Ferill 456. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1137  —  456. mál.




Svar


forsætisráðherra við fyrirspurn frá Árna Helgasyni um hagræðingu í ríkisrekstri.


     1.      Hversu mikil hagræðing hefur átt sér stað í ráðuneytinu nú þegar á grundvelli tillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnar eftir samráð við almenning sem skilað var 4. mars 2025? Í hverju felst hagræðingin, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Tillögur hagræðingarhóps ríkisstjórnarinnar nýttust við forgangsröðun í fjármálaáætlun 2026–2030 þar sem markmiðið var að ná fram aukinni skilvirkni og draga úr rekstrarkostnaði án þess að skerða opinbera þjónustu. Við undirbúning fjárlaga 2026 útfærði hvert ráðuneyti nánar hagræðingaraðgerðir innan fjárveitinga sinna málaflokka.
    Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértækri hagræðingu. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025. Þrátt fyrir þetta nýttust tillögurnar til að koma ýmsum verkefnum af stað. Því fóru ráðuneyti og stofnanir strax í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins eins og gerð er grein fyrir í skýrslu starfshóps forsætisráðuneytis og fjármála- og efnahagsráðuneytis frá desember 2025.

     2.      Hvaða hagræðing er áætluð vegna tillagnanna á þessu ári og í hverju felst sú hagræðing, sundurliðað eftir málaflokkum og undirstofnunum?
    Hagræðingaraðgerðir ríkisstjórnarinnar eru frá og með 2026 samþættar ferli fjárlagagerðar og framkvæmdar fjárlaga. Hvert ráðuneyti ber ábyrgð á að innleiða hagræðingaraðgerðir innan þeirra málefnasviða sem það fer með. Á vef Stjórnarráðsins, á undirsíðunni hagsýni í ríkisrekstri, er haldið utan um verkefni ráðuneyta sem tengjast hagræðingaraðgerðunum. Á árinu 2026 er gert ráð fyrir að öll ráðuneyti birti tvisvar yfir árið yfirlit yfir stöðu verkefna á grundvelli tillagnanna. Þetta var síðast gert í september 2025 og vísast í fyrrnefnda vefsíðu.
    Við áætlanagerð ársins 2026 var stofnunum ætlað að laga starfsemi að fjárveitingum með markvissum aðhaldsráðstöfunum og forgangsröðun verkefna. Í fjárlögum fyrir árið 2026 voru útfærðar hagræðingaraðgerðir forsætisráðuneytis upp á rúmar 77 millj. kr. Þar af var rúmlega 38 millj. kr. hagræðing á aðalskrifstofu ráðuneytisins, tæplega 24 millj. kr. hagræðing vegna breytinga á rekstri og skipulagi á Hrafnseyri, 10 millj. kr. hagræðing hjá Hagstofu Íslands og 2,4 millj. kr. hagræðing í almennum rekstri embættis forseta Íslands.
    Stofnanir hafa ekki verið beðnar um að halda utan um hagræðingu sem kemur beint í kjölfar tillagna hagræðingarhópsins og er því ekki unnt að svara til um áhrif tillagnanna á einstaka rekstrarliði. Í forsætisráðuneytinu er unnið að ýmsum verkefnum sem hafa tengingu við tillögur hagræðingarhópsins. Alþingi hefur samþykkt frumvarp forsætisráðherra um breytingu á lögum um laun forseta Íslands og lögum um Stjórnarráð Íslands. Með samþykkt frumvarpsins verður veruleg lækkun á launum handhafa forsetavalds sem getur leitt til um 10 millj. kr. sparnaðar á ári. Einnig má nefna fyrrnefndar breytingar á rekstri Hrafnseyrar en í samræmi við áherslur hagræðingarhópsins á sameiningu og samrekstur verður rekstur Hrafnseyrar færður undir þjóðgarðinn á Þingvöllum. Unnið er að stofnun nefndahúss sem mun hýsa kæru- og úrskurðarnefndir á vegum ríkisins. Þar mun bæði nást fram rekstrarleg hagræðing og einnig aukin skilvirkni með samnýtingu nefndanna á aðstöðu og þjónustu. Þá er vinnu við rafræna og pappírslausa ríkisstjórn lokið sem mun leiða til minni prentkostnaðar en jafnframt er unnið að umgjörð rafrænna undirritana ríkisráðsafgreiðslna.