Ferill 622. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1169  —  622. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni um starfsmenn ríkisins.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     Hversu hátt hlutfall starfsmanna ríkisins hætti störfum hjá ríkinu á hverju ári á tímabilinu 2019–2025?

    Rekstur ríkisstofnana er dreifstýrður og bera forstöðumenn ábyrgð á sínum stofnunum í samræmi við starfsmannalög og lög um opinber fjármál. Skráningar eru því ekki miðlægar heldur á ábyrgð hverrar stofnunar fyrir sig. Heildstæðar og miðlægar upplýsingar um hlutfall starfsmanna sem hætta störfum árlega liggja því ekki fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá Fjársýslunni (FJS) er þróun kennitalna og brottfall á tímabilinu sem um ræðir eftirfarandi:

Ár

Fjöldi kennitalna

Fjöldi hættra

Hlutfall

2019
29.541 3.750 12,7%
2020 30.085 4.182 13,9%
2021 31.181 3.904 12,5%
2022 32.200 4.080 12,7%
2023 32.575 4.567 14,0%
2024 32.935 4.313 13,1%
2025 32.949 4.445 13,5%
Heimild: FJS.

    Greining á brottfalli byggist á samanburði milli ára. Brottfallshlutfall er reiknað með því að bera saman virkar kennitölur á milli samliggjandi ára. Sem dæmi eru niðurstöður ársins 2020 fundnar með því að telja kennitölur sem voru á launaskrá árið 2019 en ekki árið 2020.
    Rétt er að taka það fram og leggja áherslu á að um er að ræða heildarfjölda þeirra kennitalna sem voru á launaskrá á viðkomandi ári, óháð tegund ráðningar, ráðningartíma, stöðu starfs, starfshlutfalli eða hvernig starfslok báru að. Gögnin ná til kennitalna sem eru á launaskrá á hverjum tíma og hluti þeirra eru m.a. tímavinnu- og sumarstarfsfólk.