Ferill 620. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1170  —  620. mál.




Svar


mennta- og barnamálaráðherra við fyrirspurn frá Degi B. Eggertssyni um upphaf skóladags í framhaldsskólum.


     1.      Hefur ráðherra og ráðuneytið átt formlegt samráð og samtöl um eða unnið greiningar á möguleika þess að seinka upphafi skóladags í framhaldsskólum með hliðsjón af rannsóknum á svefni ungmenna og áhrifum hans á námsárangur og líðan sem sýna að um 90% nemenda á framhaldsskólastigi fá ekki nægan nætursvefn?
    Ráðherra hefur ekki átt formlegt samráð eða samtöl, né unnið greiningar um möguleika þess að seinka upphafi skóladags í framhaldsskólum. Framhaldsskólum hefur hins vegar sjálfum verið falið að bera ábyrgð á forvarnastarfi og skulu skv. 3. mgr. 36. gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, setja sér forvarnastefnu sem birt skal opinberlega.
    Ráðuneytið hefur þó stutt verkefni embættis landlæknis um Heilsueflandi framhaldsskóla sem snertir alla opinbera framhaldsskóla. Í Handbók um geðrækt í framhaldsskólum, sem embætti landlæknis hefur gefið út í tengslum við verkefnið Heilsueflandi framhaldsskólar, er að finna tilvísun í rannsóknir sem styðja það að nætursvefn ungmenna verði betri ef upphafi skóladags er seinkað og rík áhersla lögð á að framhaldsskólar líti til þess í skipulagi skólaársins.

     2.      Hver er afstaða ráðherra til þess að kanna sérstaklega hvort seinkun upphafs skóladags geti stuðlað að bættum svefni, námsárangri og betri líðan framhaldsskólanema?
     3.      Hver er afstaða ráðherra til þess að ráðast í tilraunaverkefni eða að unnar verði leiðbeiningar til framhaldsskóla um sveigjanlegra upphaf skóladags?

    Ráðherra er mjög umhugað um velferð nemenda og er góður svefn mikilvægur hluti af líðan þeirra og námsgetu. Því er ráðherra hlynntur því að framhaldsskólar hefjist ekki of snemma og telur það vel koma til greina að framhaldsskólar hafi sveigjanlegra upphaf skóladags.
    Í áðurnefndri Handbók um geðrækt í framhaldsskólum er fjallað um ávinning þess að seinka upphafi skóladags um 30–60 mínútur og rannsóknir sem sýndu fram á jákvæðar breytingar við það að seinka upphafi skóladags frá 7:45 og 8:00 til 8:30 og 9:00. Jafnframt eru framhaldsskólar í handbókinni hvattir til að skoða það af alvöru að seinka upphafi skóladags í því skyni að stuðla að betri heilsu og líðan nemenda.
    Vert er að nefna að fjölmargir framhaldsskólar hafa þegar seinkað upphafi skóladags af framangreindum ástæðum.

     4.      Liggur fyrir samgöngustefna fyrir framhaldsskóla, sem ásamt breyttu upphafi skóladags gæti minnkað tafir á umferð í ljósi þess að eftir að skólar hefjast á haustin lengist ferðatími á einkabíl um allt að 30 mínútur úr Hafnarfirði í miðborg Reykjavíkur?
    Ekki hefur verið mótuð sérstök miðlæg samgöngustefna fyrir framhaldsskóla en ráðherra telur fulla ástæðu til að það verði skoðað.