Ferill 531. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1155 — 531. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (jöfnunarheimild).
(Eftir 2. umræðu, 30. apríl.)
1. gr.
Á fiskveiðiárinu 2025/2026 er ráðherra heimilt að ráðstafa auknu aflamagni til strandveiða til viðbótar við úthlutað aflamagn á fiskveiðiárinu. Viðbótaraflamagn skal ekki fara umfram 2.700 tonn af óslægðum þorski. Eftir fiskveiðiárið 2025/2026 skal því viðbótaraflamagni jafnað gagnvart því aflamagni sem dregið verður frá heildaraflamarki skv. 3. mgr. 8. gr. og skal að fullu jafnað eigi síðar en á fiskveiðiárinu 2029/2030.
2. gr.