Ferill 647. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1165 — 647. mál.
Fyrirspurn
til umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um aðgerðaleysi í loftslagsmálum.
Frá Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur.
1. Hverjar eru efnahagslegar og samfélagslegar afleiðingar aðgerðaleysis í loftslagsmálum að mati ráðherra?
2. Hver er kostnaður ríkissjóðs við að uppfylla ekki þær alþjóðlegu skuldbindingar í loftslagsmálum sem Ísland hefur undirgengist?
Skriflegt svar óskast.