland* 38,6 52,9 65,8 78,5 108,7 132,3
Afganistan 11,7 12,2 28,3 41,6 30,5 40,4
Sýrland 15,6 19,4 23,3 27,7 24,5 20,9
Palestína 0,0 2,1 8,4 21,4 24,0 37,1
Írak 3,7 3,9 6,3 15,0 10,2 4,4
Íran 0,0 2,5 3,5 3,9 11,0 8,6
Ríkisfangslaus 4,9 5,1 5,4 1,5 0,0 0,0
El Salvador 0,0 0,0 0,0 0,0 0,0 0,7
Samtals 93,8 127,9 186,8 313,4 361,7 416,7
Heimild: Tryggingastofnun.
* Greiðslur til einstaklinga sem fengið hafa íslenskan ríkisborgararétt en voru áður með alþjóðlega vernd og erlent ríkisfang.