Ferill 572. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1132  —  572. mál.




Svar


menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra við fyrirspurn frá Ingvari Þóroddssyni um ívilnanir við endurgreiðslu námslána vegna starfa í heilbrigðisþjónustu úti á landi.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hyggst ráðherra ráðast í aðgerðir á grundvelli tillagna starfshóps um bætta mönnun og jafnara aðgengi að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og svæðaskilgreiningar Byggðastofnunar sem snúa að beitingu 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna? Ef svo er, um hvers konar ívilnun við endurgreiðslu námslána er að ræða og hverjum mun hún standa til boða?
     2.      Hver er áætlaður árlegur heildarkostnaður ríkissjóðs við að beita heimildum 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna um ívilnanir við endurgreiðslu námslána vegna starfa í heilbrigðisþjónustu úti á landi?


    Í eftirfarandi svari er stuðst við upplýsingar frá Menntasjóði námsmanna.
    Í skýrslu starfshóps heilbrigðisráðherra um jöfnun á aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu, sem skilað var í maí 2023, er fjallað um beitingu ívilnana skv. 27. og 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020. Tillögur starfshóps heilbrigðisráðherra hafa skírskotun til aðgerðar A.6. í byggðaáætlun fyrir árin 2022–2036 sem varðar aðgengi að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði. Markmið aðgerðarinnar er að jafna aðgang að sérfræðiþjónustu á heilbrigðissviði óháð búsetu. Í byggðaáætlun er sérstaklega vísað til ívilnana skv. 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna.
    Í 27. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, er kveðið á um sérstaka ívilnun námsgreina. Þar er mælt fyrir um heimild ráðherra til að ákveða sérstaka tímabundna ívilnun við endurgreiðslu námslána vegna tiltekinna námsgreina. Skilyrði fyrir beitingu heimildarinnar eru að:
     1.      upplýsingar liggi fyrir um viðvarandi skort í starfsstétt eða að skortur sé fyrirsjáanlegur,
     2.      fyrir liggi skýrsla unnin af stjórnvöldum í samráði við hlutaðeigandi atvinnurekendur um mikilvægi þess að bregðast við slíkum aðstæðum,
     3.      ívilnun leiði til þess að þeir sem ljúki námi í námsgreininni nýti menntun sína til starfa í umræddri starfsstétt þar sem staðfestur er viðvarandi mönnunarvandi og
     4.      fjármagn sé aukið til Menntasjóðs námsmanna til að standa undir ívilnuninni.
    Í 28. gr. laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, er kveðið á um sérstaka ívilnun vegna námsgreina á sérstökum svæðum. Skilyrði fyrir beitingu heimildarinnar eru að:
     1.      fyrir liggi tillaga frá sveitarfélagi eða sveitarfélögum til stjórnvalda um þörf á menntuðu fólki í byggð sinni,
     2.      fyrir liggi skýrsla unnin af Byggðastofnun í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga um mikilvægi þess að bregðast við slíkum aðstæðum,
     3.      lánþegi hafi lokið námi og sé búsettur á skilgreindu svæði og nýti menntun sína þar að lágmarki í 50% starfshlutfalli í a.m.k. tvö ár og
     4.      fjármagn sé aukið til Menntasjóðs námsmanna til að standa undir ívilnuninni.
    Tillögur starfshóps heilbrigðisráðherra snúa einkum að beitingu 28. gr. laganna til að bregðast við skorti á sérstökum svæðum. Þar er lagt til að Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga hefji þegar vinnu við kortlagningu á þörf fyrir heilbrigðisstarfsfólk í samræmi við lagaákvæðið til að undirbúa afgreiðslu erinda frá einstökum sveitarfélögum. Teknar verði saman upplýsingar og gögn og unnin skýrsla skv. 27. gr. laganna um heilbrigðisstarfsfólk. Veittar ívilnanir feli í sér árlega 20% lækkun höfuðstóls námsláns upp að skilgreindu krónutöluþaki. Ívilnun verði veitt til tveggja til fimm ára í senn, að uppfylltum skilyrðum. Árangursmat fari fram að fjórum árum liðnum. Starfshópurinn setti einnig fram tillögu að verklagi vegna beitingu ívilnana skv. 27. og 28. gr. laganna.
    Þegar Byggðastofnun skilaði skýrslu til háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins í júní 2024 með skilgreiningu á starfssvæðum heilbrigðisþjónustu leit stofnunin svo á að skilyrðum 28. gr. laganna væri fullnægt og ráðherra gæti tekið ákvörðun um auglýsingu tímabundinna ívilnana til lánþega sem búsettir væru á skilgreindum aðstoðarsvæðum. Mat ráðuneytisins var hins vegar að skilyrði 2. mgr. 28. gr. laganna væru ekki uppfyllt, þ.e. tillaga frá sveitarfélagi um þörf á menntuðu fólki í byggð sinni. Í kjölfarið þyrftu Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga að vinna skýrslu um mikilvægi þess að bregðast við þeim aðstæðum sem kæmu fram í umsóknum sveitarfélaga um beitingu ívilnana.
    Ráðuneytinu hafa borist fimm beiðnir frá eftirfarandi sveitarfélögum um beitingu á 28. gr. laganna:
     –      Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Rangárþingi (umsókn Rangársþings ytra og eystra),
     –      Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á norðanverðum Vestfjörðum (umsókn Ísafjarðarbæjar, Bolungarvíkurkaupstaðar og Súðavíkurhrepps),
     –      Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga (umsókn Húnaþings vestra),
     –      Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Höfn í Hornafirði (umsókn Hornafjarðar), og
     –      Heilbrigðisstofnun Austurlands (umsókn Fjarðabyggðar, Múlaþings, Vopnafjarðarhrepps og Fljótsdalshrepps).
    Að beiðni ráðuneytisins hafa Byggðastofnun og Samband íslenskra sveitarfélaga skilað skýrslum fyrir öll framangreind sveitarfélög.
    Í september 2025 óskaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti eftir því að Menntasjóður námsmanna myndi vinna umsögn um skýrslurnar, gera tillögur að útfærslu ívilnana og leggja mat á kostnað vegna þeirra. Umsögn og tillögur sjóðsins bárust ráðuneytinu í október 2025.
    Umsögn og kostnaðarmat Menntasjóðs námsmanna miðast við forsendur sem koma fram í skýrslum Byggðastofnunar og Sambands íslenskra sveitarfélaga um erindi fyrrgreindra sveitarfélaga. Hámarksfjöldi þeirra heilbrigðisstarfsmanna í stöðugildum talið sem notið gætu ívilnana er 175,4, þar af eru 63,95 ómönnuð stöðugildi. Mun fleiri einstaklingar gætu þó átt rétt á ívilnun þar sem 28. gr. laganna gerir ráð fyrir að lágmarki 50% starfshlutfalli og því gætu 351 einstaklingur átt rétt á ívilnun.
    Menntasjóður námsmanna leggur til tvær leiðir við útfærslu ívilnana.
     A.      Höfuðstólslækkun á ársgrundvelli.
        Lækkun á höfuðstól hefur lítil áhrif á lánþega með há eldri lán (G-, R-, S- og V-lán) og lánþega sem eru með tekjutengd H-lán. Afborganir hjá þessum hópi væru óbreyttar þar sem þær miðast við tekjur næstliðins árs. Þessi ívilnun krefst ekki aukinnar fjármögnunar úr ríkissjóði en hefur áhrif á heildargreiðslur og fjölda afborgana yfir lánstímann, og gæti jafnvel engin áhrif haft á þau lán sem ólíklegt er að greiðist nokkurn tíma upp.
     B.      Höfuðstólslækkun á ársgrundvelli í bland við undanþágur.
        Ívilnun samkvæmt þessari leið myndi hafa áhrif á ráðstöfunartekjur lánþega sem ekki þyrftu að greiða af námslánum sínum á meðan þeir uppfylla skilyrði ívilnunar. Þessi útfærsla ívilnunar gæti hins vegar skapað ójafnan ávinning lánþega eftir ólíkum lánaflokkum (H-, G-, R-, S- og V-lán) og eftir tekjum lánþega, þar sem þeir sem eru tekjuhærri fá meiri ívilnun þegar kemur að undanþágum frá afborgunum.
    Kerfislegur kostnaður hjá Menntasjóði námsmanna, sem felst m.a. í forritunarvinnu við útsendingu innheimtukrafna, er áætlaður fjórir mannmánuðir árlega í útseldri vinnu frá hugbúnaðarhúsi. Bein útgjöld ríkisins sem þarf að fjármagna í fjármálaáætlun og fjárlögum fara eftir fjárhæð samþykktrar ívilnunar og fjölda þeirra einstaklinga sem rétt eiga á ívilnun. Ef gert er ráð fyrir árlegri 700 þús. kr. lækkun á höfuðstól námsláns getur afskrift af lánum sjóðsins numið allt að 246 millj. kr. á ársgrundvelli, miðað við 351 einstakling með námslán í 50% starfi hjá heilbrigðisstofnun. Beinar tekjur ríkissjóðs myndu að auki lækka um 204 millj. kr. á ársgrundvelli. Mögulega þyrfti að kanna hjá heilbrigðisstarfsfólki hvort væntingar um 700 þús. kr. lækkun á höfuðstól námsláns hafi slík áhrif að fólk sé reiðubúið að flytja búferlum með fjölskyldu á hin skilgreindu skortsvæði heilbrigðisstofnana. Hugsanlega þyrfti að miða fremur við að árleg lækkun höfuðstóls námsláns næmi 1,5 millj. kr. Menntasjóður áætlar að slík lækkun gæti kostað ríkissjóð 526,5 millj. kr. árlega miðað við sömu forsendur.
    Eins og fyrr segir þarf að fjármagna ívilnanir skv. 27. og 28. gr. laganna með aukinni langtíma fjárheimild til Menntasjóðs námsmanna í fjármálaáætlun og fjárlögum. Slík fjármögnun liggur ekki fyrir. Í samráði við heilbrigðisráðherra hefur menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra óskað eftir því að Byggðastofnun afmarki nánar fyrrnefndar skilgreiningar á skortsvæðum heilbrigðisstofnana með það í huga að lækka fyrirsjáanlegan kostnað af fjármögnun ívilnana. Leitast verður við að huga að fjármögnun ívilnana í samræmi við betur afmarkaðar skilgreiningar frá og með árinu 2027.