Ferill 648. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1166 — 648. mál.
Fyrirspurn
til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um námslán úr Menntasjóði námsmanna.
Frá Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur.
1. Hversu margar umsóknir um námslán hafa verið samþykktar undanfarin fimm ár af Menntasjóði námsmanna og hver var heildarupphæð samþykktra námslána ár hvert?
2. Hvernig skiptist fjöldi samþykktra umsókna ár hvert eftir:
a. háskóla og námsleið á Íslandi,
b. háskólum erlendis, sundurliðað eftir löndum,
c. ríkisfangi lántakenda?
Skriflegt svar óskast.