Ferill 538. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1167 — 538. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn frá Rósu Guðbjartsdóttur um frávísun einhverfra frá geðheilsuteymum heilsugæslu.
Ráðherra leggur áherslu á að aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu sé tryggt á grundvelli jafnræðis og faglegra viðmiða. Ráðherra leggur einnig áherslu á að mat á þjónustuþörf byggist á faglegum sjónarmiðum um viðeigandi þjónustu en ekki á útilokun á grundvelli fötlunar. Talið er að allt að 70% einhverfra glími við einhverja geðröskun. Við mat á þörf fyrir þjónustu hjá geðheilsuteymum er ávallt byggt á faglegu mati á alvarleika og eðli vandans, sem og því hvort viðkomandi úrræði henti þörfum einstaklingsins. Áður var þjónustuframboð í teymunum ekki talið þjóna þörfum einstaklinga með einhverfu þar sem þjónustan var ekki nægilega sértæk. Þessu var breytt fyrir um ári síðan og í dag er einhverfa ekki frávísunarástæða í geðheilsuteymunum. Þá er einnig mikilvægt að þjónusta þróist með þeim hætti að hún geti sem best mætt fjölbreyttum þörfum notenda, þar á meðal einstaklinga með einhverfu. Ávallt er þó nauðsynlegt að meta hvort tiltekið úrræði sé líklegt til að mæta þörfum viðkomandi með fullnægjandi hætti. Engu að síður getur það verið svo að einhverfum sem ekki eru með samhliða geðröskun sé vísað til geðteymis. Í sumum tilvikum geta aðstæður, svo sem virk vímuefnanotkun eða skert geta til að nýta meðferð, leitt til þess að heppilegra sé að beina einstaklingi í annað úrræði.
Helstu ástæður fyrir frávísunum frá geðheilsuteymum eru byggðar á mati fagaðila og eru til að mynda að ekki sé talin þörf á þverfaglegri geðheilbrigðisþjónustu, að einstaklingur sé þegar í þjónustu annars staðar eða bíði eftir viðeigandi þjónustu, að um virkan vímuefnavanda sé að ræða sem hefur áhrif á getu einstaklings til að sinna meðferð, eða að tilvísun sé ófullnægjandi.
Það er því mat ráðherra að verklagið sé í samræmi við lög þar sem það byggist á faglegu mati á viðeigandi þjónustu en ekki á útilokun á grundvelli fötlunar.
2. Er það opinber stefna ráðuneytisins að aðlögun þjónustu við einhverfa sé valkvæð eða ber heilbrigðiskerfinu að laga þjónustu að þörfum notenda?
Aðlögun þjónustu að þörfum einstaklinga er grundvallarþáttur heilbrigðisþjónustu, þar á meðal þegar kemur að þjónustu við einhverfa. Hún felur í sér að þjónusta er aðlöguð eins og kostur er svo að hún sé aðgengileg og nýtist viðkomandi með fullnægjandi hætti. Aftur skal ítrekað að einhverfa ein og sér, þ.e. án fylgiraskana, er fötlun en ekki sjúkdómsgreining og því ekki sértækt viðfangsefni heilbrigðisþjónustu.
3. Hvers vegna eru viðmið og framkvæmd mismunandi milli heilbrigðisumdæma ef þjónustan á að byggjast á jafnræði?
Ráðherra leggur áherslu á að heilbrigðisþjónusta skuli byggjast á jafnræði og aðgengi óháð búsetu. Jafnframt er mikilvægt að hafa í huga að skipulag og þjónustuferlar geta að einhverju leyti verið mismunandi á milli heilbrigðisumdæma, m.a. vegna ólíkra aðstæðna, mannafla, sérfræðiþekkingar eða eftirspurnar eftir þjónustu.
Þessi munur í framkvæmd felur ekki í sér að markmið um jafnræði séu ekki virt, heldur endurspeglar hann að þjónusta er skipulögð með hliðsjón af staðbundnum þörfum og forsendum hverju sinni. Slíkur munur getur haft áhrif á aðgengi og er því brýnt að vinna að frekari samræmingu viðmiða og verklags á landsvísu. Ráðuneytið vinnur að því að efla þjónustuferla og samfellu í þjónustu og tryggja að allir einstaklingar, óháð búsetu, hafi aðgang að viðeigandi og sambærilegri geðheilbrigðisþjónustu.
4. Hvernig tryggir ráðuneytið að faglegt mat sé sambærilegt milli geðheilsuteyma og leiði ekki til óbeinnar mismununar?
Geðheilsuteymin á höfuðborgarsvæðinu eru með sameiginlega inntökufundi til að tryggja samræmi í verklagi og þjónustu. Geðheilsuteymin á landsbyggðinni eru með mánaðarlega samráðsfundi þar sem m.a. gefst tækifæri til samræmingar viðmiða og verklags. Hafa þarf í huga að skipulag og þjónustuferlar geta að einhverju leyti verið mismunandi á milli heilbrigðisumdæma, m.a. vegna ólíkra aðstæðna, mannafla, sérfræðiþekkingar og eftirspurnar eftir þjónustu. Ráðuneytið leggur áherslu á að faglegt mat innan geðheilsuteyma byggist á samræmdum viðmiðum, klínískum leiðbeiningum og bestu þekkingu á hverjum tíma. Markmiðið er að tryggja að mat á þjónustuþörf sé sambærilegt óháð því hvar í kerfinu það fer fram.
5. Byggist matið um hvort þjónustan henti eingöngu á þeim gögnum sem liggja fyrir eða fær viðkomandi að koma í matsviðtal?
Mat á 2. stigs þjónustu í geðheilsuteymum byggir á fyrirliggjandi gögnum í tilvísun þar sem þarf að koma fram hver geðrænn vandi skjólstæðingsins sé og að hvaða leyti hann sé hamlandi eða truflandi í daglegu lífi. Einnig eru upplýsingar úr sjúkrasögu rýndar sem og upplýsingar um fyrri endurhæfingu og framgang hennar. Þegar greinargóðar upplýsingar liggja fyrir og faglegt mat inntökuteymis er á þann veg að líklegt sé að einstaklingur þurfi á þverfaglegri meðferð geðheilsuteymis að halda er einstaklingurinn boðaður til matsviðtals hjá viðkomandi geðheilsuteymi. Hins vegar er fyrirkomulagið hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Heilbrigðisstofnun Austurlands og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða á þá vegu að allir einstaklingar sem vísað er til sálfélagslegrar þjónustu mæta í matsviðtal þar sem þörf þeirra á 1. eða 2. stigs þjónustu er metin samtímis.
6. Telur ráðherra að frávísunarhlutfall í 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu, allt að 40,9%, sé eðlilegt?
Ráðherra telur mikilvægt að rýna reglulega gögn um aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu, þar á meðal frávísunarhlutfall, til að tryggja að þjónustan sé viðeigandi og aðgengileg.
Frávísanir í 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu byggjast á faglegu mati á því hvort þjónustan sé rétt úrræði fyrir viðkomandi á þeim tíma. Hluti slíkra tilvika skýrist af því að einstaklingar kunna að vera betur settir með þjónustu á öðru þjónustustigi eða í öðrum úrræðum. Einnig þarf að hafa í huga að í mörgum tilfellum senda heilbrigðisstarfsmenn í 1. stigs heilbrigðisþjónustu tilvísanir í mörg úrræði sem þeir telja að gætu mögulega gagnast skjólstæðingi sínum. Geðheilsuteymin vísa því oft frá fólki sem hefur í millitíðinni hafið meðferð eða fengið þjónustu í öðru úrræði, t.d. hjá VIRK. Sumar tilvísanir eru ekki fullnægjandi til að meta þjónustuþörfina og því er óskað eftir ítarlegri upplýsingum frá tilvísanda. Það telst vera hluti af frávísunarhlutfallinu því að tilvísuninni er í raun hafnað á þeim tímapunkti og heilbrigðisstarfsmanni leiðbeint um að senda nýja tilvísun með ítarlegri upplýsingum.
Helstu ástæður fyrir frávísunum frá geðheilsuteymum eru að ekki er talin þörf á þverfaglegri geðheilbrigðisþjónustu, byggt á mati fagaðila, að einstaklingur sé þegar kominn í þjónustu annars staðar eða beðið eftir annarri þjónustu, að um virkan vímuefnavanda sé að ræða sem hefur áhrif á getu einstaklings til að sinna meðferð eða að tilvísun sé ófullnægjandi. Ráðuneytið greinir um þessar mundir þörf á úrbótum, svo sem aukinni samhæfingu, skýrari viðmiðum eða eflingu þjónustu, til að tryggja enn fremur aðgengi að og samfellu í þjónustu.
7. Hvert eiga einstaklingar með einhverfu og geðrænan vanda sem vísað er frá geðheilsuteymum (2. stigs þjónusta) að leita til að fá meðferð? Ef svarið er til sjálfstætt starfandi sérfræðinga sem falla undir 2. stigs þjónustu, hvernig stendur á því að sjálfstætt starfandi sérfræðingar geta veitt slíka þjónustu en ekki geðheilsuteymi?
Ef einstaklingur er ekki talinn í þörf fyrir þjónustu geðheilsuteymis á grundvelli faglegs mats ber að tryggja að hann fái leiðsögn eða tilvísun í annað úrræði sem hæfir þörfum hans. Slík úrræði geta t.d. verið 3. stigs geðheilbrigðisþjónusta, þjónusta VIRK eða meðferð hjá sjálfstætt starfandi sérfræðingi. Val á úrræði stýrist af eðli og alvarleika vandans. Sjálfstætt starfandi sérfræðingar veita þjónustu innan sama þjónustustigs og geðheilsuteymin (2. stig) en skipulag, umfang og aðferðafræði þjónustunnar eru ólík því sem er innan geðheilsuteyma. Geðheilsuteymin vinna í þverfaglegu starfi og því er markhópurinn þeirra skjólstæðingar sem þurfa á slíkri þjónustu að halda. Því er ekki um að ræða að einn aðili geti veitt þjónustu sem annar getur ekki, heldur er mismunandi úrræðum innan sama þjónustustigs ætlað að mæta ólíkum þörfum.
8. Hvernig er tryggt að einhverfir einstaklingar með geðrænan vanda sem vísað er frá geðheilsuteymum fái viðeigandi þjónustu og hafi efni á því að greiða fyrir hana? Ef slíkt er ekki tryggt, hvernig tryggir ráðherra að ekki komi upp kerfisbundið þjónustuleysi gagnvart einhverfum fullorðnum?
Ráðherra leggur áherslu á að einstaklingar með geðrænan vanda fái viðeigandi þjónustu óháð því hvar innan kerfisins hún er veitt. Ef einstaklingur er ekki talinn í þörf fyrir þjónustu geðheilsuteymis á grundvelli faglegs mats ber að tryggja að hann fái leiðsögn eða tilvísun í annað úrræði sem hæfir þörfum hans. Þjónusta sjálfstætt starfandi sálfræðinga sem starfa á rammasamningi við Sjúkratryggingar Íslands er niðurgreidd og því hluti af hinu opinbera heilbrigðiskerfi.
Með því er stuðlað að því að kostnaður sé ekki hindrun í aðgengi að nauðsynlegri þjónustu. Ráðuneytið er meðvitað um mikilvægi þess að samfella og aðgengi sé tryggt, sérstaklega fyrir viðkvæma hópa á borð við einhverfa fullorðna. Ljóst er að þörf er á viðeigandi úrbótum, svo sem eflingu þjónustu, skýrari ferlum og aukinni samhæfingu félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu, með það að markmiði að koma í veg fyrir að einstaklingar falli milli kerfa. Samtal er hafið á milli heilbrigðisráðuneytis og félags- og húsnæðismálaráðuneytis um stofnun þjónustu- og þekkingaseturs fyrir einhverfa sem hefur m.a. það hlutverk að veita einstaklingum og aðstandendum aðgengilegar upplýsingar um réttindi og þjónustuúrræði, þar á meðal leiðsögn um hvert skuli leita hverju sinni. Einnig er mikilvægt að setrið styðji við þróun og innleiðingu sérhæfðra úrræða, t.d. innan geðheilbrigðisþjónustunnar, og fylgist með þróun þjónustu og þörfum hópsins.
9. Hefur ráðuneytið látið meta sérstaklega stöðu einhverfra fullorðinna í geðheilbrigðiskerfinu? Ef ekki, hyggst ráðuneytið gera það?
Ráðuneytið hefur þegar framkvæmt ferlagreiningu á geðheilbrigðisþjónustu fyrir einhverfa fullorðna til að öðlast heildstæða mynd af stöðu þeirra. Ráðuneytið gaf út skýrsluna Hvert á ég að leita? í nóvember 2024 þar sem fjallað er ítarlega um þjónustu, aðgengi og áskoranir sem þessi hópur stendur frammi fyrir. Skýrslan byggir á greiningu á núverandi kerfi og því hefur verið stigið mikilvægt skref í að meta stöðuna með markvissum hætti. Ráðuneytið mun áfram byggja á þeirri vinnu við þróun og úrbætur á þjónustu við einhverfa með það að markmiði að bæta aðgengi og gæði geðheilbrigðisþjónustu. Síðan skýrslan kom út hefur Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins breytt verklagi sínu við frávísanir vegna einhverfu. Auk þess er hafið samtal á milli ráðuneyta um uppbyggingu þjónustu- og þekkingarseturs fyrir einhverfa.
10. Telur ráðherra að sú framkvæmd að vísa frá þegar þjónusta „hentar ekki“ geti leitt til kerfisbundins þjónustuleysis gagnvart einhverfum fullorðnum? Ef svo er, til hvaða aðgerða hyggst ráðherra grípa?
Ráðherra telur mikilvægt að yfirfærsla á milli þjónustustiga, t.d. frá 1. stigi til 2. stigs geðheilbrigðisþjónustu, leiði ekki til þess að einstaklingar sitji eftir án viðeigandi úrræða. Mat á því hvort þjónusta „henti“ byggist á faglegu mati um hvort viðkomandi úrræði sé viðeigandi fyrir vanda viðkomandi einstaklings en felur ekki í sér að einstaklingur eigi að verða af þjónustu. Ef niðurstaða slíks mats er sú að tiltekið úrræði sé ekki viðeigandi meðferðarúrræði ber að tryggja að einstaklingur fái leiðsögn eða tilvísun í annað úrræði. Það er lykilatriði til að koma í veg fyrir rof í þjónustu, þar á meðal gagnvart einhverfum fullorðnum.
Ráðuneytið er meðvitað um mikilvægi þess að samfella sé í þjónustu og mun áfram vinna að því að styrkja verklag, þjónustuferla og eftirfylgd þannig að enginn falli milli kerfa og að aðgengi að viðeigandi geðheilbrigðisþjónustu sé tryggt. Uppbygging þekkingar- og þjónustuseturs fyrir einhverfa er mikilvægt skref í þeirri vinnu.