Ferill 609. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1171  —  609. mál.




Svar


fjármála- og efnahagsráðherra við fyrirspurn frá Diljá Mist Einarsdóttur um Maastricht-skilyrði og upptöku evru.


    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hvenær má gera ráð fyrir því að Ísland uppfylli skilyrði sem ríki þarf að fullnægja til að geta tekið upp evru sem gjaldmiðil, Maastricht-skilyrðin, samkvæmt þeim efnahagsspám sem ríkisstjórnin styðst við, þ.e.
                  a.      að verðbólga verði ekki meira en 1,5% yfir meðaltali verðbólgu hjá þeim þremur ESB-ríkjum sem hafa lægstu verðbólguna,
                  b.      að langtímavextir verði ekki meira en 2% hærri að meðaltali í þeim þremur ríkjum ESB þar sem verðlag er stöðugast,
                  c.      að halli á rekstri ríkissjóðs verði ekki meiri en 3% af vergri landsframleiðslu,
                  d.      að heildarskuldir hins opinbera verði ekki yfir 60% af vergri landsframleiðslu?
     2.      Hvenær er gert ráð fyrir því, samkvæmt þeim efnahagsspám sem ríkisstjórnin styðst við, að Ísland uppfylli það skilyrði að hafa verið aðili að gengissamstarfi Evrópu (e. Exchange Rate Mechanism, ERM II) í a.m.k. tvö ár án gengisfellingar og að gengi krónunnar hafi á þeim tíma verið innan þeirra tilteknu vikmarka sem eru skilyrði þess að ríki geti tekið upp evru?


    Fyrirspurninni er svarað með hliðsjón af þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands og framlagðri tillögu að fjármálaáætlun fyrir árin 2027–2031. Nýjasta þjóðhagsspá Seðlabankans er frá febrúar 2026 og liggur hún til grundvallar tillögu að fjármálaáætlun. Stjórnvöld fylgjast þó hverju sinni með öðrum hagspám og efnahagslegum vísbendingum.
    Að mati ráðuneytisins uppfyllir Ísland nú þegar það skilyrði að halli á rekstri hins opinbera sé innan við 3% af vergri landsframleiðslu (VLF) og að horfur séu á því að hann verði það áfram. Halli á heildarafkomu A-hluta hins opinbera er þegar innan 3% VLF-markanna. Samkvæmt tillögu að fjármálaáætlun er gert ráð fyrir að halli A-hluta hins opinbera minnki í tæplega 1% af VLF árið 2026 og að afkoman styrkist enn frekar á næstu árum.
    Að mati ráðuneytisins uppfyllir Ísland nú þegar það skilyrði að skuldir hins opinbera á hinn svokallaða Maastricht-mælikvarða séu lægri en 60% af landsframleiðslu og að horfur séu á að þær verði það áfram. Maastricht-skuldir hins opinbera námu 56,1% af landsframleiðslu í árslok 2025 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Samkvæmt tillögu að fjármálaáætlun er áætlað að skuldahlutfallið lækki á næstu árum.
    Maastricht-skilyrðið um verðbólgu varðar þróun samræmdrar vísitölu neysluverðs (e. Harmonized Index of Consumer Prices, HICP) og telst uppfyllt ef 12 mánaða meðaltal verðbólgu á þann mælikvarða er ekki meira en 1,5 prósentustigum hærra en meðaltal 12 mánaða meðaltals verðbólgu í þeim þremur ESB-ríkjum þar sem verðstöðugleiki er mestur. Mögulegt er að taka tillit til þess ef verðbólga í einhverjum þessara samanburðarríkja er óvenjulega lág vegna staðbundinna þátta. Þrennt gerir það að verkum að erfiðara en ella er að álykta út frá opinberum þjóðhagsspám hvenær gera má ráð fyrir að skilyrðið verði uppfyllt. Í fyrsta lagi spá opinberar hagspár hér á landi um verðbólgu á mælikvarða vísitölu neysluverðs, ekki hinnar samræmdu vísitölu. Í öðru lagi er skilyrðið, eins og áður segir, tengt verðbólguþróun í tilteknum samanburðarríkjum sem ekki er hægt að fullyrða um hver verða. Í þriðja lagi er iðulega óvissa um verðbólguþróun og óvissan er nú meiri en ella, jafnt hér á landi sem annars staðar í Evrópu, vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Miðað við nýjustu verðbólgutölur í ESB-ríkjum þyrfti 12 mánaða meðaltal verðbólgu á mælikvarða samræmdrar vísitölu neysluverðs hér á landi líklega að vera um 2,5% til að skilyrðið teldist nú vera uppfyllt. 12 mánaða meðaltal verðbólgu á þennan mælikvarða er nú 4,0%. Verðbólguspá Seðlabankans frá febrúar 2026 gerir ráð fyrir því að verðbólga á mælikvarða vísitölu neysluverðs verði að meðaltali 2,7% árið 2027 og 2,5% árið 2028. Verðbólga á mælikvarða samræmdrar vísitölu hefur yfirleitt verið lægri hér á landi en verðbólga á mælikvarða vísitölu neysluverðs. Í nýjustu tölum er munurinn 0,4 prósentustig.
    Skilyrðið um langtímavexti varðar 12 mánaða meðaltal ávöxunarkröfu ríkisskuldabréfa til u.þ.b. 10 ára. Svo skilyrðið teljist uppfyllt skulu vextir hér á landi ekki vera meira en 2 prósentustigum hærri en meðaltal vaxta í þeim þremur ESB-ríkjum þar sem verðstöðugleiki er mestur. Hér á landi er 12 mánaða meðaltal vaxta á þennan mælikvarða nú u.þ.b. 6,8% en í samanburðarríkjunum er það u.þ.b. 3,3%. Munurinn er um 1,5 prósentustigum meiri en svo að skilyrðið geti nú talist vera uppfyllt að mati fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Í þjóðhagsspá Seðlabankans er ekki spáð fyrir um vaxtastig á þennan mælikvarða og vaxtastig í samanburðarríkjum getur breyst markvert yfir tíma. Því er ekki hægt að svara því afdráttarlaust hvenær spáin gerir ráð fyrir því að skilyrðið verði uppfyllt. Þjóðhagsspá Seðlabankans gerir þó ráð fyrir því að þjóðarbúið stefni í jafnvægi á þeim tíma sem spáin nær til, þ.e. til ársins 2028, samhliða því sem verðbólgumarkmið Seðlabankans næst. Gangi það eftir er líklegt að bæði skammtímavextir og langtímavextir lækki ef marka má nýjasta mat Seðlabankans á jafnvægisstigi raunvaxta.
    Þjóðhagsspá Seðlabankans gerir ráð fyrir því að meðalgildi gengisvísitölu krónunnar ár hvert verði svo til óbreytt til ársins 2028. Í þjóðhagsspánni er ekki spáð um hvort eða hvenær Ísland gerist aðili að ERM II-gengissamstarfinu eða hvenær Ísland uppfyllir Maastricht-skilyrðið er varðar farsæla þátttöku í samstarfinu. Gerist Ísland aðili að samstarfinu má gera ráð fyrir að forsendur gengisstöðugleika styrkist að öllu öðru óbreyttu. Í samstarfinu er gert ráð fyrir að gengi gjaldmiðils gagnvart evru veikist hvorki né styrkist um meira en 15% frá fyrir fram skilgreindu meðalgengi. Vikmörkin nema því alls 30%. Munurinn á hæsta og lægsta gengi krónunnar gagnvart evru síðustu tvö ár nemur innan við 10%. Ekki virðast forsendur til annars en að gera ráð fyrir því að Ísland geti tekið farsællega þátt í samstarfinu í tvö ár eða lengur að undangenginni aðild í það.