Ferill 531. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1138 — 531. mál.
2. umræða.
Nefndarálit með frávísunartillögu
um frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild).
Frá minni hluta atvinnuveganefndar.
Minni hluti atvinnuveganefndar fagnar þeirri niðurstöðu meiri hlutans að falla frá fyrirvaralausri niðurfellingu línuívilnunar og skel- og rækjubóta, sbr. 1. tölul. breytingartillögu meiri hlutans, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á brothættar sjávarbyggðir, einkum og sér í lagi við Breiðafjörð og Húnaflóa. Glöggt er að fyrra upplegg var úr hófi og til þess fallið að kippa fótunum undan útgerð á nefndum stöðum. Í reynd fól frumvarpið í sér að heilsársstörfum í þeim byggðum yrði fækkað á kostnað mögulegra sumarstarfa.
Áður en lengra er haldið telur minni hlutinn rétt að fjalla stuttlega um málsmeðferð frumvarpsins. Svo lá á að það yrði að lögum að almenningi og hagaðilum gafst ekki kostur á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri gegnum samráðsgátt stjórnvalda. Í greinargerð með frumvarpinu var vísað til samráðs vegna fyrri frumvarpa og frumvarpsdraga, en umfjöllunin í greinargerðinni nú var þögul um að talsverður munur var á þeim útfærslum sem boðaðar voru. Þá var boðaður fyrirvari til hagaðila enginn að kalla má, alls rétt rúmir fjórir mánuðir.
Þrátt fyrir að málið hafi batnað mjög í meðförum nefndarinnar gerir minni hlutinn athugasemdir við það sem eftir stendur í frumvarpinu, þ.e. að veita ráðherra heimild til að fá að „láni“, úr svokölluðu 5,3% kerfi, allt að 2.700 tonna aflamark í þorski til ráðstöfunar í strandveiðiafla á yfirstandandi fiskveiðiári. Lánið skal jafnað á komandi fiskveiðiárum og jöfnun verði að fullu lokið eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/30.
Að mati minni hlutans verður erfiðleikum bundið fyrir ráðherra að finna það aflamark sem til þarf til að reikningsdæmið gangi upp. Í frumvarpinu sjálfu, sbr. umfjöllun í kafla 3.3, er þess getið að jöfnunin muni „fyrst og fremst eiga sér stað með því svigrúmi sem skapast við afnám línuívilnunar og skel- og rækjubóta“. Það sem gefið er með annarri hendi í dag verður tekið til baka á morgun með hinni.
Minni hlutinn vekur athygli á því að undanfarin fiskveiðiár hefur ráðherra þegar gengið á aflamark í línuívilnun og skel- og rækjubótum. Fiskveiðiárið 2023/24 var 1.100 tonnum úthlutað í þorski til hins fyrrnefnda og 1.058 tonnum til þess síðarnefnda og ári síðar dróst aflamark til skel- og rækjubóta saman um 14% og línuívilnun um rúman fjórðung. Á yfirstandandi fiskveiðiári þurftu rekstraraðilar að bíða rúmlega fjórum mánuðum lengur en vanalega eftir reglugerð um efnið, þ.e. hún birtist í nóvemberlok í stað júlí líkt og venjan hefur verið, og nam línuívilnun í þorski þá 400 tonnum og skel- og rækjubætur í sömu tegund rétt rúmlega 500 tonnum. Línuívilnun hefur því skroppið saman um nærri tvo þriðju hluta á þremur árum og skel- og rækjubætur um ríflega helming á sama tímabili.
Í nefndaráliti meiri hlutans er áréttaður sá vilji hans að við úthlutun jöfnunarheimilda verði tryggt að hún komi ekki niður á sértækum byggðakvóta Byggðastofnunar. Af því tilefni bendir minni hlutinn á að þá er ekki margt sem stendur eftir handa ráðherra til að færa á milli úrræða innan 5,3% kerfisins. Í engu er vikið að þeim vanda sem blasir við vegna fyrirhugaðrar lántöku ráðherra og hvernig eigi að gjalda keisaranum það sem keisarans er þegar allt kemur til alls.
Byggðapotturinn er ætlaður til að styrkja atvinnu og heilsársbúsetu í viðkvæmum byggðum, ekki til að vera lánasjóður fyrir pólitískar ákvarðanir ráðherra. Ljóst er að innan ráðuneytisins stendur yfir heildarendurskoðun á títtnefndu 5,3% kerfi og ráðherra málaflokksins hefur boðað frumvarp í þá veru á komandi löggjafarþingi. Betur færi á því að taka ekki að láni frá framtíðinni áður en þeirri vinnu er lokið. Minni hlutinn lýsir áhyggjum af því að fyrirhuguð endurskoðun á 5,3% kerfinu verði nýtt til að finna gjaldmiðil til endurgreiðslu lánsins og leggur á það ríka áherslu að endurskoðunin verði ekki nýtt til að grafa undan heilsársstörfum í smærri byggðum landsins. Meðan ekki liggur skýrt fyrir hvernig endurgreiða skuli lánið, án þess að það komi niður á títtnefndum hagsmunum, telur minni hlutinn frumvarpið ekki tækt til afgreiðslu.
Þórarinn Ingi Pétursson, áheyrnarfulltrúi í nefndinni, er samþykkur áliti þessu.
Að framangreindu virtu leggur minni hlutinn til að málinu verði vísað til ríkisstjórnarinnar.
Alþingi, 29. apríl 2026.
| Jón Gunnarsson, frsm. |
Bergþór Ólason. | Guðrún Hafsteinsdóttir. |