Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1140  —  297. mál.

2. umræða.


Breytingartillaga


við frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 (skýrslugjöf um kynbundinn launamun).

Frá Diljá Mist Einarsdóttur.


     1.      Á eftir 2. gr. komi tvær nýjar greinar, svohljóðandi:
                  a.      (3. gr.)
                        Orðin „þ.m.t. heimild til að beita dagsektum“ í 3. gr. laganna falla brott.
                  b.      (4. gr.)
                    3. mgr. 5. gr. laganna fellur brott.
     2.      Við 4. gr.
                  a.      1. mgr. orðist svo:
                     Fyrirtæki eða stofnun er heimilt að skila gögnum til Jafnréttisstofu sem sýna fram á að launakerfi þess tryggi jöfn laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og að launaákvarðanir séu teknar út frá kynhlutlausum viðmiðum sem fyrirbyggja beina og óbeina mismunun á grundvelli kyns.
                  b.      Í stað orðanna „skal skilað“ í 2. mgr. komi: er heimilt að skila.
                  c.      3. mgr. falli brott.
                  d.      Í stað orðanna „skal kynna“ í 4. mgr. komi: er heimilt að kynna.
                  e.      5. mgr. falli brott.
     3.      2. mgr. 5. gr. falli brott.
     4.      6. gr. orðist svo:
             10. gr. laganna fellur brott.
     5.      7. gr. orðist svo:
        11. gr. laganna orðast svo, ásamt fyrirsögn:

        Mat á árangri.

                  Ráðherra skal láta meta framgang og þróun kynbundins launamunar á þriggja ára fresti með gerð rannsóknar á launamun kvenna og karla sem nái til vinnumarkaðarins í heild í samstarfi við Hagstofu Íslands.
     6.      Við 8. gr.
                  a.      Orðin „og 10.“ í 1. tölul. 1. mgr. falli brott.
                  b.      C-liður 1. tölul. 1. mgr. falli brott.
     7.      Efnismálsgrein 9. gr. orðist svo:
                  Fyrirtækjum og stofnunum sem þegar hafa öðlast jafnlaunavottun er heimilt að skila gögnum skv. 8. gr. að þremur árum liðnum frá síðustu vottun vottunaraðila. Þeim fyrirtækjum sem öðlast hafa jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu er á sama hátt heimilt að skila gögnum að þremur árum liðnum frá síðustu jafnlaunastaðfestingu.

Greinargerð.

    Lagt er til að skýrslugjöf samkvæmt lagabálknum verði fyrirtækjum og stofnunum valkvæð, í stað þess að um skyldu verði að ræða.