Ferill 297. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1152 — 297. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 (skýrslugjöf um kynbundinn launamun).
(Eftir 2. umræðu, 30. apríl.)
1. gr.
2. gr.
a. 11. tölul. fellur brott.
b. 12. tölul. orðast svo: Skýrslugjöf um kynbundinn launamun: Skil á gögnum um að launakerfi fyrirtækisins eða stofnunarinnar uppfylli kröfur 8. gr.
3. gr.
4. gr.
Skýrslugjöf um kynbundinn launamun.
Eftirfarandi gögnum skal skilað til Jafnréttisstofu:
1. Starfaflokkun fyrirtækis eða stofnunar út frá fyrirframákveðnum hlutlægum viðmiðum þar sem lagt er mat á þær kröfur sem störf gera til starfsfólks þannig að saman flokkist sömu eða jafnverðmæt störf. Á meðal viðmiða skulu vera ábyrgð, álag, hæfni og vinnuaðstæður og, ef við á, aðrir þættir sem skipta máli fyrir viðkomandi starf eða stöðu.
2. Launagreining sem byggist á starfaflokkun skv. 1. tölul. og sýnir meðaltal fastra mánaðarlauna fyrir dagvinnu, fastar viðbótargreiðslur fyrir störf og allar aukagreiðslur eftir kynjum.
3. Tímasett áætlun um úrbætur þegar við á.
Jafnréttisáætlun skv. 5. gr. er forsenda þess að fyrirtæki eða stofnun geti lokið skýrslugjöf um kynbundinn launamun.
Fyrirtæki eða stofnun skal kynna niðurstöður launagreiningar um kynbundinn launamun fyrir starfsfólki og gera þær aðgengilegar, eftir að þær hafa verið gerðar ópersónugreinanlegar, en að öðrum kosti að teknu tilliti til laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, nr. 90/2018. Taka skal tillit til allra þátta launa og kjara.
Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. skal Stjórnarráð Íslands, samkvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands, skila gögnum skv. 1.–3. tölul. 2. mgr. á þriggja ára fresti óháð fjölda starfsfólks.
5. gr.
Umsýsla Jafnréttisstofu í tengslum við skýrslugjöf um kynbundinn launamun.
Þá heldur Jafnréttisstofa skrá yfir fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli sem ekki hafa sent inn tilskilin gögn skv. 8. gr.
Um umsýslu Jafnréttisstofu í tengslum við skýrslugjöf fyrirtækja og stofnana fer að öðru leyti skv. II. kafla laga um stjórnsýslu jafnréttismála.
6. gr.
Eftirlit Jafnréttisstofu vegna skýrslugjafar um kynbundinn launamun.
Um eftirlit Jafnréttisstofu með skýrslugjöf fyrirtækja og stofnana fer að öðru leyti skv. 5. og 6. gr. laga um stjórnsýslu jafnréttismála.
7. gr.
Mat á árangri.
8. gr.
Ráðherra er heimilt að setja reglugerð um nánari framkvæmd laga þessara, svo sem um:
1. Skýrslugjöf um kynbundinn launamun skv. 8. gr. og umsýslu og eftirlit Jafnréttisstofu vegna skýrslugjafar um kynbundinn launamun skv. 9. og 10. gr., þar á meðal um:
a. viðmið í tengslum við starfaflokkun, sbr. 1. tölul. 2. mgr. 8. gr.,
b. verklag Jafnréttisstofu við eftirlit og eftirfylgni með úrbótaáætlunum, sbr. 3. tölul. 2. mgr. 8. gr., og
c. hvernig eftirliti Jafnréttisstofu skv. 10. gr. skuli háttað,
d. nánari framkvæmd og tilhögun mats á framgangi og árangri skýrslugjafar um kynbundinn launamun skv. 11. gr.
2. Störf samráðsvettvangs um jafnréttismál, Jafnréttisráðs, sbr. 24. gr.
9. gr.
Fyrirtæki og stofnanir sem þegar hafa öðlast jafnlaunavottun skulu skila gögnum skv. 8. gr. að þremur árum liðnum frá síðustu vottun vottunaraðila. Þau fyrirtæki sem öðlast hafa jafnlaunastaðfestingu Jafnréttisstofu skulu á sama hátt skila gögnum að þremur árum liðnum frá síðustu jafnlaunastaðfestingu. Aðilar sem hvorki hafa öðlast jafnlaunavottun né jafnlaunastaðfestingu frá Jafnréttisstofu en falla undir lögin skulu skila gögnum skv. 8. gr. fyrir 1. mars 2027.
10. gr.
11. gr.