Ferill 643. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1161 — 643. mál.
Fyrirspurn
til mennta- og barnamálaráðherra um sérskóla og sérdeildir.
Frá Ingvari Þóroddssyni.
1. Hversu há framlög hefur Reykjavíkurborg fengið ár hvert undanfarin fimm ár frá ríkinu á grundvelli samnings um rekstur sérskóla og sérdeilda á grunnskólastigi?
2. Hver hefur verið árlegur rekstrarkostnaður sérskóla og sérdeilda undanfarin fimm ár sem fá framlög frá ríkinu á grundvelli þessa samnings?
3. Hyggst ráðherra gera sambærilegan samning og að framan er nefndur við Akureyrarbæ um rekstur Hlíðarskóla?
Skriflegt svar óskast.