Ferill 633. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1118  —  633. mál.




Frumvarp til laga


um breytingu á lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007 (barnalífeyrir).

Frá velferðarnefnd.


1. gr.

    Í stað orðanna „ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar“ í 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laganna kemur: ellilífeyrisþegar, örorkulífeyrisþegar eða sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegar.

2. gr.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

Greinargerð.

    Í 3. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, er kveðið á um að Tryggingastofnun ríkisins sé heimilt að greiða barnalífeyri vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18–20 ára ef annað foreldri eða báðir foreldrar eru látnir, enn fremur ef foreldrar eru ellilífeyrisþegar eða örorkulífeyrisþegar, annað eða báðir. Að mati Tryggingastofnunar var sams konar heimild til greiðslu barnalífeyris til ungmenna á aldrinum 18–20 ára þegar foreldrar þeirra eru sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegar að finna í 3. mgr. 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, fyrir breytingar sem gerðar voru með lögum nr. 104/2024, um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
    Í kjölfar breytinga á örorkulífeyriskerfinu, sem tóku gildi 1. september 2025, var þágildandi 7. gr. laga um félagslega aðstoð felld brott í heild sinni án þess að gætt hafi verið nægilega að samspili ákvæðisins við önnur ákvæði laganna. Frá þeim tíma hefur verið uppi óvissa um lagaheimild til að halda áfram að greiða út umræddar barnalífeyrisgreiðslur til ungmenna á aldrinum 18–20 ára á grundvelli þess að foreldar þeirra eru sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegar.
    Samkvæmt mati félags- og húsnæðismálaráðuneytis rúmast lagabreytingin innan fjárlaga og fjármálaáætlunar fyrir árin 2026–2030 enda er ekki um aukningu á réttindum að ræða miðað við fyrri framkvæmd. Mat ráðuneytisins er að árlegur kostnaður vegna frumvarpsins sé um 30 millj. kr.
    Með frumvarpinu er því lagt til að bæta sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegum í upptalningu 1. málsl. 1. mgr. 3. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, og þannig eyða þeirri óvissu sem uppi hefur verið frá því að breytingar á örorkulífeyriskerfinu tóku gildi 1. september 2025 um greiðslu barnalífeyris vegna skólanáms eða starfsþjálfunar ungmennis á aldrinum 18–20 ára ef annað foreldri eða báðir eru sjúkra- og endurhæfingargreiðsluþegar.