Ferill 531. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1133 — 531. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með breytingartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild).
Frá meiri hluta atvinnuveganefndar.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá innviðaráðuneyti, Landssambandi smábátaeigenda og Hafrannsóknastofnun.
Nefndinni bárust 11 umsagnir sem aðgengilegar eru undir málinu á vef Alþingis.
Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Lagt er til að felld verði brott ákvæði laganna um línuívilnun, rækju- og skelbætur og að mælt verði fyrir um tímabundna jöfnunarheimild vegna strandveiða.
Umfjöllun nefndarinnar.
Með a-lið 3. gr. frumvarpsins er lagt til að við lög um stjórn fiskveiða bætist ákvæði til bráðabirgða sem kveði á um heimild ráðherra til að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu, sem nemur allt að 2.700 tonnum af óslægðum þorski. Í greinargerð með frumvarpinu segir að heimildin sé hugsuð sem sérstök brúarráðstöfun á meðan unnið er að innleiðingu nýs skipulags á ráðstöfun 5,3% kerfisins og til að mæta þörf fyrir strandveiðar á sama tímabili. Heimildin sé afmörkuð og tímabundin við þetta tiltekna fiskveiðiár. Gert er ráð fyrir að það aflamark sem verði ráðstafað verði jafnað gagnvart því sem dregið verður frá leyfilegum heildarafla á næstu fiskveiðiárum og að jöfnun verði að fullu lokið eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/2030.
Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að við framkvæmd jöfnunar skuli þess gætt að hún bitni ekki á lögbundnum forgangsverkefnum innan hins svokallaða 5,3% kerfis, svo sem samningsbundnum verkefnum Byggðastofnunar. Mikilvægt er að efla og tryggja aflaheimildir til 48 daga í strandveiðum til framtíðar við endurskoðun á 5,3% byggðahluta fiskveiðistjórnarkerfisins.
Breytingartillögur.
Í nokkrum umsögnum sem bárust nefndinni voru gagnrýnd þau ákvæði frumvarpsins sem snúa að afnámi línuívilnunar og rækju- og skelbóta. Þess ber að geta að nefndin óskaði eftir því að umsagnaraðilar sem fengu senda umsagnarbeiðni frá nefndinni myndu einskorða umsögn sína við a-lið 3. gr. frumvarpsins, enda hugðist nefndin afmarka umfjöllun sína við það ákvæði. Leggur meiri hlutinn til að önnur ákvæði frumvarpsins, þ.e. þau er varða línuívilnun og rækju- og skelbætur, falli brott. Meiri hlutinn beinir því til ráðherra að taka breytingar á línuívilnun og rækju- og skelbótum til skoðunar við heildarendurskoðun á byggðakerfi 5,3% hluta fiskveiðistjórnarkerfisins.
Þá er lögð til orðalagsbreyting á 3. málsl. a-liðar 3. gr. sem ekki er ætlað að hafa efnisleg áhrif á frumvarpið.
Að framangreindu virtu leggur meiri hlutinn til að frumvarpið verði samþykkt með eftirfarandi
BREYTINGU:
1. 1. gr., 2. gr., b-liður 3. gr. og 2. mgr. 4. gr. falli brott.
2. Í stað orðanna „yfirstandandi fiskveiðiár“ í 3. málsl. a-liðar 3. gr. komi: fiskveiðiárið.
3. Fyrirsögn frumvarpsins orðist svo: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (jöfnunarheimild).
Jón Gunnarsson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.
Kristján Þórður Snæbjarnarson var fjarverandi við afgreiðslu en ritar undir álitið samkvæmt heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.
Alþingi, 28. apríl 2026.
| Lilja Rafney Magnúsdóttir, form., frsm. |
Eiríkur Björn Björgvinsson. | Kristján Þórður Snæbjarnarson. |
| Ingvar Þóroddsson. | Sigurjón Þórðarson. | Eydís Ásbjörnsdóttir. |