Ferill 319. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1126 — 319. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um réttindi sjúklinga, nr. 74/1997 (takmörkun á beitingu nauðungar).
Frá meiri hluta velferðarnefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá heilbrigðisráðuneyti, Landspítala, embætti landlæknis, Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Sálfræðingafélagi Íslands, Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hrafnistu, Landssamtökunum Þroskahjálp, ÖBÍ réttindasamtökum og Barnaheillum – Save the Children á Íslandi.
Nefndinni bárust 12 umsagnir auk minnisblaðs frá heilbrigðisráðuneyti og eru gögnin aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum nr. 74/1997, um réttindi sjúklinga, og lagt til að lögfest verði meginregla um bann við beitingu nauðungar og lagarammi mótaður um það verklag sem viðhafa skal í heilbrigðisþjónustu hér á landi þegar nauðsynlegt þykir að víkja frá þeirri meginreglu og beita úrræðum sem fela í sér þvinganir, valdbeitingu eða annars konar inngrip í sjálfsákvörðunarrétt, frelsi og friðhelgi einkalífs sjúklinga.
Að öðru leyti er með frumvarpinu lagt til að lögfesta ný ákvæði um skilgreiningu nauðungar og fjarvöktunar, skilyrði fyrir beitingu nauðungar og fjarvöktunar auk málsmeðferðarreglna sem fylgja þarf við og í kjölfar beitingar slíkra inngripa, þ.m.t. skráningarskyldu tilvika, kæruheimilda og réttar til að bera mál undir dómstóla.
Umfjöllun nefndarinnar.
Almennt.
Frumvarp um beitingu nauðungar var fyrst lagt fram á 151. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Síðan þá hefur frumvarp þess efnis verið lagt fram tvívegis á Alþingi. Þegar málið var síðast lagt fram, á 154. löggjafarþingi, hafði frumvarpið tekið breytingum frá því áður en gerðar voru breytingar með hliðsjón af tillögum samráðshóps sem ráðherra setti á fót til að fjalla um afstöðu notendahópa til beitingar nauðungar og þær breytingar á því sviði sem lagðar eru til í frumvarpinu. Frá fyrri framlagningu frumvarpsins á 154. löggjafarþingi voru gerðar nokkrar breytingar á frumvarpinu sem útlistaðar eru í kafla 3.1. í greinargerð með frumvarpinu.
Við meðferð málsins fyrir nefndinni voru umsagnaraðilar jákvæðir fyrir lögfestingu banns við beitingu nauðungar og frumvarpinu almennt en þó með nokkrum ábendingum og athugasemdum.
Skráning nauðungartilvika og beitingar öryggisráðstafana í sjúkraskrá.
Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu fram sjónarmið um að skráning nauðungartilvika og skráning beitingar öryggisráðstafana í sjúkraskrá auki á flækjustig við umönnun sjúklinga og auki á álag í heilbrigðiskerfinu.
Þá var á það bent að á hverjum sólarhring geti mörg þvingandi inngrip átt sér stað sem varði nokkra einstaklinga á sömu legudeild og jafnvel mörg sem varði sama einstaklinginn og því sé augljóst að um töluverða eða verulega viðbótarvinnu sé að ræða fyrir starfsfólk. Þá komu einnig fram ábendingar um mikilvægi þess að skýrt komi fram í reglugerð hvernig skráningu og upplýsingagjöf skuli háttað til þess að hún sé framkvæmanleg og mikilvægi þess að stafræn kerfi til skráningar þvingandi aðgerða í heilbrigðisþjónustu verði komin á það stig að skráningin sjálf valdi ekki verulega auknu álagi á heilbrigðisstarfsfólk og taki tíma frá samskiptum við sjúklinga. Þá komu fram sjónarmið um að aukin umsýsla við skráningu og tilkynningarferli muni kalla á aukinn mannafla í heilbrigðiskerfinu.
Í j-lið 4. gr. frumvarpsins er að finna skyldu ráðherra til að mæla fyrir í reglugerð um nánari framkvæmd samkvæmt VI. kafla A um skráningu og tilkynningu tilvika þar sem tekin er ákvörðun um að víkja frá banni við beitingu nauðungar og mæla fyrir um öryggisráðstafanir á hjúkrunarheimilum og í hjúkrunarrýmum. Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gert sé ráð fyrir að Landspítali og aðrar heilbrigðisstofnanir þurfi að bæta við sig starfsfólki til að ná að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru í frumvarpinu um skráningu. Er í frumvarpinu rakið að gert sé ráð fyrir að fjölgað verði um þrjú stöðugildi heilbrigðisstarfsmanna á Landspítala, þ.e. hálft stöðugildi á þeim legudeildum sem líkur eru á að þurfi að nýta undanþágu frá banni við beitingu nauðungar og einu stöðugildi heilbrigðisstarfsmanns á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Þá sé gert ráð fyrir einu stöðugildi heilbrigðisgagnafræðings á Landspítala og einu stöðugildi samtals vegna heilbrigðisgagnafræðings á öðrum heilbrigðisstofnunum.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytis frá 11. mars 2026 er síðan á það bent að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að nánar verði kveðið á um þessi atriði í reglugerð og að ráðuneytið hyggist eiga í víðtæku samráði við helstu haghafa við gerð þeirrar reglugerðar.
Meiri hlutinn telur að þótt frumvarpið feli sannanlega í sér auknar kröfur á heilbrigðisstarfsfólk þá sé því mætt í frumvarpinu með fjölgun stöðugilda sérstaklega vegna kröfu frumvarpsins um skráningu. Þá beinir meiri hlutinn því til heilbrigðisráðuneytisins að tryggja að álag á starfsfólk í heilbrigðisþjónustu verði takmarkað vegna kröfunnar um skráningu og að mönnun verði tryggð, einkum á þeim deildum þar sem líklegast er að nýta þurfi undanþágur frá banni við nauðung og taka ákvarðanir um öryggisráðstafanir.
Þá vísar meiri hlutinn til þeirrar skyldu ráðherra að mæla fyrir um nánari framkvæmd skráningar og tilkynninga tilvika þar sem teknar eru ákvarðanir um að víkja frá beitingu nauðungar og mæla fyrir um öryggisráðstafanir á hjúkrunarheimilum og í hjúkrunarrýmum og til þess sem fram kom í minnisblaði ráðuneytisins um að ráðuneytið hyggist eiga í víðtæku samráði við helstu haghafa við gerð reglugerðarinnar. Ítrekar meiri hlutinn mikilvægi þess að gott samráð verði haft við helstu haghafa og beinir því til ráðuneytisins að gæta að því að reglugerðin verði skýr, aðgengileg og framkvæmanleg til að koma í veg fyrir að heilbrigðisstarfsfólk eyði dýrmætum vinnutíma í að finna út úr því hvernig að skráningu skuli staðið.
Sérfræðiteymi um beitingu nauðungar.
Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu fram sjónarmið um að óljóst væri hvernig ferli tilkynninga til sérfræðiteymis yrði hagað. Í umsögn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var bent á nauðsyn þess að tryggt verði að tæknilegir innviðir séu til staðar og uppfærðir þannig unnt sé að uppfylla kröfur frumvarpsins um skráningu. Þá komu fram sjónarmið um að skýra þyrfti betur ábyrgðarsvið og ferli tilkynninga, m.a. hver beri ábyrgð á að senda þær og jafnframt skýra nánar hvernig sérfræðiteymið starfar.
Í 3. mgr. f-liðar 4. gr. frumvarpsins kemur fram að heilbrigðisstofnanir og aðrar stofnanir þar sem heilbrigðisþjónusta er veitt skuli mánaðarlega senda sérfræðiteymi skýrslu um beitingu nauðungar eða fjarvöktun hafi slíkar upplýsingar ekki þegar verið sendar teyminu. Upplýsingar um beitingu nauðungar skuli í neyðartilvikum sendar sérfræðiteyminu innan viku frá því að nauðung var beitt. Þá kemur fram í 5. mgr. i-liðar 4. gr. að ráðherra setji nánari reglur um skipan og starfshætti sérfræðiteymisins með reglugerð. Jafnframt er í 1. tölul. j-liðar 4. gr. kveðið á um að ráðherra skuli í reglugerð mæla fyrir um nánari framkvæmd við að víkja frá banni við beitingu nauðungar skv. 27. gr. d, þ.m.t. um neyðartilvik skv. 27. gr. f. og um skráningu og tilkynningu slíkra tilvika skv. 27. gr. g.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að reikna megi með því að venjur skapist um tilvikaskráninguna og að sérfræðiteymið verði leiðandi í að móta framkvæmdina. Sérfræðiteymið muni hafa aðgang að stafrænu skráningarkerfi heilbrigðisstofnana og því sé ekki þörf á að senda teyminu sérstaklega tilkynningar heldur geti teymið kynnt sér upplýsingarnar í kerfinu. Enn fremur segir að skv. 1. tölul. j-liðar 4. gr. setji ráðherra reglugerð um ákvarðanir um að víkja frá banni við beitingu nauðungar, þ.m.t. um neyðartilvik og um skráningu og tilkynningu sem og um hvaða heilbrigðisstarfsmaður geti tekið slíkar ákvarðanir. Þá muni ráðherra einnig setja nánari reglur um skipan og starfshætti sérfræðiteymisins með reglugerð skv. síðari málslið 5. mgr. i-liðar 4. gr. frumvarpsins.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytisins er áréttað að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir tilkomu sérstaks stafræns skráningarkerfis sem muni auðvelda skráningu, en eitt af markmiðunum sem stefnt er að með frumvarpinu er að ávallt liggi fyrir upplýsingar um fjölda tilvika þar sem nauðung í heilbrigðisþjónustu er beitt, til að unnt sé að fylgjast með þróuninni.
Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að nauðsynlegt sé að stafrænt kerfi fyrir skráningu þvingandi aðgerða verði tilbúið til notkunar við gildistöku laganna og ítrekar meiri hlutinn mikilvægi þess. Enn fremur telur meiri hlutinn afar brýnt að reglugerðir sem ráðherra skal setja samkvæmt frumvarpinu verði einnig settar fram sem allra fyrst og í samráði við heilbrigðisstofnanir og starfsfólk til að tryggja sem besta innleiðingu þess. Telur meiri hlutinn brýnt að reglugerðir verði tilbúnar áður en lögin öðlast gildi til þess að heilbrigðisstofnanir hafi ráðrúm til að innleiða verklag samkvæmt þeim.
Breytingartillögur.
Orðskýringar – skilgreining á hugtakinu ferilvöktun (2. gr.).
Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu fram ábendingar, svo sem í umsögn Hrafnistu og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu, um mikilvægi þess að skilgreina hugtakið ferilvöktun í frumvarpinu til að forðast misskilning og aðgreina það frá hugtakinu fjarvöktun sem skilgreint er í 1. tölul. 2. gr. frumvarpsins enda teljist fjarvöktun til nauðungar samkvæmt frumvarpinu en ferilvöktun falli hins vegar ekki undir hugtakið nauðung og teljist til öryggisráðstafana. Þá var jafnframt bent á mikilvægi þess að skýrt kæmi fram í frumvarpinu að viðbrögð starfsfólks við boðum frá ferilvöktunarbúnaði sem feli í sér líkamlega leiðsögn starfsfólks teljist ekki til verulegrar eða viðvarandi skerðingar á ferðafrelsi sjúklings. Meiri hlutinn tekur undir sjónarmið um mikilvægi þess að greina á milli fjarvöktunar annars vegar og ferilvöktunar hins vegar og leggur því til að bæta við skilgreiningu á hugtakinu ferilvöktun í 2. gr. frumvarpsins þar sem komi fram í hvaða tilfellum slíkur búnaður er notaður og að viðbrögð starfsfólks við boðum frá ferilvöktunarbúnaði sem feli í sér líkamlega leiðsögn starfsfólks, sbr. 5. mgr. b-liðar 4. gr. frumvarpsins, teljist ekki til verulegrar eða viðvarandi skerðingar á ferðafrelsi sjúklings skv. 4. mgr. c-liðar 4. gr. frumvarpsins.
Heilabilun í stað vitrænnar skerðingar vegna heilabilunarsjúkdóma (2. mgr. b-liðar 4. gr.).
Fyrir nefndinni komu fram sjónarmið um að skipta orðalaginu vitræn skerðing vegna heilabilunarsjúkdóma út fyrir hugtakið heilabilun. Í umsögnum Hrafnistu og Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu var á það bent að fólk geti verið með heilabilun án þess að það sé vegna heilabilunarsjúkdóma. Hægt sé að vera með heilabilun í kjölfar alvarlegs heilablóðfalls, vegna óafturkræfs heilaskaða í kjölfar langvarandi áfengisneyslu o.s.frv. Hugtakið heilabilun er jafnframt skilgreint í ICD-11, alþjóðlegu viðurkenndu flokkunarkerfi sjúkdóma og heilbrigðisvanda, sem taki þannig til allra þeirra sem þjáist af heilabilun. Leggur meiri hlutinn því til að breyta orðalagi 2. mgr. b-liðar 4. gr. hvað þetta varðar til samræmis við ábendinguna.
Ákvörðun um beitingu öryggisráðstafana og skráning þeirra í sjúkraskrá (3. mgr. b-liðar 4. gr.).
Í 3. mgr. b-liðar 4. gr. frumvarpsins er fjallað um að undir nauðung falli ekki öryggisráðstafanir sem beitt er á hjúkrunar- eða dvalarheimilum og legudeildum sjúkrahúsa og er ætlað að tryggja öryggi og vellíðan heimilismanna. Eru jafnframt tekin dæmi um slíkar öryggisráðstafanir og tekið fram að gæta skuli meðalhófs í beitingu þeirra. Þá er kveðið á um að ákvörðun um beitingu öryggisráðstafana skuli tekin af deildarstjóra eða vaktstjóra hjúkrunar og skráð stafrænt í sjúkraskrá og tilteknar upplýsingar skuli koma fram.
Við umfjöllun nefndarinnar um málið komu fram ábendingar um að læknar ættu einnig að geta tekið ákvörðun um beitingu öryggisráðstafana skv. 3. mgr. b-liðar 4. gr. frumvarpsins enda taki ákvæðið einnig til legudeilda sjúkrahúsa. Þá komu einnig fram ábendingar um að betur færi á að notast við starfsheitið hjúkrunardeildarstjóri í stað þess að notast við starfsheitið deildarstjóri til að forðast of víða skilgreiningu. Á hinn bóginn komu einnig fram sjónarmið um hvort kveða þurfi á um það í lögum að ákvarðanir um öryggisráðstafanir eins og t.d. byltuvarnir skuli ávallt teknar af deildarstjóra eða vaktstjóra hjúkrunar frekar en þeim hjúkrunarfræðingi sem annast sjúklinginn.
Þá komu fram athugasemdir við að orðalag ákvæðisins um skráningu öryggisráðstafana í sjúkraskrá væri óskýrt, hvort það fæli í sér að beiting öryggisráðstafana væri að einhverju leyti háð samþykki sjúklings eða aðstandanda eða hvort athugasemdir þeirra hefðu einhverja þýðingu í tengslum við beitingu öryggisráðstafana. Þá komu einnig fram ábendingar um að orðalagið „athugasemdir sjúklings eða aðstandanda um fyrirhugaðar ráðstafanir“ í 3. tölul. 3. mgr. b-liðar 4. gr. gerði eingöngu ráð fyrir að sjúklingur eða aðstandandi gæti komið með athugasemdir fyrir fram.
Meiri hlutinn telur rétt að læknar geti tekið ákvarðanir um öryggisráðstafanir, einkum í ljósi þess að ákvæðið tekur einnig til öryggisráðstafana á legudeildum sjúkrahúsa og leggur til breytingu þess efnis.
Tekur meiri hlutinn einnig undir það sem fram kemur í minnisblaði heilbrigðisráðuneytisins um að gerðar séu mun minni kröfur til undirbúnings ákvarðana um öryggisráðstafanir, líkt og byltuvarna, meðferðar þeirra og skráningar og því sé ekki óeðlilegt að gerð sé sú krafa að slíkar ákvarðanir séu skráðar í sjúkraskrá og teknar af deildarstjóra eða vaktstjóra hjúkrunar til að tryggja ábyrgð á slíkum ákvörðunum og rekjanleika þeirra. Þá telur meiri hlutinn einnig eðlilegt að notast sé við starfsheitið hjúkrunardeildarstjóri í stað deildarstjóra svo ekki verði um villst að þess sé krafist að um deildarstjóra sé að ræða með hjúkrunarfræðimenntun en ekki aðra deildarstjóra sem ekki hafi slíka menntun. Leggur meiri hlutinn einnig til breytingu þess efnis. Þá telur meiri hlutinn rétt að bæta vakthafandi hjúkrunarfræðingi við upptalninguna í ljósi þeirra aðstæðna sem geti komið upp á minni stofnunum þegar kann að koma upp sú staða að eini hjúkrunarfræðingurinn á vakt sé vakthafandi hjúkrunarfræðingur sem er hvorki hjúkrunardeildarstjóri né vaktstjóri hjúkrunar.
Hvað varðar orðalag ákvæðisins um skráningu öryggisráðstafana í sjúkraskrá leggur meiri hlutinn einnig til breytingu þess efnis að fram komi í ákvæðinu að sjúklingur eða aðstandandi geti gert athugasemdir við fyrirhugaðar öryggisráðstafanir jafnt og þær sem þegar hefur verið tekin ákvörðun um.
Sérfræðilæknir í stað yfirlæknis (1. mgr. c-liðar 4. gr.).
Í 1. mgr. c-liðar 4. gr. frumvarpsins er kveðið á um að í sérstökum og einstaklingsbundnum tilvikum geti yfirlæknir, eða annar heilbrigðisstarfsmaður sem er til þess bær, ákveðið að víkja frá banni við beitingu nauðungar.
Við umfjöllun um málið komu fram ábendingar um að óljóst þætti hvað sé átt við með orðunum „eða annar heilbrigðisstarfsmaður sem er til þess bær“. Komu fram sjónarmið um að orðalag ákvæðisins væri of víðtækt og þörf væri á skýrari afmörkun á því fagfólki sem geti tekið slíka ákvörðun og hvaða þjálfun það þyrfti að hafa fengið. Þá komu einnig fram sjónarmið um að í daglegu starfi séu það sérfræðilæknar viðkomandi starfseininga sem þekki ástand sjúklinga og eðli sjúkdómsins sem þeir glíma við og á það bent að sú lýsing sem fram komi í greinargerð frumvarpsins um hlutverk yfirlæknis eigi frekar við um sérfræðilækni í samstarfi við annað starfsfólk viðkomandi einingar. Utan dagvinnutíma séu almennir læknar sem ekki hafi lokið sérnámi (ýmist í sérnámsstöðum eða sérnámsgrunnlæknar sem hafi nýlokið læknanámi) á vöktum ásamt sérfræðilækni sem er á bakvakt. Á þeim tíma sólarhringsins geti þurft að taka ákvarðanir um beitingu nauðungar.
Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að að jafnaði sé gert ráð fyrir að ákvörðun um að víkja frá banni við beitingu nauðungar sé í höndum yfirlæknis enda sé hann sá heilbrigðisstarfsmaður sem beri faglega ábyrgð á þeirri læknisþjónustu sem veitt er á þeirri deild þar sem viðkomandi sjúklingur dvelur. Honum beri því að þekkja ástand sjúklings og eðli sjúkdóms sem sjúklingurinn glímir við. Af þeim sökum sé eðlilegt að það komi í hlut yfirlæknisins að ákveða hvort inngripa (nauðungar) sé þörf til að ná árangri við meðhöndlun sjúkdómsins og til að tryggja öryggi hans, annarra sjúklinga á viðkomandi deild, þeirra sem koma að meðferð hans eða eftir atvikum enn annarra. Eðli málsins samkvæmt skuli yfirlæknir eða viðkomandi heilbrigðisstarfsmaður ráðfæra sig við sérfræðilækna og annað heilbrigðisstarfsfólk sem þekkir til ástands viðkomandi sjúklings og kemur að meðferð hans áður en ákvörðun er tekin.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að ráðherra mæli fyrir um nánari framkvæmd þess þegar vikið er frá banni við beitingu nauðungar í reglugerð og að þar verði m.a. fjallað um hver sé til þess bær að taka slíkar ákvarðanir. Ráðuneytið tekur hins vegar undir þau sjónarmið Landspítalans að lýsing í greinargerð frumvarpsins á hlutverki yfirlæknis eigi frekar við um sérfræðilækna og leggur ráðuneytið því til að breyta orðinu „yfirlæknir“ í 1. mgr. c-liðar 4. gr. í „sérfræðilæknir“.
Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu og leggur til að orðinu „yfirlæknir“ í 1. mgr. c-liðar 4. gr. frumvarpsins verði breytt í „sérfræðilæknir“ en leggur áherslu á það sem fram kemur í skýringum á ákvæðinu í greinargerð, að sérfræðilæknir skuli ráðfæra sig við annað heilbrigðisstarfsfólk sem þekkir til ástands viðkomandi sjúklings og kemur að meðferð hans áður en ákvörðun er tekin.
Hvað önnur sjónarmið varðar, þ.e. um það hvaða aðrir heilbrigðisstarfsmenn séu til þess bærir að taka ákvörðun um að víkja frá banni við beitingu nauðungar, vísar meiri hlutinn til þess að til stendur að setja reglugerð þar sem nánar er kveðið á um hverjir það eru sem séu til þess bærir. Telur meiri hlutinn að í frumvarpinu sé það nægilega skýrt afmarkað hverjir hafi þessa heimild í sérstökum og einstaklingsbundnum tilvikum og mikilvægt að það sé ekki of fastmótað í lögum hvaða starfsheiti falli þar undir og að hægt sé að kveða nánar á um það í reglugerð hvaða heilbrigðisstarfsmenn aðrir en sérfræðilæknar séu til þess bærir.
Undanþágur frá banni við beitingu nauðungar – bráðatilvik og nauðungarvistun (1. málsl. 4. mgr. c-liðar 4. gr.).
Í 1. málsl. 4. mgr. c-liðar 4. gr. kemur fram að vakthafandi lækni sé heimilt að ákveða að nauðung sé beitt í meðferðartilgangi, svo sem þvingaðri lyfjagjöf, ef einstaklingur hefur verið nauðungarvistaður samkvæmt ákvörðun sýslumanns á grundvelli lögræðislaga. Samkvæmt 2. mgr. 19. gr. lögræðislaga, nr. 71/1997, má slík nauðungarvistun ekki standa lengur en 72 klukkustundir nema til komi samþykki sýslumanns. Við umfjöllun nefndarinnar um málið kom fram ábending um að það kunni að vera álitaefni hvort orðalag 1. málsl. 4. mgr. c-liðar 4. gr. frumvarpsins feli það í sér að ekki sé heimilt að veita þvingaða lyfjagjöf sem meðferð við mjög alvarlegum einkennum ef viðkomandi er nauðungarvistaður í 72 klukkustundir eða skemur á grundvelli lögræðislaga.
Í minnisblaði heilbrigðisráðuneytisins er lögð til breyting á orðalagi ákvæðisins þannig að felld yrðu brott orðin „samkvæmt ákvörðun sýslumanns“ svo að ljóst sé að vakthafandi læknir hafi heimild til að ákveða að beita nauðung í formi þvingaðrar lyfjagjafar ef einstaklingur hefur verið nauðungarvistaður af lækni á spítala í 72 klukkustundir eða skemur samkvæmt lögræðislögum.
Meiri hlutinn tekur undir með ráðuneytinu og telur nauðsynlegt að skýra ákvæðið. Meiri hlutinn leggur því til að fella brott orðin „samkvæmt ákvörðun sýslumanns“ í 1. málsl. 4. mgr. c-liðar 4. gr. frumvarpsins.
Gildistaka (5. gr.).
Samkvæmt frumvarpinu er gildistaka laganna áætluð 1. janúar 2027. Meiri hlutinn leggur til að seinka gildistöku laganna til 1. júní 2027 til þess að gefa veitendum heilbrigðisþjónustu aukið ráðrúm til að undirbúa og innleiða verklagsbreytingar og skráningarferli, einnig til að tryggja að stafrænt kerfi fyrir skráningu þvingandi aðgerða verði tilbúið til notkunar sem og nauðsynlegar reglugerðir þegar lögin taka gildi.
Aðrar minni háttar breytingar á frumvarpinu.
Í samráði við heilbrigðisráðuneytið er lagt til að breyta orðalagi í 3. tölul. 5. mgr. b-liðar 4. gr. frumvarpsins þannig að það nái utan um bæði fólk sem dvelur á hjúkrunarheimilum og fólk sem dvelur á heilbrigðisstofnun. Notast verði þannig við hugtökin sjúklingur eða heimilismaður í stað hugtaksins einstaklingur. Þá er lagt til að bæta við nýjum lið í 1. tölul. 6. gr. frumvarpsins sem breytir 1. mgr. 2. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála, nr. 85/2015. Um er að ræða afleidda breytingu: Í ljósi þess að frumvarpið miðar að því að fjölga nefndarmönnum í úrskurðarnefndinni um tvo er nauðsynlegt að gera breytingu á 1. mgr. þar sem samtölu nefndarmanna er að finna en nefndarmenn hafa verið tólf talsins en verða með frumvarpinu fjórtán talsins.
Að lokum eru lagðar til fáeinar orðalagsbreytingar sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
2. Við 4. gr.
a. Við b-lið (27. gr. c).
1. Í stað orðanna „vitræna skerðingu vegna heilabilunarsjúkdóma“ í 2. mgr. komi: heilabilun.
2. Í stað orðanna „deildarstjóra eða vaktstjóra hjúkrunar“ í 3. mgr. komi: lækni, hjúkrunardeildarstjóra, vaktstjóra hjúkrunar eða vakthafandi hjúkrunarfræðingi.
3. Á eftir orðinu „fyrirhugaðar“ í 3. tölul. 3. mgr. komi: eða þegar ákveðnar.
4. Í stað orðanna „einstaklingur fer inn í rými annars heimilismanns“ í 3. tölul. 5. mgr. komi: sjúklingur eða heimilismaður fer inn í rými annars sjúklings eða heimilismanns.
b. Við c-lið (27. gr. d).
1. Í stað orðsins „yfirlæknir“ í 1. mgr. komi: sérfræðilæknir.
2. Orðin „samkvæmt ákvörðun sýslumanns“ í 1. málsl. 4. mgr. falli brott.
c. Við d-lið (27. gr. e).
1. Í stað orðanna „Einnig skal tilkynna“ í 3. mgr. komi: Tilkynna skal.
2. Í stað orðsins „aldrei“ í 2. málsl. 5. mgr. komi: undanþágan aldrei veitt.
3. Í stað orðsins „lengri“ í 2. málsl. 5. mgr. komi: lengur.
4. Í stað orðanna „þess efnis“ í 5. málsl. 5. mgr. komi: um líkamlega valdbeitingu.
5. Í stað orðsins „viðkomandi“ í 3. og 4. tölul. 6. mgr. komi: sjúklings.
d. Í stað orðsins „skulu“ í 3. málsl. 1. mgr. i-liðar (27. gr. j) komi: eru.
3. Í stað orðanna „1. janúar 2027“ í 5. gr. komi: 1. júní 2027.
4. Við 1. tölul. 6. gr. bætist nýr liður, svohljóðandi: Í stað orðsins „tólf“ í 1. málsl. 2. gr. laganna kemur: fjórtán.
Sigurður Örn Hilmarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Alþingi, 22. apríl 2026.
| Kristján Þórður Snæbjarnarson, 1. varaform. |
Ragna Sigurðardóttir, frsm. | Grétar Mar Jónsson. | |
| Rúnar Sigurjónsson. | Sandra Sigurðardóttir. | ||