Ferill 642. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1160  —  642. mál.




Fyrirspurn


til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla.

Frá Guðlaugi Þór Þórðarsyni.


     1.      Hve mörg stöðugildi hafa verið á ritstjórnum fjölmiðla sem hlotið hafa rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla? Svar óskast sundurliðað eftir árum og fjölda fastra stöðugilda annars vegar og verktaka hins vegar.
     2.      Er árangur af rekstrarstuðningi til einkarekinna fjölmiðla mældur með markvissum hætti af hálfu ráðuneytisins eða stofnana þess? Ef svo er, hvernig?
     3.      Hafa ráðuneytið eða stofnanir þess upplýsingar um fjölgun eða fækkun stöðugilda, þ.m.t. verktaka, sem rekstrarstuðningur til einkarekinna fjölmiðla byggist á? Ef svo er, hver hefur þróun þessa verið þau ár sem rekstrarstuðningur hefur verið veittur?


Skriflegt svar óskast.