Ferill 608. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
157. löggjafarþing 2025–2026.
Þingskjal 1172 — 608. mál.
Svar
utanríkisráðherra við fyrirspurn frá Hildi Sverrisdóttur um aðlögun regluverks vegna aðildarviðræðna við Evrópusambandið.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Kemur til greina af hálfu ráðherra að leggja til aðlögun íslenskra laga og reglna að reglum Evrópusambandsins, umfram það sem leiðir beint af EES-samningnum, samhliða aðildarviðræðum við Evrópusambandið áður en aðildarsamningur er lagður í þjóðaratkvæðagreiðslu?
Í skýrslu utanríkisráðuneytisins Aðildarviðræður Íslands og ESB: Framvinda og staða, sem gefin var út í apríl 2013, kemur fram að snemma í aðildarviðræðuferlinu á árunum 2009– 2013 hafi íslensk stjórnvöld og Evrópusambandið (ESB) náð saman um að Ísland myndi ekki ráðast í breytingar á stofnunum og þær lagabreytingar sem af aðild myndu leiða fyrr en fyrir lægi að Ísland yrði aðildarríki. Það myndi í grundvallaratriðum liggja fyrir að afstaðinni þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarsamning. Breytingar sem af aðild leiddu ættu því ekki að eiga sér stað fyrr en íslenska þjóðin hefði tekið afstöðu til aðildarsamnings.
Verði aðildarviðræðum við ESB fram haldið yrði unnið út frá sömu nálgun og í viðræðuferlinu á árunum 2009–2013. Áhersla yrði lögð á að vinna undirbúning að þeim breytingum sem ráðast þyrfti í þannig að hægt yrði að hrinda þeim hratt í framkvæmd þegar lægi fyrir að Ísland yrði aðili að sambandinu. Ef upp kæmu tilvik þar sem þörf væri talin á breytingum samhliða aðildarviðræðum og það væri talið þjóna sjálfstæðum innlendum markmiðum, yrði ekki ráðist í þær án samráðs við Alþingi. Upptaka og innleiðing gerða á grundvelli EES-samningsins myndi halda áfram í samræmi við skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum.