Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1127 — 524. mál.
Svar
menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni um Menntasjóð námsmanna og lánshæfi atvinnuflugmannsnáms.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Er vilji fyrir því innan starfandi nefndar um endurskoðun útlánareglna Menntasjóðs námsmanna að tryggja jafnræði umsækjenda sem vilja stunda atvinnuflugmannsnám á Íslandi á við þá nemendur sem kjósa að stunda nám erlendis?
2. Hyggst ráðherra beita sér fyrir breytingum á úthlutunarreglum eða framkvæmd sjóðsins þannig að lánshæfi og skilyrði taki mið af raunverulegum námsleiðum á markaði fyrir atvinnuflug? Ef svo er, hver er áætlaður tímarammi og hvaða vinna er hafin til að tryggja þetta?
Eftirfarandi svar er byggt á upplýsingum frá Menntasjóði námsmanna.
Lánareglur Menntasjóðs námsmanna fyrir skólaárið 2026–2027 hafa verið birtar í B-deild Stjórnartíðinda sem auglýsing nr. 312/2026. Meint mismunun á milli nemenda sem stunda nám (þ.m.t. flugnám) hér á landi og erlendis felst einkum í mismunandi þaki á fjárhæð skólagjaldalána. Fyrir nám hér á landi er þak á skólagjaldalánum 1.750.000 kr. á ári, samtals að hámarki 5.250.000 kr. en fyrir nám sem er stundað erlendis er þakið 2.750.000 kr. á ári, samtals að hámarki 8.250.000 kr. Ef hærra þakið yrði látið gilda fyrir nám erlendis og nám sem stundað er hér á landi eru talsverðar líkur á að skólagjöld hérlendis myndu hækka til samræmis, einkum þegar horft er til langvarandi vanfjármögnunar háskólastigsins.
Námsleiðir í námi atvinnuflugmanna eru tvenns konar; samtvinnað nám og áfangaskipt nám. Samtvinnað nám (e. Integrated) er heildstætt námsferli þar sem öll þjálfun er tekin í samfellu. Um er að ræða atvinnuflugmannsnám (CPL), með fjölhreyfla áritun (ME) og blindflugi (IR) frá upphafi til enda. Nemendur þurfa að ljúka öllu náminu innan ákveðinna tímamarka, oft á 18–24 mánuðum.
Áfangaskipt nám (e. Modular) felur í sér sveigjanleika, þar sem nemendur ljúka námi í áföngum eftir eigin tímaáætlun. Nemendur geta tekið sér hlé milli áfanga til að vinna eða fjármagna næsta hluta námsins sem hentar mörgum nemendum af fjárhagsástæðum. Námslok í áfangaskiptu námi fela í sér sambærileg réttindi og skírteini og aflað er í samtvinnuðu námi, þ.e. atvinnuflugmannspróf (CPL) með fjölhreyfla áritun (ME) og blindflugspróf (IR).
Að mati Menntasjóðs námsmanna uppfyllir aðeins fyrrnefnda námsleiðin, samtvinnað nám, skilyrði laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, og lánareglna settra samkvæmt lögunum. Í 3. mgr. 2. gr. laga um Menntasjóð námsmanna segir að heimilt sé að veita lán til skólagjalda vegna náms sem er viðurkennt og er skipulagt sem a.m.k. 45 ECTS-námseiningar á hverju skólaári. Um lánshæfi náms segir í lánareglum sjóðsins: Til að nám sé lánshæft til skólagjalda og framfærslu þarf það að vera skipulagt sem fullt nám, þ.e. 60 ECTS-einingar á skólaári, sbr. 2. mgr. greinar 2.1. Til að nám sé lánshæft eingöngu til skólagjalda þarf það að vera skipulagt sem 45 ECTS-einingar á hverju námsári, sbr. 3. mgr. sömu greinar.
Ef breyta á reglum um lánshæfi áfangaskipts náms þarf að breyta 3. mgr. 5. gr. laganna þar sem fram kemur að hlutanám sé eingöngu lánshæft til skólagjalda. Í athugasemdum við ákvæðið í því frumvarpi sem varð að lögum nr. 60/2020 kemur fram að meginregla námslána sé að nám sé lánshæft ef það er skipulagt sem fullt nám eða 60 ECTS-einingar eða ígildi þeirra á hverju skólaári (skólaár er skilgreint sem haustönn og vorönn). Ef breyta á skilgreiningum á lánshæfu námi fæli það í sér grundvallarbreytingu á námslánakerfinu eins og það hefur verið í tugi ára. Ef ráðist yrði í slíkar breytingar þyrfti einnig að hafa í huga að fyrir utan áfangaskipt flugnám er alls kyns nám í boði hér á landi sem er ekki skipulagt sem fullt nám og þar af leiðandi ekki lánshæft en yrði það mögulega eftir slíkar breytingar. Ef gerð yrði breyting á lánshæfi náms sem er ekki skipulagt sem fullt nám hefði það einnig áhrif á aðrar reglur, til að mynda námsframvindureglu námslána en lágmarks námsárangur til að fá námslán eru núna 22 ECTS-námseiningar á önn. Vinna við endurskoðun laga um Menntasjóð námsmanna stendur nú yfir. Engar ákvarðanir liggja fyrir að svo stöddu um hvort fyrirhugað sé að gera breytingar á lánshæfi áfangaskipts náms.